Kína fer fram úr Bandaríkjunum fyrr en áætlað var

Allt bendir til þess að hagkerfi Kína muni fara fram úr því bandaríska fyrr en áætlað var. Eftir rúmlega áratug verður kínverska hagkerfið orðið stærra, miðað við algengar spár.

Kínverska hagkerfið fer fram úr því bandaríska, sem það stærsta í heimi, árið 2028 verði hagvöxtur með svipuðum hætti og hann er nú, það er að bandaríska hagkerfið vaxi um tvö prósent á ári en það kínverska um 6,5 prósent.

Í umfjöllun Bloomberg kemur fram að forseti Kína Xi Jinping velja forðast viðskiptaleg átök (Trade War) við aðrar þjóðir, þar á meðal Banda­ríkin, en að stefna hans til langs tíma sé sú að Kín verði alþjóð­legur leiðtogi í efnahags­lífi heimsins árið 2050. Ekki aðeins með stærsta hagkerfið heldur einnig alþjóð­legur leiðtogi á öðrum sviðum, þar með talið umhverfis­málum.

Sé mið tekið af stöðu mála eins og hún var í lok síðasta árs, þá telst hlutur Banda­ríkjanna um 24,7 prósent af heildar­hagkerfi heimsins en Kína tæplega 15 prósent. Þetta er að breytast hratt, eins og áður segir, og munar mest um gríðar­legan vöxt í Kína, Indlandi og nágranna­ríkjum í Asíu.

Stórt skref var stigið í gær, þegar tilkynnt var um rýmri heimildir fyrir erlenda fjár­festingu í fjármála­kerfinu í Kína.

Stjórn­völd í Kína hafa ákveðið að rýmka heim­ildir fyrir erlend fjár­mála­fyr­ir­tæki og eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki til að starfa í Kína og munu þau geta átt allt að 51 pró­sent hlut í kín­verskum fyr­ir­tækjum sem sinna þess­ari þjón­ust­u.

Um stórt og mikið skref er að ræða í þá átt að mark­aðsvæða kín­verskt fjár­mála­kerfi og mark­að­inn í heild, en kín­verska ríkið heldur um flesta þræða í kín­verska hag­kerf­inu og hefur tak­markað mikið umsvif erlendra fyr­ir­tækja í land­in­u.

Til­kynn­ingin um þessa rýmkun virð­ist vera að koma mörgum á mark­aði á óvart, en sam­kvæmt umfjöllun Bloomberg er þetta álitið vera stórt skref í að styrkja við­skipta­sam­band Banda­ríkj­anna og Kína, þar sem banda­rísk stór­fyr­ir­tæki, ekki síst bankar á Wall Street, hafa kvartað sáran undan því að geta ekki þjón­u­stað við­skipti nema með tak­mörk­uðu hætti, innan Kína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár