Allir starfsmenn N1 fái sömu launahækkun og forstjórinn

Stjórn VR mun leggja fram til­lögu á aðal­fundi N1 um að öllum starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins skuli tryggð sama kjara­hækkun og for­stjóri félags­ins fékk en laun hans voru 5,8 millj­ónir á mán­uði á síð­asta ári.

Stjórn VR hyggst leggja fram til­lögu á aðal­fundi N1 um að öllum starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins skuli tryggð sama kjara­hækkun og for­stjóri félags­ins fékk en laun hans voru 5,8 millj­ónir á mán­uði á síð­asta ári og hækk­uðu um 20,6 pró­sent á milli ára eða um rúma milljón á mán­uði.

Í til­kynn­ingu frá stjórn VR kemur fram að þau geti ekki setið aðgerða­laus hjá þegar N1 greiði for­stjóra fyri­tæk­is­ins 20,6 pró­senta hækkun í kjörum milli ára.

„Ef fyr­ir­tækið er svo vel rekið og í svo miklum blóma að það telji sér fært að skammta þeim sem stýrir því svo vel væri eðli­legt að það umbuni þeim sem sjálf verkin vinna með sama hætti. Það er sann­gjarnt og eðli­legt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Tillagan sem stjórn VR hyggst láta leggja fram hljóðar svo: „Aðal­fundur N1, hald­inn mánu­dag­inn 19. mars að Dalvegi 10-14 Kópavogi, ályktar að öllum starfs­mönnum N1 skuli tryggð sama kjara­hækkun og for­stjóri félags­ins fékk á árinu 2017. Laun for­stjóra voru á árinu 2017 70,4 m.kr., eða 5,8 m.kr. á mán­uði, og hækk­uðu þau um 20,6% milli áranna 2016 og 2017.“

Stjórnin segir að þar sem stærstu eig­endur N1 séu líf­eyr­is­sjóðir launa­fólks hljóti það að vera eðli­leg krafa að einmitt hið dug­lega launa­fólk sem þar starfi skuli einnig njóta ávaxt­anna, „sér­stak­lega þegar svo vel gengur í starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins að það telur sæm­andi að greiða for­stjór­anum sam­bæri­leg laun og launa­hæsta banka­stjóra lands­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár