Brexit er risaatburður í sögu Evrópusamrunans sem hófst eftir seinni heimstyrjöld. Bretar takast nú á um framtíð landsins í Evrópusambandinu. Hér eru rökin með og á mót í þremur lykilmálaflokkum
Breska þjóðin gengur að þjóðaratkvæðagreiðslu á morgun þar sem kosið verður um þátttöku Bretlands í Evrópusambandinu. Brexit er þegar farið að hrista stoðir Evrópusambandsins (ESB) og mun án efa hafa áhrif á Evrópusamrunann til framtíðar, hvernig sem fer.
Breska þjóðin er klofin í herðar niður í þessu máli. Hver skoðanakönnunin á fætur annarri sýnir að hnífjafnt er milli fylkinganna sem vilja annað hvort úr ESB eða vera í því. Umræðurnar um þessa mikilvægu ákvörðun hafa einkennst af mikilli heift og persónulegum árásum, þar sem skipst er á gífuryrðum.
Málið er þverpólitíkst í Bretlandi. Sem dæmi má nefna að í Íhaldsflokknum, sem fer með forsætisráðuneytið, eru tveir helstu leiðtogar flokksins ekki á sama máli. Boris Johnson, fyrrverandi borgarstjóri í London, er aðalmaðurinn í „Leave-camp“ þeirra sem vilja úr ESB en David Cameron forsætisráðherra er helsti talsmaður „Stay-camp“ þeirra sem vilja halda samstarfinu áfram.
Umræðan hefur að mestu fjallað um þrjú atriði. Íslendingar sem fylgst hafa með þjóðmálaumræðunni hér á landi þekkja kannski kunnugleg stef hér, með öfugum formerkjum. Helstu átakamál Breta í Evrópuumræðunni eru fullveldið, fólksflutningar og efnahagurinn. Hér að neðan má sjá rökin í báðar áttir í þessum þremur málum. Cheers!
Við verðum að fá fullveldið okkar til baka!
Bretland er fullvalda ríki, og spurningin um hvort það geti raunverulega talist það, í ljósi aðildar að Evrópusambandinu, hefur verið hávær í Brexit-rökræðunum. Þessi umræða hljómar vafalítið kunnuglega frá því umræðan um Evrópusambandsumsókn Íslands stóð sem hæst.
Flutningur fólks til Bretlands er að eyðileggja samfélagið
Innflytjendamál eru eldfimmt umræðuefni í Bretlandi eins og víða annars staðar í Evrópu. Á ríflega 20 ára tímabili, frá 1993 til og með 2014, fjölgaði fólki sem fætt er utan Bretlands úr 3,8 milljónum í 8,3 milljónir, af um 65 milljóna heildarfjölda. Erlendum ríkisborgurum í Bretland fjölgaði á sama tíma úr tveimur milljónum í fimm milljónir. Óhætt er að segja að fylkingar sem eru hlynnt veru í EBS og á móti, séu ósammála um hvort þessi staða sé til góðs eða ills.
Efnahagurinn
Bretland sker sig frá öllum öðrum Evrópusambandslöndum, hvað eitt mál varðar. Landið er það langfjölmennasta af 28 aðildarríkjum sem er með eigin mynt og peningastefnu. Breska pundið og peningastefnan hvílir á herðum Englandsbanka, sjálfstæðs seðlabanka Bretlands. Samtals búa 65 milljónir manna í Bretlandi. Atvinnulífið er borið uppi af þjónustuiðnaði ýmis konar, eða um 78 prósent. Atvinnuleysi mælist nú um fimm prósent og landsframleiðsla hefur vaxið fremur hægt að undanförnu, eða um 0,1 prósent á fyrst ársfþjórðungi þessa árs.
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir