Erfitt fyrir innflytjendur að koma út sem trans eða kynsegin

Andie Fontaine, blaða­maður og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Vinstri grænna, segir önnur lönd standa Íslandi framar hvað varðar ferli trans og kynsegin fólks. Ferlið sé enn erf­ið­ara fyrir fólk án íslensks rík­is­borg­ara­réttar. Hán kom nýverið út og ótt­ast skriffin­sku og nær­göngular spurn­ingar í ferl­inu.

Andie Fontaine
Andie Fontaine Andie seg­ist hafa notið mik­ils stuðn­ings, en hafa helst ótt­ast ferlið og skrif­finnsk­una. Mynd: Art Bicnick

Ísland stendur aftar öðrum þjóðum hvað varðar ferli sem trans og kynsegin (e. non-bin­ary) fólk þarf að fara í gegnum. Ferlið er enn flókn­ara fyrir fólk án íslensks rík­is­borg­ara­réttar. Þetta skrifar Andie Fontaine, fyrr­ver­andi vara­þing­maður og frétta­rit­stjóri The Reykja­vík Grapevine, í pistli um málið í dag.

Andie kom nýverið út sem trans og kynsegin. Í pistl­inum segir hán ferlið hafa haf­ist í æsku, en nú hafi hán skipt um nafn og útlitið muni breyt­ast, að hluta til vegna horm­óna­með­ferðar. Stærsti ótti Andie í tengslum við breyt­ing­arnar stafi hins vegar af því hversu úrelt ferlið fyrir trans og kynsegin fólk sé á Íslandi.

„Í fyrsta lagi, þá er „kynsegin“ ekki skil­greint í lögum eða heil­brigð­is­kerf­inu á Íslandi.“

„Í fyrsta lagi, þá er „kynsegin“ ekki skil­greint í lögum eða heil­brigð­is­kerf­inu á Íslandi, þannig að ef þú vilt und­ir­gang­ast leið­rétt­ingu þá þarftu að velja „karl­kyns“ eða „kven­kyns“,“ skrifar Andie, í þýð­ingu blaða­manns. „Þú þarft að „lifa sem“ annað af þessum kyn­gervum, sér­stak­lega hvernig þú kemur fram, í að minnsta kosti sex mán­uði og allt að 18 mán­uðum eða lengur og gang­ast undir nær­göngular spurn­ingar um í hvernig nær­fötum þú gengur, hvaða kyn­lífs­stell­ingar þér finn­ast góðar, og slíkt.“

Enn eitt dæmið um mismunun vegna þjóðernis

Andie segir að þeir sem ekki eru íslenskir rík­is­borg­arar þurfi fyrst að fá nýtt nafn og kyn­gervi sam­þykkt af heima­land­inu áður því megi breyta á Íslandi. „Allt þetta þarf að ger­ast, ekki aðeins áður en þú mátt byrja í horm­óna­með­ferð, heldur eru þetta for­sendur þess að breyta kyn­gerv­isskrán­ing­unni (aftur, aðeins „karl­kyns“ og „kven­kyns“) eða jafn­vel nafn­inu þínu - nafni sem þarf að mæta lög­bundnum skil­yrðum fyrir „karl­kyns“ og „kven­kyns“ nöfn.“

Andie segir að önnur lönd standi Íslandi framar hvað þetta varðar og þetta sé enn eitt dæmið þar sem Ísland mis­munar fólki eftir þjóð­erni. Andie fædd­ist í Banda­ríkj­unum og sat á þingi fyrir Vin­sti­hreyf­ing­una - grænt fram­boð sem vara­þing­maður á árunum 2007 og 2008 og lét til sín taka í mál­efnum inn­flytj­enda á meðan þing­set­unni stóð.

„Kyngervi okkar, horm­ónar okkar, nöfnin okkar - ekk­ert af þessu ætti að vera eitt­hvað sem stjórn­kerfið okkar stendur í vegi fyrir eða við þurfum að grát­biðja um,“ skrifar Andie. „Þau eru hluti af því hvernig við skil­greinum okkur, þau til­heyra okkur og kannski mun lög­gjöfin einn dag­inn end­ur­spegla það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár