Auknar líkur á hröðum vaxtahækkunum í Bandaríkjunum

Líkurnar á hraðri hækkun stýri­vaxta Banda­ríkjunum hafa aukist eftir væntingar um jákvæðar vinnu­markaðs­tölur, en sérfræðingar búast nú við tæplega þriggja prósenta vöxtum fyrir lok næsta árs.

Störfum í Banda­ríkjunum gæti hafa fjölgað um allt að 490 þúsund í síðasta mánuði, eftir því sem eftir­spurn í landinu hefur aukist og kórónu­veiru­tilfellum hefur fækkað hratt. Slíkar tölur myndu gefa Seðla­banka Banda­ríkjanna tækifæri til að hækka stýri­vextina sína, en þeir gætu nálgast tveimur prósentum fyrir árslok og þremur prósentum fyrir lok ársins 2023. Þetta kemur fram í umfjöllunum Financial Times og New York Times um vinnu­markaðs­tölur fyrir marsmánuð í Banda­ríkjunum, sem koma út í dag.

Erfitt að manna stöður

Samkvæmt umfjöllununum er ekki búist við að atvinnu­þátttaka verði komin á sama stað og fyrir faraldurinn, þar sem fjöldi fólks hefur ákveðið að yfirgefa vinnu­markaðinn. Atvinnu­leysið mælist hins vegar lágt, en gert er ráð fyrir að það hafi numið 3,7 prósentum í mars.

Seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna, Jerome Powell, sagði í nýlegri ræðu að spennan á vinnu­markaði væri mjög mikil þessa stundina og enn meiri en hún var fyrir faraldurinn, þar sem erfitt hefur reynst að manna störf. Hann bætti við að tæplega tvö laus störf væru fyrir hvern starfs­mann, en samkvæmt honum er það merki um óheilbrigða framleiðslu­spennu.

Metverðbólga og vaxtahækkanir

Líkt og á öðrum Vestur­löndum hefur verðlag einnig hækkað hratt í Banda­ríkjunum, en verð­bólgan þar nam 7,9 prósentum í febrúar og hefur ekki verið jafnmikil í 40 ár. Þar vógu þungt miklar orkuverðs­hækkanir, en búist er við að þær muni verða enn meiri á næstu mánuðum vegna innrásar Rússlands í Úkraínu.

Vegna verð­bólgunnar og aukinnar framleiðslu­spennu hækkaði Seðla­banki Banda­ríkjanna stýri­vexti sína fyrir tveimur vikum síðan, en það var fyrsta vaxta­hækkun hans frá árinu 2018. Samkvæmt frétt Financial Times býst stjórnmála­fólk vestanhafs við því að stýri­vextir þar, sem eru nú á milli 0,25 prósent og 0,5 prósent, muni nálgast tveimur prósentum fyrir árslok. Fyrir lok næsta árs er svo búist við að vextirnir verði komnir upp í 2,8 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár