Sannkristinn ræðukóngur sem beitti sér gegn þungunarrofi, afglæpavæðingu og orkupakkanum

Birgir Þór­ar­ins­son hefur sagt skilið við Mið­flokk­inn og gengið til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, flokk sem sem hann sagði síð­ast í vor að hefði brugð­ist í mörgum málum.

Þann 9. októ­ber 2017 var send út frétta­til­kynn­ing þess efnis að hinn nýstofn­aði Mið­flokkur, sem tók í fyrsta sinn þátt í alþing­is­kosn­ingum 19 dögum síðar, hefði fundið odd­vita til að leiða flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi.

Odd­vit­inn, Birgir Þór­ar­ins­son, var sér­fræð­ingur í alþjóða­sam­skiptum og guð­fræð­ingur.

Birgir var, líkt og flestir sem fylgdu Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni yfir í Mið­flokk­inn í aðdrag­anda hinna skyndi­legu kosn­inga árið 2017, fyrr­ver­andi liðs­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Og hann var einn þeirra sem náði kjöri í miklum kosn­inga­sigri Mið­flokks­ins fyrir fjórum árum síðan, þegar flokk­ur­inn fékk bestu hlut­falls­legu nið­ur­stöðu sem nýr flokkur hefur fengið í sínum fyrstu kosn­ingum hér­lendis.

Birgir var aftur í fram­boði fyrir Mið­flokk­inn í kosn­ing­unum í síð­asta mán­uði, og var einn tveggja fram­bjóð­enda flokks­ins sem voru kjör­dæma­kjörnir á þing, ásamt for­mann­inum Sigmundi Davíð. Sá árangur leiddi til þess að Mið­flokk­ur­inn fékk einnig einn jöfn­un­ar­þing­mann sem nú er Bergþór Ólason en var fyrst Karl Gauti Hjalta­son.

Innan við tveimur vikum eftir að kosn­ing­arnar voru afstaðnar, áður en þing­menn höfðu fengið kjör­bréf sín afhent og áður en stjórn­ar­sátt­máli nýrrar rík­is­stjórnar hefur verið rit­aður, ákvað Birgir að hætta í Mið­flokknum og færa sig yfir til Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem tók honum opnum örmum. Sú ákvörðun hefur verið afar umdeild og Birgir legið undir ámæli fyrir að hafa blekkt kjós­endur, sér­stak­lega þar sem hann vís­aði í næstum þriggja ára gam­alt mál, Klaust­ur­málið svo­kall­aða, sem rök­stuðn­ing fyrir ákvörðun sinni.

Áhugamaður um aukna notkun þjóðfánans

En hver er Birgir og hvað stendur hann fyrir? Hann er með meist­ara­próf í alþjóða­sam­skiptum og utan­rík­is­þjón­ustu (MIS) frá American Uni­versity, Washington D.C. í Banda­ríkj­un­um, með áherslu á hags­muna­gæslu ríkja á alþjóða­vett­vangi. Einnig hefur hann BA próf í guð­fræði frá Háskóla Íslands og próf í Opin­berri stjórn­sýslu og stjórnun frá EHÍ.

Áður en Birgir fór í fram­boð fyrir Mið­flokk­inn hafði hann starfað við yfir­stjórn UNRWA, flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir Palest­ínu­menn, í Mið-Aust­ur­lönd­um, sinnt verk­efnum á vegum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, verið vara­þing­maður fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi 2009-2013 og setið í sveit­ar­stjórn sveit­ar­fé­lags­ins Voga. Auk þess hafði Birgir rekið ferða­þjón­ustu um ára­bil.

Þingflokkur Miðflokksins á síðasta kjörtímabili, þegar allt virtist leika í lyndi á yfirborðinu. Samkvæmt Birgi kraumaði þó óánægja í hans garð vegna ummæla tengdum Klausturmálinu undir sléttu yfirborðinu.
Þing­flokkur Mið­flokks­ins á síð­asta kjör­tíma­bili, þegar allt virt­ist leika í lyndi á yfir­borð­inu. Samkvæmt Birgi kraum­aði þó óánægja í hans garð vegna ummæla tengdum Klaust­ur­mál­inu undir sléttu yfir­borð­inu.

Á síð­asta kjör­tíma­bili var hann fyrsti flutn­ings­maður nokk­urra frum­varpa sem urðu ekki að lögum. Það fyrsta, sem síðar var lagt fram tví­vegis til við­bótar, fjall­aði um notkun íslenska þjóð­fán­ans á bygg­ingum og var stutt af öllum þing­flokki Mið­flokks­ins. Í frum­varp­inu var lagt til að flaggað yrði alla daga árs­ins frá klukkan átta að morgni til klukkan 21 að kvöldi á bygg­ingum hinna þriggja arma rík­is­valds­ins auk bygg­inga emb­ættis for­seta Íslands, það er við for­seta­setrið á Bessa­stöðum og skrif­stofu for­seta á Sól­eyj­ar­götu. Auk þess var lagt til að fán­inn yrði lýstur upp í skamm­deg­inu.

Málið náði aldrei í gegnum þingið.

Klausturmálið andstætt kristilegum gildum

Rúmu ári eftir að Birgir var kjör­inn á þing kom hið svo­kall­aða Klaust­ur­mál upp. Það sner­ist um fram­ferði sex þing­manna, fjög­urra úr Mið­flokki og tveggja úr Flokki fólks­ins, á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber 2018. Þar ræddi hluti hóps­ins, þeir Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór Ólason, meðal ann­ars með kyn­ferð­is­legum og niðr­andi hætti um þing­konur og einn ráð­herra. Tal fólks­ins var tekið upp af öðrum gesti á staðnum og komið til fjöl­miðla.

Birgir ræddi málið í Silfrinu sunnu­dag­inn 9. des­em­ber, nokkrum dögum eftir að fyrstu fréttir um málið birt­ust. Þar sagði hann meðal ann­ars að fram­ferði sex­menn­ing­anna væri and­stætt kristi­legum gildum. Þeir þing­menn hans sem tóku þátt í sam­sæt­inu á Klaustri þyrftu að gera það upp við sig hvort þeir segi af sér eða ekki eftir sam­tal við sína nán­ustu og gras­rót flokks­ins.

Birgir gerði þó grein­ar­mun á þeim sem sögðu þá hluti sem fjöl­miðlar höfðu greint ítar­lega frá og þeim sem þögðu, og gripu ekki inn í. Í síð­ar­nefnda hóp­inn féll meðal ann­ars for­mað­ur­inn Sig­mundur Davíð.

Með hnút í maganum fyrir þingflokksfundi

Þegar Birgir rök­studdi vista­skipti sín úr Mið­flokknum yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu á laug­ar­dag sagði hann að traust milli hans og for­ystu flokks­ins væri brostið og að sú staða ætti rætur að rekja allt aftur til Klaust­ur­máls­ins. „Eins og kunn­ugt er gagn­rýndi ég málið opin­ber­lega og við­brögð þeirra sem í hlut áttu. Ég gat þess jafn­framt að ég óskaði engum þess að vera þol­andi eða ger­andi í máli sem skók þjóð­ina dögum saman og enn er minnst á í fjöl­miðl­um. Að baki standa fjöl­skyldur sem hafa átt erfitt vegna máls­ins. Ég gagn­rýndi sam­flokks­menn mína sem í hlut áttu vegna þess að heil­indi við eigin sam­visku og sú ábyrgð að breyta rétt í þjón­ustu við kjós­endur er fyrsta skylda þing­manna. Eftir gagn­rýni mína á Klaust­ur­málið naut ég aldrei fulls trausts innan hóps­ins og um tíma var bein­línis litið svo á að ég væri vanda­mál­ið.“

Lýsingar Birgis á afleið­ingum þess, sem hann opin­ber­aði í við­tali á Rás 2 í morgun, bera með sér að hann hafi upp­lifað ein­elti úr höndum ann­arra þing­manna Mið­flokks­ins eftir að hafa gagn­rýnt þá fyrir klám­fengið og niðr­andi tal um aðra þing­menn í því máli, að hann hafi verið sér­stak­lega verið tek­inn fyrir á þing­flokks­fundum og fyrir vikið hafi hann verið með hnút í mag­anum fyrir þá. „Ég var vanda­málið, ekki þeir.“

Ræðukóngur þrjú ár í röð

Það var þó ekki sýni­legt að Birgir væri utan­gátta í Mið­flokknum þrátt fyrir gagn­rýni hans á sam­flokks­menn sína. Eftir skamm­vinna dýfu í skoð­ana­könn­unum framan af árinu 2019 náði flokk­ur­inn um tíma vopnum sínum á ný með skipu­lögðu mál­þófi í tveimur málum, fyrst til að hindra frum­varp sem heim­il­aði eig­endur eft­ir­stand­andi aflandskrónu­eig­endum að fara með þær úr landi, og síðan í hinu svo­kall­aða orku­pakka­máli.

Í síð­ar­nefnda mál­inu voru raunar öll met slegin. Málþóf Mið­flokks­manna gegn þriðja orku­pakk­anum end­aði með því að verða lengsta umræða íslenskrar þing­sögu, en hún stóð yfir í um 150 klukku­stundir. Hún skil­aði ekki beinum árangri, þar sem málið var sam­þykkt í þing­inu. Óbeinu áhrifin voru þó aug­ljós. Orku­pakka­málið tröll­reið allt í einu sam­fé­lag­inu, mót­mæli voru haldin, þrýsti­hópar stofn­aðir og und­ir­skriftum safnað. Samhliða rauk Mið­flokk­ur­inn aftur upp í fylgi. Þeir ráð­herrar sem báru ábyrgð á fram­gangi máls­ins, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, koma báðir úr Sjálf­stæð­is­flokknum.

Miðflokkurinn setti Íslandsmet í málþófi í umræðum um orkupakkamálið. Hér sést þingflokkurinn á næturfundi í maí 2019 á meðan að sú aðgerð stóð sem hæst.
Mið­flokk­ur­inn setti Íslands­met í mál­þófi í umræðum um orku­pakka­málið. Hér sést þing­flokk­ur­inn á næt­ur­fundi í maí 2019 á meðan að sú aðgerð stóð sem hæst.

Birgir Þór­ar­ins­son, nýr flokks­fé­lagið þeirra, var lyk­il­maður í þess­ari veg­ferð, sem í raun hélt þing­inu í gísl­ingu vikum saman og kom í veg fyrir afgreiðslu fjölda ann­arra mála sem komust ekki á dag­skrá vegna mál­þófs­ins.

Birgir er reyndar ekki óvanur því að eyða löngum stundum í ræðupúlti Alþingis. Hann var ræðu­kóngur Alþingis síð­ast­liðin þrjú ár. Öll þau ár tal­aði hann í heild í meira en sól­ar­hring á hverju þingi. Á síð­asta þingi lið­ins kjör­tíma­bils flutti Birgir alls 324 ræður.

Vildi telja konur af því að rjúfa meðgöngu með styrk

Birgir vakti líka tölu­verða athygli fyrir skoð­anir sínar á þung­un­ar­rofi á síð­asta kjör­tíma­bili. Strax haustið 2018 var hann fyrsti flutn­ings­maður frum­varps tíu þing­manna um fæð­ing­ar­styrk til kvenna sem gefa börn til ætt­leið­ing­ar við fæð­ingu. Yrði það að lög­um áttu mæð­urnar að fá fæð­ing­ar­styrk í sex mán­uði upp á 135.525 krónur á mán­uði. Samkvæmt grein­ar­gerð var til­gangur frum­varps­ins „að styðja konur sem taka ákvörðun um að gefa barn sitt til ætt­leið­ingar við fæð­ingu“ en letja þær frá því að rjúfa með­göngu. Frum­varpið var ekki afgreitt sem lög.

Birgir lét einnig til sín taka í umræðum um frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um þung­un­ar­rof sem var á end­anum afgreitt sem lög 13. maí 2019. Samkvæmt frum­varp­inu varð þung­un­ar­rof heim­ilt fram á 22. viku með­göngu, óháð því hvaða ástæður lægju þar að baki. Áður var það ein­ungis heim­ilt til loka 16. viku en eftir það við vissar til­greindar aðstæður.

Í ræðu sem Birgir flutti 2. maí 2019 gerði hann sér­staka athuga­semd við notkun á hug­tak­inu þung­un­ar­rof, og vildi halda sig við hug­takið fóst­ur­eyð­ing. „Það verður að segj­ast eins og er að með þessu nýja hug­taki er fók­us­inn tekin frá fóstr­inu og færður alfarið yfir á móð­ur­ina. Má spyrja sig hvort verið sé að gera lítið úr líf­inu sem kviknað hefur í móð­ur­kviði. Hér er á ferð­inni hug­tak sem gefur til­efni til að ætla að verið sé að milda það sem raun­veru­lega er að ger­ast. Verið er að binda endi á líf, það er óum­deilt.“

Þegar frum­varpið var sam­þykkt var Birgir einn þeirra 18 þing­manna sem greiddi atkvæði gegn því. Í ræðu sinni um atkvæða­greiðsl­una sagði hann meðal ann­ars: „Það á ekki að vera hlut­verk stjórn­valda að rýmka svo mikið heim­ildir til fóst­ur­eyð­inga. Málið er umdeilt og við­kvæmt. Það á að vera hlut­verk stjórn­valda að tryggja bestu fáan­legu mæðra­vernd og efna­hags­legar og félags­legar aðstæður sem hvetja konur til að standa með líf­inu sem guð gaf og hefur heitið okkur að blessa. Ég er á móti þessu frum­varpi.“

Birgir gagn­rýndi Sjálf­stæð­is­flokk­inn sér­stak­lega fyrir sína aðkomu að mál­inu í ræðum sínum.

Taldi skipulega afkristnun vera öfugþróun

Kristin gildi hafa verið Birgi hug­leikin og áber­andi í mál­flutn­ingi hans frá því að hann sett­ist á þing. Í nýárs­ræðu sem hann flutti í Sel­tjarn­ar­nes­kirkju á fyrsta degi árs­ins 2020 sagði Birgir meðal ann­ars það vera áhyggju­efni að hans dómi „að hér á landi hefur gætt ákveð­innar til­hneig­ingar til skipu­legrar afkristn­unar síð­ustu árin. Árið 2008 var hætt að kenna krist­in­fræði sem sér­stakt fag í skólum lands­ins. Fyr­ir­mælin komu frá þáver­andi mennta­mála­ráð­herra. Árið 2011 bann­aði Reykja­vík­ur­borg Gíd­eon­fé­lag­inu að dreifa Nýja testa­ment­inu í skólum borg­ar­innar, sem það hafði gert allar götur síðan 1954. Þessari öfug­þróun hefur verið stjórnað af háværum minni­hluta. Hér þarf að snúa við blað­inu.“

Síðar í sömu ræðu sagði hann: „Kristin trú hefur verið mót­andi afl í íslensku þjóð­lífi.

Saga og menn­ing þjóð­ar­innar verður ekki á nokkurn hátt skilin án þekk­ingar á krist­inni trú, sið­gæði og sögu krist­innar kirkju.“

Vildi auka veg kristinfræði í grunnskólum

Um ári síðar var Birgir svo fyrsti flutn­ings­maður frum­varps um að auka veg krist­in­fræði­kennslu í grunn­skólum lands­ins sem mælt var fyrir í febr­úar á þessu ári en sofn­aði síðar í nefnd. Í grein­­ar­­gerð­ sem fylgdi frum­varp­inu sagð­ist að eðli­­legt hlyti að telj­­ast að fjallað væri ítar­­leg­­ast um þau trú­­ar­brögð sem ríkj­andi séu í sam­­fé­lag­inu. „Þekk­ing á kristni og Bibl­í­unni er for­­senda skiln­ings á vest­rænni menn­ingu og sam­­fé­lagi. Þekk­ing á eigin trú er for­­senda til skiln­ings á trú ann­­arra og leið til umburð­­ar­­lynd­­is. Skól­­anum er ætlað að miðla grund­vall­­ar­­gildum þjóð­­fé­lags­ins, sem hér á landi eru byggð á kristnum rót­­um. Fræðsla í kristnum fræð­um, sið­fræði og trú­­ar­bragða­fræði miðlar nem­endum þekk­ingu á eigin rót­u­m.“

Ef frum­varpið hefði orðið að lögum yrði kennslan eins og var fyrir gild­is­­töku grunn­­skóla­laga frá árinu 2008, sem felldu hana nið­­ur. Þing­­menn­irnir sem stóðu að frum­varp­inu vildu að heiti náms­­grein­­ar­innar trú­­ar­bragða­fræði yrði breytt í krist­in­fræði og trú­­ar­bragða­fræði og töldu að nám á því sviði væri mik­il­vægt til skiln­ings, umburð­­ar­­lyndis og víð­­sýni. „Nem­endur verða að vera búnir undir að lifa í fjöl­breyttu lýð­ræð­is­­legu sam­­fé­lagi og takast á við marg­vís­­leg úrlausn­­ar­efni sem þeirra bíða í breyttum heim­i,“ sagði í grein­­ar­­gerð sem fylgir frum­varp­in­u.

Á meðal þeirra raka sem þing­­menn­irnir not­uðu til að rök­­styðja þörf­ina fyrir aukna áherslu á krist­in­fræð­i­­kennslu í skólum var að hér á landi fari inn­­flytj­endum sem komi frá ólíkum menn­ing­­ar­heimum fjölg­andi. Það auki að mati þing­­mann­anna kröfur um umburð­­ar­­lyndi og gagn­­kvæma virð­ingu. „Með vax­andi fjölgun íslenskra rík­­is­­borg­­ara sem eru af erlendu bergi brotnir eykst nauð­­syn þess að brjóta niður múra á milli menn­ing­­ar­heilda og trú­­ar­hópa og auka þar með umburð­­ar­­lyndi. Slíkt er best gert með sér­­stakri fræðslu um ríkj­andi trú lands­ins, kristni, og almennri fræðslu um trú­­ar­brögð heims­ins og þar með menn­ingu og siði þjóða og þjóð­­ar­brota. Til að slík fræðsla verði að gagni og nái að stuðla að alhliða þroska nem­enda og virkri þátt­­töku þeirra í lýð­ræð­is­­þjóð­­fé­lagi þarf hún að ná til allra.”

Taldi mikilvægt að flóttamenn sem hingað komi séu kristnir

Í ræð­unni sem Birgir flutti í Sel­tjarn­ar­nes­kirkju í byrjun árs 2020, og minnst var hér á undan, fjall­aði hann einnig um flótta­menn. Þar sagði hann mjög lít­inn hluta þeirra flótta­manna sem hingað koma vera krist­innar trúar þrátt fyrir „þá stað­reynd að kristnir er sá trú­ar­hópur í heim­inum sem mest verður fyrir barð­inu á ofsóknum. [...] Samkvæmt tölum Sam­ein­uðu þjóð­anna falla hund­ruð krist­inna í hverjum mán­uði af völdum ofsókna. Talið er að 245 millj­ónir krist­inna manna sæti alvar­legum ofsóknum vegna trúar sinnar, en ríf­lega fjögur þús­und létu lífið á síð­asta ári af þeim sökum. 80 pró­sent allra trú­ar­of­sókna í heim­inum bein­ast gegn kristnu fólki.“

Birgir taldi að Íslend­ingar ættu að vera í far­ar­broddi þegar kæmi að því að gagn­rýna ofsóknir gegn kristnu fólki í heim­inum. „Þegar kemur að mót­töku kvótaflótta­manna hingað til lands tel ég veiga­mikil rök fyrir því að þeir séu kristnir. Auk þess eiga kristnir flótta­menn auð­veld­ara með að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi, siðum okkar og venjum.“

Hann gagn­rýndi einnig Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, dóms­mála­ráð­herra og nú sam­flokks­konu hans, fyrir að hafa lýst yfir áhuga á aðskiln­aði ríkis og kirkju. Birgir taldi enga þörf fyrir þá umræðu.

Vildi að biskup yrði áfram embættismaður

Í sumar lagði Birgir svo fram breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp til laga um þjóð­kirkj­una þar sem hann vildi bæta við ákvæði um að biskup Íslands verði áfram emb­ætt­is­mað­ur, en ekki starfs­mað­ur, líkt og frum­varpið gerði ráð fyr­ir.

Í breyt­ing­ar­til­lögu Birgis var lagt til að eft­ir­far­andi setn­ingu yrði bætt við 10. grein frum­varps­ins: „Biskup Íslands gegnir æðsta emb­ætti þjóð­kirkj­unnar og fer með yfir­stjórn hennar eftir því sem kirkju­þing mælir nánar fyrir um.“

Í grein­ar­gerð sem fylgdi breyt­ing­ar­til­lög­unni sagði Birgir að emb­ætti bisk­ups væri elsta emb­ætti Íslands sem haldi hefur frá upp­hafi. „Saga og hefðir eru dýr­mætar eignir sér­hvers sam­fé­lags, rétt eins og menn­ing þess. Hug­takið emb­ætti í kirkj­unni hefur sér­staka merk­ingu sem bygg­ist á guð­fræði henn­ar. Almennt séð er hug­takið í kirkju­legu sam­hengi fyrst og fremst tengt þjón­ustu, ábyrgð, umsjón og for­ystu, rétt eins og ann­ars staðar þar sem það kemur fyrir og er að því leyti ótengt kirkj­unni. Starf er aftur á móti fyrst og fremst fram­kvæmd verk­efna sem aðrir fela starfs­fólki að sinna.“

Erna Bjarnadóttir, sem sat í öðru sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi í nýliðnum kosningum, ætlar ekki að fylgja Birgi yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Hann segir Ernu hafa upphaflega ætlað að gera það en svo snúist hugur.
Erna Bjarna­dóttir, sem sat í öðru sæti á lista Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi í nýliðnum kosn­ingum, ætlar ekki að fylgja Birgi yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann segir Ernu hafa upp­haf­lega ætlað að gera það en svo snú­ist hugur.

Birgir sagði að það megi álykta að ákveðin grund­vall­ar­breyt­ing myndi verða á hlut­verki bisk­ups kirkj­unnar með því að fella niður hug­takið emb­ætti bisk­ups og breyta því í starf bisk­ups eins og frum­varpið gerði ráð fyr­ir. „Ætla má að ábyrgð bisk­ups til and­legrar for­ystu í kirkj­unni og umsjón­ar­skylda bisk­ups gagn­vart kenn­ingu og siðum hennar hafi þá ekki lengur þann styrk sem bisk­ups­emb­ættið hefur haft í kirkj­unni allt frá frum­kirkj­unni og í sam­hengi Íslands í meira en þús­und ár.“

Ekki var tekið til­lit til breyt­ing­ar­til­lögu Birgis en frum­varpið varð að lögum 13. júní síð­ast­lið­inn.

Hrósaði Duterte fyrir árangurinn

Birgir var líka dug­legur fyr­ir­spyrj­andi sem þing­maður og spurði meðal ann­ars mikið út í mál­efni fjár­mála­kerf­is­ins. Þar má nefna fyr­ir­spurnir sem snúa að losun á eign­ar­haldi íslenskra rík­is­ins á Arion banka, um vog­un­ar­sjóði sem áttu eign­ar­hluti í íslenska fjár­mála­kerf­inu og nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans.

En einn eft­ir­minni­leg­asta ræða Birgis á kjör­tíma­bil­inu var flutt í apríl 2019. Þar fagn­aði Birgir þeim árangri sem rík­is­stjórn Rodrigo Duterte á Fil­ipps­eyjum hafði náð í stríði sínu gegn fíkni­efnum og glæpa­hringjum. „Árang­ur­inn af aðgerðum stjórn­valda er mik­ill og í flestum borgum lands­ins hefur glæpa­tíðni minnkað á bil­inu 40 til 70 pró­sent,“ sagði Birgir í ræð­unni. til­efnið var að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafði gagn­rýnt stjórn­völd á Fil­ipps­eyjum fyrir mann­rétt­inda­brot á vett­vangi Mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna, en þús­undir höfðu þá verið drepnir í her­ferð Duterte gegn glæpa­hringjum á tæpum þremur árum.

Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, er afar umdeildur maður, sérstaklega fyrir stríð hans gegn fíkniefnum í landinu.
Rodrigo Duterte, for­seti Fil­ipps­eyja, er afar umdeildur maður, sér­stak­lega fyrir stríð hans gegn fíkni­efnum í land­inu.

Birgir sagði málið snú­ast um stríð gegn eit­ur­lyfjum þar í landi og að stjórn Duterte hefði verið sökuð um dráp á borg­urum án dóms og laga. „Ekki er þó allt sem sýn­ist í þessum og mikið af fals­fréttum hefur verið dreift sem eru fjár­magn­aðar af eit­ur­lyfja­hringjum á Fil­ipps­eyjum og settar fram í þeim til­gangi að sverta stjórn­völd.“

Nokkrum vikum síðar fund­uðu á þriðja tug stuðn­ings­manna Duterte hér­lendis með Birgi á skrif­stofum nefnd­ar­sviðs Alþingis um áhyggjur sínar af ályktun Íslands í Mann­réttinda­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa brugðist

Í þessum anda var Birgir einnig á móti frum­varpi um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta fíkni­efna. Í ræðu sem hann flutti fyrr á þessu ári sagði hann frum­varpið slæmt og að það sendi „slæm skila­boð út í sam­fé­lagið með því að lög­leiða neyslu­skammta af fíkni­efnum, neyslu­skammta sem ólög­legt er að flytja inn í landið og ólög­legt er að selja. Með þessu frum­varpi er verið að skapa meira vanda­mál en við lag­færum.“

Aug­lýs­ing Mið­flokks­ins, með Birgi í aðal­hlut­verki, frá því í maí síð­ast­liðnum.

Í ræð­unni, sem flutt var í apríl 2021, sagði Birgir enn fremur um Sjálf­stæð­is­flokk­inn að hann hafi eitt sinn verið íhalds­flokkur sem stóð vörð um lög og reglu í land­inu. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur brugð­ist í þessu máli eins og svo mörgum öðrum, herra for­seti, rétt eins og hann brást í fóst­ur­eyð­inga­mál­inu, flokkur sem eitt sinn barð­ist gegn fóst­ur­eyð­ingum,“ sagði Birgir Þór­ar­ins­son.

Núna, tæpum sex mán­uðum síðar, er hann geng­inn í þann flokk sem honum fannst bregð­ast svo illa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár