Gleymið tollastríðinu - Kína er nú þegar í vandræðum

Pistla­höfundur Bloomberg, Michael Schuman, segir Kína á kafi í skulda­vanda sem ekki sé hægt að leysa svo auðveldlega.

Gleymið tolla­stríði Banda­ríkjanna og Kína, skulda­vanda síðarnefnda landsins er nú þegar orðinn mun meira áhyggju­efni heldur en tolla­stríðið.

Þetta segir Michael Schuman, pistla­höfundur Bloomberg, í pistli sem birtist á vef frétta­veitunnar í dag.

Hann bendir á að nýjar hagtölur í Kína séu ógnvekjandi fyrir hagkerfið í Kína og raunar heiminn allan.

Hagkerfið dróst saman á þriðja ársfjórðungi í fyrra um 6,5 prósent, miðað við sama tímabil árið á undan, og þá dróst bílasala í fyrra saman við við árið undan, en þær tölur komu mörgum verulega á óvart.

Hagvaxtar­skeiðið í Kína undan­farna rúmu tvo áratugi er það mesta og hraðasta sem nokkurt ríki hefur gengið í gegnum, en nú virðist vera farið verulega að hægja á, og að mati Schumann eru það skuldir - bæði fyrir­tækja og heimila - sem vekja ugg.

Tolla­stríðið sé vissulega áhrifa­mikið, en vanda­málin í Kína hafi verið löngu farin að magnast upp fyrr.

Það sem tolla­stríðið hafi gert, er að vekja stjórn­völd í Kína upp við vondan draum. Nú þurfi að taka til hendinni til að afstýra erfið­leikum.

Schuman segir að það sé líklegt, að samið verði um viðskipti milli Banda­ríkjanna og Kína á nýjan leik, en það eitt og sér sé ekki nóg til að róa fjárfesta og markaðinn, þegar kemur að því að greina hvað sé að gerast í Kína.

Fasteigna­verðhjöðnun á mörgum svæðum í landinu hefur vakið upp spurningar, og einnig hvernig áhættan er í fjármála­kerfi landsins. Þar er kínverska ríkið helsta bakbein, hvert sem litið er, en fjár­festing einka­aðila hefur þó aukist gríðar­lega hratt, samhliða 6 til 10 prósent hagvexti, á hverju ári í 20 ár.

Schuman segir að ástæða sé til þess að hafa miklar áhyggjur af því sem sé að gerast í Kína, þessi misserin.

Í Kína búa um 1,4 milljarðar manna, eða um 20 prósent af íbúum jarðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár