Enn önnur netbyltingin skekur heimsbyggðina

Eftir að leikkonur í Hollywood stigu fram og greindu frá kynferðis­áreiti af hendi valda­mikils fram­leiðanda þar í bæ hafa samfélags­miðlar verið undir­lagðir af frásögnum kvenna hvaðanæva að undir myllu­merkinu #metoo.

Hundruðir þúsunda kvenna hafa skrifað undir myllumerkinu #metoo og lýst kynferðisáreiti eða -ofbeldi af einhverju tagi.
Hund­ruðir þús­unda kvenna hafa skrifað undir myllu­merk­inu #metoo og lýst kyn­ferð­is­áreiti eða -ofbeldi af ein­hverju tagi.

Þöggunar­menning og leyndar­hyggja eru hugtök sem hafa verið í deiglunni síðustu mánuði. Ástæðan er ekki sú að umræða sé þögguð sérstak­lega mikið niður núna heldur eru hlutir að koma upp á yfir­borðið sem alltaf hafa verið til staðar en fyrst núna er fólk að stíga fram og tala um þá. 

Hreyfingar spretta út frá einstökum atvikum og sameinast fólk bak við myllu­merki á samfélags­miðlum. Þar má nefna sem dæmi #freethenipple, #höfumhátt, #metoo, #þöggun, #égerekkitabú og #kæraEygló. Allar þessar byltingar eiga það sameiginlegt að einangrað tilvik hrindi af stað atburðarás sem leiðir af sér samstöðu þúsunda kvenna og karlmanna. 

Nú pósta konur víðsvegar um heim sögur af kynferðis­áreiti og -ofbeldi undir myllu­merkinu #metoo. Flestar konur þekkja það að búa í heimi þar sem áreiti er talið óhjá­kvæmilegur hluti af tilverunni og í gegnum þær þúsundir frásagna sem nú ganga á samfélags­miðlum opinberast hversu algengt þetta er.

Stjórn­málin ná ekki að takast á við þessi vandamál því breytingarnar verða þegar fólk lætur í sér heyra. Í krafti fjöldans stíga konur fram undir myllu­merkjum og greina frá reynslu sinni og upplifunum en oft er um að ræða þöggun gegn kynferðis­brotum eða minnihluta­hópum.

#metoo á rætur sínar að rekja til ársins 2006

Kynferðislegt áreiti og kynbundið ofbeldi er veruleiki sem fjöldi kvenna þarf að takast á við. Dóms­kerfið og stjórn­málin hafa ekki náð að vernda þolendur og þau samfélags­norm sem viðgangast ýta undir skömm og þöggun.

Eins og fyrr segir er myllu­merkið #metoo mjög áberandi á samfélags­miðlum um þessar mundir. Ástæðan er fall og brot fram­leiðandans Harvey Weinstein. Hann hefur verið ásakaður um að áreita fjölda kvenna en margar leikkonur hafa stigið fram og greint frá sinni reynslu af honum.

Leikkonan Alyssa Milano, sem er fræg fyrir leik sinn í þáttunum Melrose Place, Who´s the Boss og Charmed, var áhrifa­valdur þess að #metoo náði slíkri útbreiðslu sem raun ber vitni eftir að hún hvatti á Twitter þann 15. október síðastliðinn konur að stíga fram og segja frá reynslu sinni.

Myllu­merkið á uppruna sinn í grasrótar­samtökum árið 2006 þegar aðgerða­sinninn Tarana Burke bjó það til á samfélags­miðlinum MySpace. Hugmyndin var sú að tengja saman svartar konur sem orðið höfðu fyrir kynferðis­ofbeldi og að nota samkennd til að styrkja konur og efla þær.

Mótmælin gáfu öðrum rödd

Leynd, spilling og vald­níðsla eru hugtök sem einkenna orðræðu síðustu missera. Kerfið bregst hvað eftir annað en í krafti fjöldans þorir fólk að tjá sig um obeldi eða áreiti sem það hefði annars aldrei gert. 

Fjöldi myllu­merkja sem fá útbreiðslu eykst ár frá ári en að baki þeim eru þúsundir manneskja sem tjá sig, mótmæla og greina frá veruleika sínum sem áður þótti ekki viðeigandi að tala um. Þegar fólk stígur fram þá gefur það öðrum rödd og snjóbolta­áhrifin sem fylgja í kjölfarið eru óneitanleg.

Gríðarleg fjölmiðla­umfjöllun einkenndi síðastliðið sumar eftir að upp komst að dæmdur kynferðis­afbrota­maður, Robert Downey, hefði fengið uppreist æru á síðasta ári. Róbert Downey hlaut þriggja ára fangelsisdóm árið 2008 fyrir kynferðis­brot gegn fjórum barnungum stúlkum.

Eljan skilaði breytingum

Í kjölfarið mótmælti fólk á netinu undir myllu­merkinu #höfumhátt og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Úrskurðar­nefnd um upplýsingamál úrskurðaði þann 11. september síðastliðinn að dómsmála­ráðuneytinu bæri að gefa upp allar þær upplýsingar sem tengdust máli Roberts. Í fram­haldinu var upp­lýst að faðir Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra hefði verið einn með­mæl­anda fyrir því að Hjalti Sig­ur­jón Hauks­son, dæmdur barn­a­níð­ing­ur, fengi upp­reist æru. Sig­ríður And­er­sen dóms­mála­ráð­herra við­ur­kenndi að hafa upp­lýst Bjarna um aðkomu föður hans í júlí. Björt framtíð sleit ríkis­stjórnar­samstarfinu í kjölfarið eins og títtnefnt er orðið.

En hverju hefur myllu­merkið #höfumhátt áorkað? Það sameinaði fólk í mótmælum sem á endanum felldi heila ríkis­stjórn eftir að þolendur kynferðis­ofbeldis mótmæltu þeirri leynd sem fylgdi gögnum varðandi uppreist æru. Ljóst þykir að elja þeirra hafði þau áhrif að almenningur vaknaði og stjórn­sýslan í leiðinni.

Kallað var eftir betra kerfi og endalokum þöggunar. Fólk tjáði sig og krafa þess snerist um aukna virðingu fyrir fólki. Að skila megi skömminni þangað sem hún eigi heima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár