Svandís snuprar þingmann Samfylkingarinnar fyrir að kynda undir ugg hjá foreldrum

Segir ástæðu þess að ljós­mæður fái lægri laun en hjúkr­un­ar­fræð­ingar vera val þeirra á stétt­ar­fé­lagi.

Snupraði þingmann
Snupraði þing­mann Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra snupraði í dag Guðjón Brjáns­son, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, í ræðu­stól Alþingis fyrir að vekja ugg hjá verð­andi for­eldrum. Mynd: Pressphotos

Heil­brigð­is­ráð­herra rekur mis­mun launa ljós­mæðra og hjúkr­un­ar­fræð­inga til þess að ljós­mæður hafi kosið að stétt­ar­fé­lag þeirra sé aðild­ar­fé­lag að Banda­lagi háskóla­manna á meðan að hju­kr­un­ar­fræð­ingar séu í sér­stöku stétt­ar­fé­lagi. Þá snupraði ráð­herr­ann þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir að kynda undir óör­yggi hjá for­eldrum vegna kjara­deilu ljós­mæðra.

Guðjón Brjáns­sonÞing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði kjara­deilur og upp­sagnir ljós­mæðra vekja óör­yggi meðal verð­andi for­eldra.

Guðjón Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi áðan í afstöðu hennar hvað varð­aði stöðu mála varð­andi kjara­deilu ljós­mæðra. Benti Guðjón á að 13 ljós­mæður hefðu sagt upp störfum við Land­spít­al­annn vegna óánægju með kjör sín og við­brögð við­semj­enda við kröfum þeirra. Tíðindin væru alvar­leg, ekki síst nú þegar sum­arið væri framundan en auk þess að sum­ar­leyfi standi fyrir dyrum er sum­arið sá tími sem flest börn fæð­ast á land­inu. „Þetta ástand vekur skilj­an­lega ugg  og óör­yggi meðal verð­andi mæðra og fjöl­skyldna þeirra,“ sagði Guðjón. Guðjón benti einnig á að ljós­mæður þyrftu að bæta við sig tveggja ára námi við fjög­urra ára nám í hjúkr­un­ar­fræði. Að því loknu lækk­uðu þær hins vegar í launum. Spurði Guðjón hvort ekki væri ástæða til að breyta mennta­kerfi og launa­kerfi ljós­mæðra í þessu ljósi.

Svandís svar­aði því til að hún hefði verið full­vissuð um það af hálfu for­stjóra Land­spít­al­ans að engu öryggi væri stefnt í hættu þar. „Þannig að það er engin ástæða til þess, hvorki af hátt­virtum þing­manni eða öðrum, að kynda undir ugg eða óör­yggi hjá for­eldrum.“

Þá sagð­ist Svandís þeirrar skoð­unar að meta ætti vinnu­fram­lag ljós­mæðra til launa og sam­fé­lags­legrar virð­ingar. Um væri að ræða kvenna­stétt sem sinnti konum á við­kæmum tíma í þeirra lífi og það ætti að meta að verð­leikum. Hún sagði síðan að það væri vissu­lega óvenju­leg staða að ljós­mæður lækk­uðu í launum við það að klára sitt nám en skýr­ingin væri sú að við útskrift gengju ljós­mæður úr sínu stétt­ar­fé­lagi, sem hjúkr­un­ar­fræð­ingar. „Það er auð­vitað ákvörðun sem ljós­mæður taka í sínu kjar­aum­hverfi, að vera í sér­stöku stétt­ar­fé­lagi sem er aðild­ar­fé­lag að BHM, á meðan að Félag hjúkr­un­ar­fræð­inga er sér­stakt stétt­ar­fé­lag. Það er ekki verk­efni stjórn­valda að hafa skoð­anir á slíku fyr­ir­komu­lagi, það er verk­efni aðila vinnu­mark­að­ar­ins og í þessu til­viki ljós­mæðra sjálfra hvernig þær skipa sér í stétt­ar­fé­lög.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár