Miðflokkurinn beitir málþófi gegn aflandskrónufrumvarpi

Seðla­banki Íslands hefur miklar áhyggjur af því að lausar aflandskrónur auk­ist um 25 millj­arða á morgun verði frum­varp sem er nú til umræðu ekki sam­þykkt. Hörð átök voru um málið á þingi í dag þar sem Mið­flokk­ur­inn beitir mál­þófi.

Mið­flokk­ur­inn stendur nú fyrir mál­þófi til að hindra að frum­varp sem heim­ilar eig­endum eft­ir­stand­andi aflandskrónu­eigna að fara með þær úr landi, að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum, verði að veru­leika.

Frum­varpið, verði það að lögum, mun heim­ila Seðla­bank­anum að beita þrenns konar heim­ildum við losun aflandskrónu­eigna og felur auk þess í sér breyt­ingar á bráða­birgða­á­kvæði laga um gjald­eyr­is­mál sem varðar reglur um bind­inu reiðu­fjár vegna nýs inn­streymis erlends gjald­eyris.

Seðla­banki Íslands skil­aði efna­hags- og við­skipta­nefnd umsögn um málið fyrir skemmstu. Þar kom meðal ann­ars fram að mik­il­vægt yrði að frum­varpið yrði að lögum fyrir 26. febr­úar, sem er í dag. Ástæðan væri sú að þá væri gjald­dagi til­tek­ins flokks rík­is­bréfa. Ef frum­varpið yrði ekki afgreitt fyrir þann tíma myndi umfang aflandskrónu­eigna í lausu fé aukast um næstum 70 pró­sent eða um 25 millj­arða króna.

Í umsögn Seðla­banka Íslands sagði enn fremur: „Við það eykst hætta á að stórir aflandskrónu­eig­endur, sem átt hafa sín bréf í sam­felldu eign­ar­haldi frá því fyrir höft og taldir hafa verið lík­legir til að end­ur­fjár­festa í íslenskum skulda­bréfum þegar þeirra bréf koma á gjald­daga þann 26. febr­úar muni í stað þess leita út þegar þeir losna af bundnum reikn­ingum. Það mun hafa tvenns konar áhrif. Í fyrsta lagi mun Seðla­bank­inn þurfa að eyða mun meiri forða til að koma í veg fyrir geng­is­fall í tengslum við losun aflandskróna. Í öðru lagi mun draga meira úr fram­boði erlends fjár á inn­lendum skulda­bréfa­mark­aði en reiknað var með þegar frum­varpið var samið. Mark­aðs­að­ilar hafa kvartað undan skorti á slíku fram­boði í tengslum við bind­ingu fjár­magns­streymis inn á skulda­bréfa­markað.“

Öll nefndin nema einn studdi álitið, sá var lasinn

Efnahags- og við­skipta­nefnd afgreiddi málið með sam­þykki allra mættra nefnd­ar­manna 21. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þeir komu úr Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn, Pírötum, Vinstri grænum, Sam­fylk­ingu og Fram­sókn­ar­flokki. Einn nefnd­ar­maður, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins, var fjar­ver­andi við afgreiðslu nefnd­ar­innar.

Þegar Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, mælti fyrir nefnd­ar­á­lit­inu skömmu eftir klukkan 15 í dag var þegar ljóst að Mið­flokk­ur­inn ætl­aði að stilla sér upp gegn því. Allir þing­menn flokks­ins höfðu skráð sig á mæl­enda­skrá. Síðan þá hafa þeir tekið aftur og aftur til máls.

Fyrstur þeirra í pontu steig Sig­mundur Davíð og sagð­ist hafa verið las­inn þegar nefnd­ar­á­litið var sam­þykkt. Hann sagði að það breytti því þó ekki að hann teldi ekki hafa komið til greina að kvitta upp á það. „Mér þykir reyndar heldur óvið­ur­kvæmi­legt að Seðla­banki Íslands skuli setja þing­inu hálf­gerða afar­kosti um að afgreiða eigi þetta mál í dag, ella geti eitt­hvað mjög óljóst gerst. Skýr­ingar bank­ans á því finn­ast mér ekki alveg trú­verð­ugar. Þar er gefið til kynna að núna, loks­ins þegar ákveðnir eig­endur skulda­bréfa séu búnir að vera lok­aðir inni í höftum í 10 ár, muni þeir gjarnan vilja vera áfram bara ef þeir fái að end­ur­nýja skulda­bréfin á þessum til­tekna degi. Og svo fæ ég ekki betur séð en að á sama stað komi fram það álit Seðla­bank­ans að mark­aðs­að­ilar hafi af því áhyggjur að lítil ásókn erlendra fjár­festa sé í íslenskum skulda­bréfa­mark­aði nú um stundir, en dregur samt þá ályktun að það hljóti helst að vera þeir sem eru búnir að brenna sig verst og vera hér í 10 ár, sem muni hafa áhuga á að fjár­festa í inn­lendum skulda­bréfa­mark­aði. Ég fæ þetta ekki alveg til að ganga upp, þessar skýr­ingar Seðla­bank­ans.“

Smári spyr Sigmund Davíð

Hitna tók í kol­unum þegar Smári McCarthy, þing­maður Pírata, tók til máls. Hann sagð­ist sýn­ast sem svo af mæl­enda­skrá að Mið­flokk­ur­inn væri að skipa sér í mál­þófs­gír til þess að tefja afgreiðslu máls­ins. „Þá fer maður að velta fyrir sér hver til­gang­ur­inn er. Í tíundu grein siða­reglna Alþingis segir, með leyfi for­seta, þing­menn skulu þar sem við á vekja athygli á per­sónu­legum hags­munum sínum þar sem máli skiptir við með­ferð þing­mála.“

Í kjöl­farið beindi Smári þeirri spurn­ingu til Sig­mundar Davíðs hvort að hann hefði nú „eins og hann hafði nú hér fyrir nokkrum árum, eins og alþjóð veit, per­sónu­lega hags­muni sem tengj­ast með­ferð þessa þing­máls. Og ef svo er ekki þá langar mig til þess að spyrja í þágu hvaða mark­miða eða hags­muna­að­ila það er sem Mið­flokk­ur­inn er nú að reyna að tefja fram­göngu þessa máls?“

Sig­mundur Davíð tók fyr­ir­spurn­inni ekki vel. „Því virð­ast fá tak­mörk sett hversu fram­ganga Pírata getur verið ógeð­felld á þessu Alþingi. Og ég held að það sé orðið löngu tíma­bært að siða­nefnd fari að fjalla um Pírata og hvernig þeir starfa, ekki bara ein­eltiskúlt­ur­inn innan þeirra raða heldur líka fram­komu þeirra við aðra þing­menn.“

Sig­mundur Davíð sagði for­sendur spurn­ingar Smára vera frá­leitar. Mat Seðla­banka Íslands á mál­inu væri rök­leysa. „Ef að höft­unum er ekki aflétt og menn taka aftur upp þráð­inn þar sem frá var horfið þá geta vog­un­ar­sjóðir ekki hreyft sig. Þá sitja þeir áfram fastir. Ég hef sann­ar­lega engra hags­muna að gæta hjá vog­un­ar­sjóðum eins og hátt­virtur þing­maður á að geta gert sér grein fyrir. En ég ítreka það að mér finnst fram­ganga Pírata hér á Alþingi und­an­farnar vikur og und­an­farna mán­uði, og reyndar í kannski dálítið mörg ár, vera fyrir neðan allar hellur.“

Wintris, meiðyrði og siðanefnd

Smári kom aftur í pontu og sagði spurn­ing sín væri rétt­mæt og óskaði eftir þvi að Sig­mundur Davíð svar­aði henni efn­is­lega. „Það muna svo sem allir eftir því að sá maður sem tal­aði mest um hræga­manna hér um árið reynd­ist vera einn þeirra sjálfur.“

Smári sagði að Sig­mundur Davíð hefði meira að segja við­ur­kennt það í blaða­við­tali að það hefðu verið tengsl á milli aflands­fé­lags sem hafði verið í hans eigu, Wintris, og aflandskrónu­eigna. „Nú veit ég ekki hver staðan er á aflandskrónu­eignum eða fyr­ir­tæk­inu Wintris í dag[...]En það er eðli­legt, og það eru ekki ein­elt­istil­burðir að spyrja þegar þekkt er að þing­menn hafi ein­hver tengsl, eða hafi haft ein­hver tengsl í for­tíð­inni við ákveðin mál að spyrja hvort þau tengsl séu enn til staðar.“

Það væri sér í lagi mik­il­vægt þegar það skap­að­ist ein­hver vafi á því hvort að áhætta væri á því hvort að hagn­að­ar­tæki­færi gæti skap­ast fyrir aflandskrónu­eig­endur ef áður­nefndur skulda­bréfa­flokkur fengi að renna út, líkt og hann gerir í dag. „Þá er eðli­legt að spyrja úr því að Mið­flokk­ur­inn er kom­inn í þennan mál­þófs­gír: Fyrir hvern? Hver græðir?“

Sig­mundur Davíð kom aftur í and­svar og sagði: „Þing­mað­ur­inn sem tal­aði hér á undan mér gerð­ist sekur um meið­yrði. Hann laug og lagði sig fram við það að reyna að stimpla inn ógeð­fellda mynd sem hann, og allt of margir félagar hans hafa reynt á und­an­förnum árum að við­halda og koma inn hjá fólki. Ég hef aldrei haft nein tengsl við nokkra hrægamma­sjóði og það hafa engir ætt­ingjar mínir gert heldur. Konan mín að vísu tap­aði pen­ingum sem hún átti inní banka þegar þeir hrundu og gaf megn­inu af því eftir eins og aðrir sem töp­uðu á hrun­inu.“ Sig­mundur Davíð sagði að fram­ganga Smára setti fram­göngu Pírata í þing­inu í nýjar lægðir að hans mati. „Fyrir utan það að kenn­ingin hans er svo arfa­vit­laus. Að búa til sam­sær­is­kenn­ingu um það að það að koma í veg fyrir að harð­skeytt­ustu vog­un­ar­sjóð­irnir séu los­aðir úr höftum ein­hliða að hálfu rík­is­ins, að með því móti sé á ein­hvern hátt verið að ganga gegn hags­munum rík­is­ins. Hvers konar ein­dæmis della er þetta og hvað eigum við að þola mikið meira af þessu frá þing­mönnum Pírata? Ég held að minnsta kosti í þessu til­viki sé fullt til­efni til þess að vísa fram­göngu þing­manns­ins til siða­nefndar.“

Málþóf Mið­flokks­ins stendur enn yfir þegar þessi frétta­skýr­ing er birt. Hægt er að fylgj­ast með því hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár