Árni Pétur segir af sér sem forstjóri Skeljungs

Árni Pétur Jónsson hefur sagt upp störfum sem forstjóri Skeljungs eftir að honum hafi verið tjáð að hann hafi gengið yfir mörk samstarfs­konu sinnar.

Árni Pétur Jónsson, fráfarandi forstjóri Skeljungs.
Árni Pétur Jónsson, frá­far­andi for­stjóri Skelj­ungs. Mynd: Aðsend

Árni Pétur Jónsson hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri Skeljungs. Þetta greinir hann frá í frétta­tilkynningu sem hann sendi á fjölmiðla fyrr í dag.

Í tilkynningunni segir Árni Pétur að honum hafi borist tölvu­póstur frá fyrrum samstarfs­konu hans í öðru fyrirtæki, þar sem hann var yfirmaður hennar fyrir um 17 árum síðan. „Þar greinir hún frá því að í dag upplifi hún samskipti okkar á þessum tíma með þeim hætti að ég hafi gengið yfir ákveðin mörk,“ bætir hann við.

Hann segir að konan hafi ekki sakað hann um ofbeldi, áreiti eða einhvers konar brot gegn lögum, heldur hafi verið um að ræða valda­ójafnvægi og aldursmun.

„Þrátt fyrir að ég hafi á engan hátt gerst brotlegur við lög þá átta ég mig á því að viðmið og viðhorf hafi breyst í samfélaginu og er það vel,“ segir Árni Pétur í tilkynningu sinni. „Met ég stöðuna þannig að mál þetta kunni að valda fyrir­tækinu og samstarfs­fólki óþægindum. Ég hef því óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri hjá Skeljungi hf.“

Árni Pétur var ráðinn forstjóri Skeljungs í ágúst 2019. Hann var forstjóri Teymis hf þegar það var skráð í Kauphöll Íslands auk þess sem hann starfaði sem framkvæmda­stjóri hjá Olís og Högum. Hin síðari ár hefur Árni Pétur verið forstjóri Tíu Ellefu (10-11)/Iceland Verslun (Iceland) og Basko, en seldi hlut sinn 2016.

Árni hefur setið í stjórnum ýmissa fyrir­tækja, svo sem Lyfju, Securitas, Skeljungs, Pennans, Borgunar og Eldum rétt. Þá hefur hann einnig komið að stjórnun síma­fyrir­tækisins Kall í Færeyjum og sömuleiðis hjá Bónus í Færeyjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár