Það sem gerðist árið 2017: Staðfest að Wintris greiddi ekki skatta í samræmi við lög

Í úrskurði yfir­skatta­nefndar var stað­fest að aflands­fé­lag fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra greiddi ekki skatta í sam­ræmi við lög og reglur á Íslandi. Þar var einnig stað­fest að óskað var eftir því að skatt­fram­töl Wintris yrðu leið­rétt mörg ár aftur í tím­ann.

Hvað gerðist?

Afland­fé­lagið Wintris varð eitt fræg­asta slíka félagið í heim­inum vorið 2016 þegar upp­lýst var um það í umfjöllun um Panama­skjölin að það hefði verið í eigu þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra íslensku þjóð­ar­innar, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, og eig­in­konu hans, Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Enn fremur var upp­lýst að félagið hefði verið kröfu­hafi í bú föllnu bank­anna og að inni í því væru geymdar eignir upp á á annan millj­arð króna. Sig­mundur Davíð hafði ekki upp­lýst um til­vist félags­ins í hags­muna­skrán­ingu og laug þegar hann var spurður um það í frægu við­tali sem fór eins og eldur í sinu um heim­inn í apríl 2016. Afleið­ing­arnar urðu þær að fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar fór fram og Sig­mundur Davíð neydd­ist til að segja af sér sem for­sæt­is­ráð­herra. Sig­mundur Davíð og Anna Sig­ur­laug hafa alla tíð haldið því fram að allir skattar hafi verið greiddir af eignum Wintris.

Í sept­em­ber 2017 birt­ist úrskurður yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna opin­ber­lega. Í honum kom fram að þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl hjón­anna fyrir árin 2011 til 2015 yrðu leið­rétt. Í bréf­inu sagði umboðs­mað­ur­inn orð­rétt að ekki væri „úti­lokað að rétt­ara hefði verið að haga skatt­skilum kærenda gjald­árið 2011 og síðar eftir efni 57. gr. a laga nr. 90/2003, sbr. 3. gr. laga nr. 46/2009, og reglu­gerðar nr. 1102/2013, um skatt­lagn­ingu vegna eign­ar­halds í lög­að­ilum á lág­skatta­svæðum (CFC-­regl­u­m). Væru skatt­stofnar kærenda gjald­árin 2011 til og með 2016 því leiddir fram í erind­inu í sam­ræmi við fram­an­greindar regl­ur.“

Þetta þýðir, til ein­föld­unar, að end­ur­skoð­andi þeirra hjóna sendi bréf á skatt­yf­ir­valda þar sem hann til­kynnti þeim að hjónin hafi ekki gert upp í sam­ræmi við lög og regl­ur. Þetta þarf ekki að vera refsi­verð hátt­semi.

Þetta bréf í maí 2016 leiddi til þess að rík­is­skatt­stjóri ákvað að end­ur­á­kvarða auð­legð­ar­skatt sem hjónin greiddu vegna áranna 2011 til 2014, að emb­ættið end­ur­mat hagnað vegna tekju­árs­ins 2010 og ákvað að hækka stofn til tekju­skatts og útsvars hjá eig­in­konu Sig­mundar Dav­íðs. Sam­hliða lækk­aði hann skatt­greiðslur á Sig­mund Davíð sjálf­an.

Öllu ofan­greindu una hjónin og geng­ust þar með við því að hafa ekki talið rétt fram um ára­bil. Vegna þessa hækk­uðu skatt­greiðslur þeirra um upp­hæð sem ekki hefur komið fram.

Í aðdrag­anda þess að þau til­kynntu rík­is­skatt­stjóra um það að þau hefðu ekki talið rétt fram þá létu hjónin gera árs­reikn­inga fyrir Wintris nokkur ár aftur í tím­ann. Þau ákváðu að hafa þessa árs­reikn­inga í íslenskum krónum. Þetta gerði þeim kleift að telja fram geng­is­tap vegna sveiflna á gengi íslensku krón­unn­ar, sem átti að nýt­ast sem upp­safnað tap gegn fram­tíðar skatt­greiðsl­um. Rík­is­skatt­stjóri taldi þetta ekki stand­ast lög og hafn­aði þessum breytta útreikn­ingi á geng­is­hagn­aði síð­ustu ára. Hann end­ur­á­kvarð­aði síðan á hjónin og þau greiddu þær við­bótar skatt­greiðsl­ur.

Þau sættu sig hins vegar ekki við nið­ur­stöðu rík­is­skatt­stjóra varð­andi upp­gjörs­mynt Wintris. Þann lið kærðu þau til yfir­skatta­nefnd­ar sem komst að þeirri nið­ur­stöðu 22. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að hjónin hefðu mátt gera Wintris upp í íslenskum krón­um. Því hefðu þau ofgreitt skatta vegna þessa eina álagn­ing­ar­lið­ar.

Hvaða afleiðingar hafði það?

Sig­mundur Davíð skrif­aði grein í Frétta­blaðið nokkrum dögum eftir að úrskurð­ur­inn lá fyrir, þann 2. októ­ber, þar sem hann reif­aði mál Wintris hjá rík­is­skatt­stjóra að hluta.

Í grein­inni sagði hann m.a.: „Í ljósi umræð­unnar ákváðum við þó, að eigin frum­kvæði, að senda rík­is­skatt­stjóra erindi þar sem mun ítar­legri grein var gerð fyrir umræddum eignum og tekjum af þeim en skatt­fram­tals­form gera ráð fyrir og gefa kost á. Rík­is­skatt­stjóra var boðið að end­ur­meta þá aðferð sem lögð var til grund­vallar skatt­lagn­ingu.“

Sig­mundur Davíð sagði að með­ferð rík­is­skatt­stjóra á mál­inu sýndi að engin skattaund­an­skot hafi átt sér stað þar sem ekk­ert álag sé ákvarðað á félagið eða eig­endur þess. Sig­mundur Davíð greinir þó frá því að skatt­stofn þeirra hjóna hafi verið hækk­aður eftir með­ferð rík­is­skatt­stjóra en bendir á að þau hjónin, sem séu sam­sköttuð, hafi ofgreitt skatta í fyrra í sam­ræmi við úrskurð rík­is­skatt­stjóra. Í ljósi nið­ur­stöðu yfir­skatta­nefndar myndu þau fá þær ofgreiðslur til baka.

Sig­mundur Davíð greindi ekki frá því hversu mikið hjónin þurftu að greiða í við­bót­ar­skatt í kjöl­far þess að skatt­stofn þeirra var hækk­aður af rík­is­skatt­stjóra í fyrra.

Frétta­blaðið birti for­síðu­frétt upp úr grein Sig­mundar Davíðs og var í henni lagt út frá þeim skýr­ingum sem hann setti fram, í stað þess að byggja umfjöll­un­ina á úrskurði yfir­skatta­nefndar, sem var þá þegar opin­ber á inter­net­inu.

Kjarninn birti sama morgun frétta­skýr­ingu um málið sem byggði á úrskurð­inum. Hana má lesa hér.

Þar var m.a. dregið saman að fyrir lægi að for­sæt­is­ráð­herra­hjónin fyrr­ver­andi höfðu ekki ofgreitt skatta áður en að fjöl­miðlar opin­ber­uðu Wintrismálið í fyrra­vor. Það lægi heldur ekk­ert fyrir um hversu mikla við­bót­ar­greiðslur þau greiddu vegna við­bót­ar­auð­legð­ar­skatts, end­ur­mati á hagn­aði tekju­árs­ins 2010 og hækk­unar á skatt­stofni til tekju­skatts og útsvars.

Eina sem lægi fyrir væri að hjónin ofgreiddu skatta af breyttum útreikn­ingi á geng­is­hagn­aði eftir nið­ur­stöðu rík­is­skatt­stjóra í des­em­ber síð­ast­liðn­um.

Sig­mundur Davíð brást sjálfur við þeirri frétta­skýr­ingu í stöðu­upp­færslu á Facebook í Þar beinir hann aug­ljós­lega orðum sínum til m.a. Kjarn­ans. Þar segir hann ýmsa ekki láta sig stað­reyndir máls­ins varða og bætir við orð­rétt: „Þegar allt liggur nú fyrir með form­legum hætti eru þeir hinir sömu lang­leitir mjög, skilja ekki neitt í neinu en reyna að klippa setn­ingar sundur og sam­an, snúa út úr og spinna.

Og tví­skinn­ung­ur­inn er aldrei langt und­an. Fremstir fara þeir sem öðrum fremur töl­uðu máli vog­un­ar­sjóða og menn eins og þeir sem skrif­uðu um mig grein undir fyr­ir­sögn­inni „Óvinur númer 1“ fyrir að tala fyrir skulda­leið­rétt­ingu. Já, og eru jafn­vel fjár­magn­aðir af þeim sem staðnir hafa verið að því að geyma eignir sínar í raun­veru­legum skatta­skjól­u­m.“

Daginn eftir fór Sig­mundur Davíð í við­tal við Morg­un­blaðið og sagð­ist vera að íhuga mál­sókn gegn þrem­ur ís­lensk­um fjöl­miðlum vegna um­fjöll­un­ar um fjár­mál hans og eig­in­konu hans í svo­nefndu Wintris-máli. Hann hefði yrir nokkru falið lög­fræð­ing­um að kanna grund­völl slíkr­ar mál­sókn­ar. Sig­mundur Davíð nefndi miðl­anna ekki á nafn en aug­ljóst var að hann átti við Kjarnann, Stundina og RÚV.

Sig­mundur Davíð sagði að mál­sóknin yrði að bíða fram yfir kosn­ingar þótt und­ir­bún­ings­vinnan væri hafin „Því það eru tak­mörk fyr­ir því hvað maður get­ur lengi setið und­ir hrein­um ósann­ind­um.“ Hann nefndi engin sér­tæk dæmi um ósann­indi sem hefðu verið borin á hann.

Sig­mundur Davíð fór aldrei í mál. Hann stofn­aði hins vegar stjórn­mála­flokk­inn Mið­flokk­inn og náði besta árangri sem nýtt fram­boð hefur nokkru sinni náð í þing­kosn­ing­unum þegar hann krækti í 10,9 pró­sent atkvæða og fékk sjö þing­menn kjörna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið undanfarið ár