Norður-Kórea ætlar að fjölga tilraunum

Aðstoðar­utan­ríkis­ráðherra Norður-Kóreu segir í viðtali við BBC að tilraunum með flug­skeyti verði fjölgað. Ef Banda­ríkin ráðist á landið þá verði því mætt með fullri hörku.

Kim Jong-un ásamt herforingjum.
Kim Jong-un ásamt her­for­ingjum. Mynd: EPA

Aðstoðar­utan­ríkis­ráðherra Norður-Kóreu, Hang Sol-Ryol, segir í viðtali við breska ríkis­útvarpið BBC að Norður-Kórea ætli sér að fjölga tilraunum með langdræg flug­skeyti og kjarnorku­vopn. Svo gæti farið að skotið verði vikulega næsta árið.

Þá segir hann að ef Banda­ríkin ákveði að ráðast á landið þá verði því mætt af fullri hörku. Mike Pence, vara­forseti Banda­ríkjanna, hefur biðlað til Norður-Kóreu um að vera ekki að „prófa“ hvernig þolinmæðin er hjá Donald Trump, Bandaríkja­forseta. Hann segir Norður-Kóreumenn þurfa að hætta tafar­laust tilraunum sínum með lang­drægar eldflaugar og kjarna­vopn.

Pence kom til Suður-Kóreu í gær, eftir að tilraun Norður-Kóreu með flug­skeyti hafði mistekist, og sagði þá að þolinmæðin væri á enda. Nú væri ekki hægt að sitja hjá og gera ekkert.

Banda­ríkin hafa biðlað til Kínverja um að stíga inn í deiluna, og segja Norður-Kóreu að hætta tilraunum sínum. Til þess hefur Kim Jong-Un, leiðtogi landsins, látið allt slíkt tala sem vind um eyru þjóta, og boðar nú enn meiri flugskeyta­skot út í loftið og út á Japanshaf.

Þau skeyti sem hafa lent næst Japan hafa verið í um 300 kílómetra fjarlægð, en stjórn­völd í Japan hafa formlega óskað eftir því að Sameinuðu þjóðirnar beiti sér sem og Banda­ríkin, til að koma í veg fyrir þá ógn sem stafar frá Norður-Kóreu.

Spennan á Kóreu­skaga er nú sögð áþreifanleg, og að átök geti brotist út á hverri stundu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár