Mjótt á munum í ESB-kosningum í Bretlandi samkvæmt fyrstu tölum

Aðeins lítill hluti atkvæða hefur þó verið talinn.

Þegar þetta er skrifað benda talin atkvæði til þess, að fleiri hafi kosið með því að Bretland fari úr Evrópu­sambandinu (ESB) en færri með því að Bretland verði áfram hluti af ríkja­bandalaginu. Samkvæmt vef breska ríkis­útvarpsins BBC, hafa 497 þúsund kosið með því að fara út ESB en 494 þúsund með því að vera áfram í ESB.

Fyrstu tölur komu frá Gíbraltar þar sem 96 prósent kusu með því, að Bretland verði áfram hluti af ESB.

Líklegt þykir, að mjótt verði á munum, alveg fram á síðustu stundu, en niður­staðan mun liggja fyrir í fyrra­málið, það er að morgni 24. júní á okkar tíma.

Kosninga­baráttan hefur verið hörð, þar sem fylkingar hafa tekist á um hvort Bretlandi sé betur borgið innan ESB eða ekki. David Cameron, forsætis­ráðherra, er sjálfur mikill stuðnings­maður þess að Bretland verði áfram hluti af ESB, en meðal hörðust fylgis­manna þess að Bretland fari úr ESB, er Boris Johnson, fyrr­verandi borgar­stjóri í London.

Kjarninn hefur fjallað nokkuð um Brexit og má meðal annars lesa um kosningarnar og hvers vegna þær eru að fara fram nú, og síðan helstu álita­málin sem deilt er um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár