Sjálfstæðisflokkurinn stefnir á fyrsta landsfundinn í rúm fjögur ár í nóvember

Eftir tvær frestanir vegna kórónu­veiru­faraldursins hefur Sjálfstæðis­flokkurinn nú ákveðið að næsti lands­fundur fari fram í Laugar­dalshöll dagana 4.-6. nóvember.

Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son er for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Miðstjórn Sjálfstæðis­flokksins hefur ákveðið að næsti lands­fundur flokksins fari fram í Laugar­dalshöll dagana 4.-6. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birtist á vef Sjálfstæðis­flokksins í dag, en Kjarninn sendi flokknum fyrir­spurn í morgun og óskaði stað­festingar á því að þessi helgi hefði orðið fyrir valinu á fundi miðstjórnar, eins og heimildir hermdu.

Lands­fundurinn fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna flokksins mótuð og forysta hans kjörin. Seturétt á lands­fundi eiga flokks­ráðs­fulltrúar flokksins, auk þess sem félög og fulltrúaráð Sjálfstæðis­flokksins um allt land kjósa fulltrúa til setu á fundinum.

Síðasti landsfundur í mars 2018

Fundirnir eru að jafnaði haldnir annað hvert ár, en kórónu­veiru­faraldurinn hefur staðið lands­fundahöldum fyrir þrifum og nú eru liðin rúm fjögur ár frá því að flokkurinn hélt síðasta landsfund sinn í Laugar­dals­höllinni í mars árið 2018.

Flokkurinn hefur tvívegis frestað lands­fundi sínum vegna veiru­faraldursins og samkomu­takmarkana sem stóðu því fyrir þrifum að á annað þúsund sjálfstæðis­menn gætu komið saman til skrafs og ráðgerða.

Árið 2020 stóð til að hafa fund dagana 13.-15. nóvember og árið 2021 stóð til að funda 27.-29. ágúst. Ekkert varð af því og því hélt flokkurinn til þing­kosninganna í fyrra án þess að ná að halda landsfund.

Lands­fundurinn sem haldinn verður í haust verður sá 44. í röðinni hjá Sjálfstæðis­flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár