Áskrifendur Amazon komnir yfir 100 milljónir

Ríkasti maður heims, Jeff Bezos forstjóri Amazon, segir í árlegu bréfi til hluthafa að áskrifendum af þjónustu Amazon hafi fjölgað gríðar­lega hratt að undan­förnum.

Mánaðar­legir áskrifendur Amazon (Amazon Prime Members) eru nú orðnir fleiri en 100 milljónir á heimsvísu.

Þessar upplýsingar hafa til þessa ekki verið gefnar upp í uppgjörum Amazon, en í árlegu bréfi sínu til hluthafa segir forstjórinn, stofn­andinn og stærsti eigandinn, Jeff Bezos, frá þessari tölu og segir að fjölgunin hafi verið gríðar­lega hröð að undan­förnu.

Til að setja þennan fjölda í samhengi, þá nemur hann um fjör­földum heildar­íbúafjölda allra Norður­landanna.

Áskrifendur af vildarkjara­kerfi Amazon njóta þess með því að fá betri kjör í verslun hjá Amazon, og nú síðast geta þeir einnig verslað með afslætti í verslunum Whole Foods.

Markaðs­virði Amazon nemur um þessar mundir 710 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 71 þúsund milljörðum króna. Það upphæð sem nemur um áttatíu­földu heildar­virði íslenska hlutabréfa­markaðarins. Fyrir þá fjárhæð mætti kaupa allar fasteignir á Íslandi, samkvæmt fasteigna­mati fyrir árið 2018, tíu sinnum.

Bezos á sjálfur tæplega 17 prósent í Amazon, en heildar­eignir hans nema nú 126,5 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 12.600 milljörðum króna.

Bezos hefur byggt upp veldi sitt á 24 árum en hann stofnaði Amazon í bílskúr í Seattle, til þess að selja bækur á internetinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár