Atvinnuleysi ekki verið minna í níu ár

Á þeim átta árum sem Barack Obama hefur verið forseti Banda­ríkjanna hefur orðið mikill viðsnúningur á stöðu efnahags­mála í Banda­ríkjunum.

Atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum mælist nú 4,6 prósent og hefur verið ekki verið lægra í níu ár, eða frá því áður en Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, var kjörinn í embættið fyrst, í nóvember 2008. Þá var fjármála­kreppan í algleymingi og blikur á lofti um hvernig efnahags­málin í heiminum myndu þróast.

Kreppan dýpkaði mikið á skömmum tíma, og náði hámarki í janúar 2009, þegar Obama tók við embætti. Hæst fór atvinnu­leysið upp undir tíu prósent í Banda­ríkjunum árið 2010 en hefur síðan farið jafnt og þétt lækkandi. 

Fjár­festar búast nú við því að stýri­vextir í Banda­ríkjunum verði hækkaðir á tveggja daga vaxta­ákvörðunar­fundi bankans, dagana 13. til 14. desember, að því er fram kom í frétta breska ríkis­útvarpsins BBC í gær.

Samtals urðu til 178 þúsund ný störf í Banda­ríkjunum í nóvember en á þessu ári hafa orðið til um 180 þúsund ný störf á mánuði. Í fyrra voru þau ríflega 220 þúsund. Þessi þróun á árinu er þó í takt við væntingar Seðla­banka Banda­ríkjanna en líklegt þykir að hagvöxtur þessa stærsta hagkerfis heimsins verið á bilinu 2 til 3 prósent á þessu ári.

Donald J. Trump tekur við stjórnar­taumunum sem forseti Banda­ríkjanna í byrjun næsta árs, en hann vinnur nú að því að útfæra efnahags­stefnu sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár