Ding, ding, ding, Erna á þing – fyrir Miðflokkinn

Erna Bjarna­dóttir tekur í dag sæti sem vara­þingmaður Birgis Þórarins­sonar. Við þetta stækkar þing­flokkur Miðflokksins um 50 prósent, en Erna fylgdi Birgi ekki yfir í Sjálfstæðis­flokkinn er hann ákvað að segja skilið við Miðflokkinn eftir kosningar.

Erna Bjarnadóttir er varaþingmaður Birgis Þórarinssonar. En þau eru í sitthvorum þingflokknum.
Erna Bjarna­dóttir er vara­þing­maður Birgis Þór­ar­ins­sonar. En þau eru í sitt­hvorum þing­flokknum. Mynd: Samsett

Erna Bjarna­dóttir tekur í dag sæti sem vara­þingmaður fyrir Birgi Þórarinsson, í fyrsta sinn á kjör­tímabilinu. Það heyrir til nokkurra tíðinda, enda breytist við þetta fjöldi sitjandi þingmanna í Miðflokki og Sjálfstæðis­flokki.

Miðflokks­mönnum á þingi fjölgar úr tveimur í þrjá og þing­mönnum Sjálfstæðis­flokks fækkar úr 17 í 16.

Birgir var kjörinn á þing fyrir Miðflokkinn í Suður­kjördæmi í kosningunum í haust en ákvað skömmu síðar að segja skilið við flokkinn. Erna var í 2. sæti á lista Miðflokksins í Suður­kjördæmi og var slagorð hennar, „Ding, ding, ding, Erna á þing“, eitt af þeim eftir­minnilegri í kosninga­baráttu haustsins.

Birgir sagði við Morgun­blaðið er hann tilkynnti um vista­skipti sín að Erna styddi ákvörðun hans. Óvissa var þó uppi um hvort Erna myndi fylgja Birgi yfir í þingflokk Sjálfstæðis­flokksins, eða hvort vara­þing­maðurinn myndi áfram verða í Miðflokknum. Sjálfstæðis­flokkurinn bauð Ernu velkomna í flokkinn í tilkynningu um vista­skipti Birgis, en ekkert fékkst staðfest frá Ernu sjálfri.

Erna greindi sjálf frá því í viðtali á Bylgjunni þann 12. október að hún ætlaði sér ekki að skipta um flokk. „Ég hef ekki skráð mig í Sjálf­stæðis­flokkinn og er ekki á leiðinni þangað,“ sagði Erna, sem lýsti því yfir í samtalinu að hún væri ekki ósátt við þá ákvörðun Birgis að skipta um þingflokk svo skömmu eftir kosningar.

„Hún tjáði mér það að hún ætlaði að koma með mér yfir. Hún hefur greini­lega skipt um skoðun og ég held að það sé partur af þeirri hörðu umræðu sem hefur verið í samfélaginu og haft mikil áhrif á hana.“ sagði Birgir í samtali við Morgun­útvarp Rásar 2 í kjölfarið.

Í janúar­mánuði gagnrýndi Erna Birgi fyrir að kalla sig ekki inn sem varamann á meðan hann tók þátt í fundi Evrópu­ráðs­þingsins og sagðist hún á Facebook ekki hafa heyrt frá honum „hósta né stunu“ þrátt fyrir að hafa, ásamt fleirum, hlaupið úr sér „lifur og lungu til að maðurinn kæmist á þing“.

Á vef Alþingis má í dag sjá á lista yfir sitjandi aðal- og vara­þingmenn að Erna situr á þingi fyrir Miðflokkinn, en ekki Sjálfstæðis­flokkinn.

Birgir hafði samband um helgina

Erna Bjarna­dóttir segir í samtali við Kjarnann að Birgir hafi haft samband við hana um helgina og sagt henni að hann hygðist kalla hana inn sem vara­þingmann, en Birgir er erlendis þessa vikuna að störfum fyrir þingið.

„Ég átti ekki von á þessu,“ segir Erna og bætir við að það hafi „ekki verið venjan að kalla inn vara­þingmann þegar menn færa sig á milli flokka“.

Hún segir að samskipti hennar og Birgis hafi verið vingjarnleg og að henni þyki það drengilegt af Birgi að hafa kallað hana inn sem vara­þingmann sinn.

Nefndi Klausturmálið sem rótina að vistaskiptunum

Birgir greindi frá vista­skiptum sínum yfir í Sjálfstæðis­flokkinn í grein sem hann ritaði í Morgun­blaðið, en þar sagði að traust milli hans og forystu Miðflokksins væri brostið.

„Þessi staða rekur rætur sínar allt aftur til hins svo­kall­aða Klaust­ur­máls. Eins og kunn­ugt er gagn­rýndi ég málið opin­ber­lega og við­brögð þeirra sem í hlut áttu. Ég gat þess jafn­framt að ég óskaði engum þess að vera þol­andi eða ger­andi í máli sem skók þjóð­ina dögum saman og enn er minnst á í fjöl­miðl­um. Að baki standa fjöl­skyldur sem hafa átt erfitt vegna máls­ins. Ég gagn­rýndi sam­flokks­menn mína sem í hlut áttu vegna þess að heil­indi við eigin sam­visku og sú ábyrgð að breyta rétt í þjón­ustu við kjós­endur er fyrsta skylda þing­manna. Eftir gagn­rýni mína á Klaust­ur­málið naut ég aldrei fulls trausts innan hóps­ins og um tíma var bein­línis litið svo á að ég væri vanda­mál­ið,“ skrifaði Birgir í grein sinni.

Birgir sagði að við upp­röðun á fram­boðs­lista Mið­flokks­ins fyrr á þessu ári hefði haf­ist skipu­lögð aðför gegn sér af hálfu áhrifa­fólks innan flokks­ins. Mikið hafi verið á sig lagt, liðs­auki kall­aður til, nýjar reglur settar og ýmsum brögðum beitt til að koma í veg fyrir að hann yrði odd­viti í Suð­ur­kjör­dæmi.

„Mið­flokk­ur­inn beið afhroð í kosn­ing­unum og er í erf­iðri stöðu. Margt fór úrskeiðis í kosn­inga­bar­átt­unni og í aðdrag­anda henn­ar. Mikið upp­bygg­ing­ar­starf bíður for­yst­unnar og flokks­manna, en end­ur­reisnin mun aldrei takast nema full sam­staða og traust ríki milli manna. Ljóst má vera að slíkt traust ríkir ekki í minn garð eins og ég hef rak­ið. Það er full­reynt. Einnig skal það sagt að flokks­for­ystan hefur rofið traust mitt til henn­ar. [...] Minni bar­áttu ætla ég að halda áfram innan raða Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þar er góður mál­efna­legur sam­hljómur og þar tel ég að kraftar mínir muni nýt­ast best,“ skrifaði Birgir einnig.

Fréttin hefur verið uppfærð með tilvitnunum í Ernu Bjarna­dóttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár