Hvað er þetta Brexit? Sex lykilatriði fyrir Íslendinga

Brexit er um þessar mundir lyk­il­hug­tak í fréttum af erlendum vett­vangi. En hvað er Brexit og hvað hefur það í för með sér?

Bretar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu á fimmtudaginn um hvort Bretland verði áfram aðili að Evrópusambandinu.
Bretar ganga til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á fimmtu­dag­inn um hvort Bretland verði áfram aðili að Evr­ópu­sam­band­inu. Mynd: EPA

David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur boðað til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu (ESB). Kosið verður fimmtu­dag­inn 23. júní, eftir tvo daga. Í fjöl­miðlum og í dag­legu tali hefur þessi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsa og mögu­leik­inn á því að Bretar hætti hrein­lega í ESB verið kall­aður „Brexit“. Það er ein­hvers­konar sam­suða af orð­unum Bretland og „exit“.

Útganga Breta úr ESB gæti haft gríð­ar­legar afleið­ingar í för með sér. Sumir telja jafn­vel að umræðan þar í landi hafi þegar smitað svo mjög til ann­arra landa þar sem þreytu gagn­vart skri­fræð­inu í Brussel er farið að gæta. Þess vegna er þegar farið að tala um Frexit (um hugs­an­lega úrsögn Frakka) og Nexit (um hugs­an­lega úrsögn Hol­lend­inga).

En hvað er eig­in­lega að ger­ast? Hér að neðan er stiklað á stóru um Brexit.

Hvað er þetta Brexit?

Brexit er hug­tak sem fundið var upp um þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una sem fram fer fimmtu­dag­inn 23. júní í Bret­landi. Þar verður breska þjóðin spurð hvort hún vilji að Bretland taki áfram þátt í Evr­ópu­sam­band­inu eða gangi út. Um svörin tvö hafa orðið til þverpóli­tískar fylk­ingar með og á móti. Fylk­ing­arnar eru yfir­leitt kall­aðar „Remain“ og „Leave“ í víð­lesn­ustu fjöl­miðlum á Bret­landseyjum.

Hvers vegna vilja Bretar hætta í ESB?

Þegar kosið var til þings í Bret­landi í maí í fyrra lof­aði David Cameron, for­maður Íhalds­flokks­ins, að haldin yrði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um aðild Bret­lands að ESB ef flokkur hans myndi vinna kosn­ing­arnar. Gaf hann þetta lof­orð vegna auk­ins þrýst­ings frá þing­mönnum Íhalds­flokks­ins, og ekki síst frá UKIP (Sjálf­stæð­is­flokks Bret­lands sem vill ekk­ert með ESB hafa), og hugs­an­legs flótta atkvæða frá íhald­inu til UKIP.

Bretar gengu form­lega í ESB árið 1975 eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Þing­menn­irnir og UKIP færðu rök fyrir því að Bretar hefðu ekk­ert fengið að segja um aðild lands­ins að sam­band­inu síðan þá, nú væru liðin 40 ár og sam­bandið orðið mun stærra og gjör­ó­líkt því sem það var.

Íhalds­menn hlutu á end­anum stærstan hluta atkvæða og flesta þing­menn. Cameron þurfti þá að standa við sitt. „Það er kom­inn tími á að breska þjóðin fái að ráða. Það er kom­inn tími til að svara Evr­ópu­spurn­ing­unum í Bret­landi,“ sagði Cameron, sem sjálfur er stuðn­ings­maður áfram­hald­andi aðildar að sam­band­inu.

Spurt verður í atkvæða­greiðsl­unni: „Á Bretland að vera áfram aðili að Evr­ópu­sam­band­inu eða yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið?“ (e. Should the United Kingdom remain a mem­ber of the European Union or leave the European Union?)

Hver er að vinna?

Und­an­farnar vikur hafa skoð­ana­kann­anir bent til þess að hnífjafnt sé milli þess­ara fylk­inga. Eftir morðið á þing­kon­unni Jo Cox síð­ast­lð­inn fimmtu­dag virð­ast sam­bands­sinnar hafa fengið byr í seglin á kostnað þeirra sem vilja ganga út. Flestar skoð­ana­kann­an­irnar sem SkyNews-sjón­varps­stöðin fjallar um benda til þess að um 10 pró­sent kjós­enda séu enn óákveðnir.

Hvað hefur úrsögn í för með sér?

Úrsögn Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu gæti haft miklar afleið­ingar í för með sér. Það er erfitt að ráða fram­tíð­ina þó það megi leiða líkur að því hvað muni ger­ast. Ekki verður gerð til­raun til að gera tæm­andi lista hér heldur aðeins stiklað á stóru.

Fyrir það fyrsta verður staða Bret­lands óljós í hinum alþjóða­póli­tíska heimi. Skyndi­lega verður Bretland, eitt stærsta hag­kerfi í heimi, utan við sam­eig­in­lega markað Evrópu og þarf að gera við­skipta­samn­inga við sín helstu við­skipta­lönd á ný.

Þeir sem telja Breta betur borgið utan ESB segja að Bretland geti ein­fald­lega fengið sams­konar samn­ing og Ísland eða Noregur hefur við ESB og þannig aðild að evr­ópska efna­hags­svæð­inu. Óvíst er hversu samn­ings­fúsir eft­ir­stand­andi leið­togar ESB verða í kjöl­far atkvæða­greiðsl­unnar.

Þá hafa verið leiddar að því líkur að aðrar Evr­ópu­þjóðir muni vilja fara sömu leið og Bretar ef þeir kjósa sig úr ESB. Vaxandi sjálf­stæð­is­hreyf­ing í Frakk­landi undir for­ystu Marie Le Pen hefur orðið til þess að Frakk­land gæti hugsað sér til hreyf­ings. Þá er allt eins búist við að Hol­lend­ingar sjái sér leik á borði og óski eftir úrsögn.

Úrsögn Breta mun einnig setja stöðu Írlands í of kunn­ug­lega stöðu, fyrir bresk stjórn­völd. Ferða­frelsi milli Írlands og Norður-Írlands verður skert því Írar verða áfram í ESB en Norður-Írland, undir breskri stjórn, fylgja Bretum út. Sam­eig­in­lega svæði þess­ara landa – auk Manar, Jersey og Guernsey – mun skerð­ast í fyrsta sinn síðan því var komið á árið 1925.

Þá hafa Bretar nefnt styrki Evr­ópu­sam­bands­ins til ýmissa mála­flokka sem dæmi um hluti sem breska stjórnin mun að öllum lík­indum ekki geta veitt í sama mæli. Þar eru meðal ann­ars land­bún­að­ar­styrkir og styrir til rann­sókna og fræða­starfa.

Hvað ef Bretar vilja vera áfram?

Ef breska þjóðin kýs að vera áfram aðili að ESB mun upp­fært aðild­ar­sam­komu­lag milli Bret­lands og sam­bands­ins taka gildi. David Cameron samdi um þessa skil­mála í jan­úar og febr­úar og segir hann nýja skil­mála veita Bretum sér­staka stöðu innan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Nýju skil­mál­arnir munu, að sögn Camerons, koma til móts við þá sem vildu úrsögn úr sam­band­inu. Aðal­at­riði skil­mál­anna eru:

Pen­inga­að­stoð heim - Aðfluttir munu áfram geta sent launin sín til heima­lands­ins en þó aðeins í takti við kostn­að­inn í heima­land­inu.

Minni vel­ferð­ar­greiðslur til far­and­verka­manna - Cameron segir að með því að minnka vel­ferð­ar­greiðslur til illra laun­aðra far­and­verka­manna muni það draga úr hvötum fyrir þessa verka­menn til að starfa í Bret­landi.

Engin evra, bara pund - Cameron segir Bretland aldrei ætla að taka upp evr­una. Evrulönd muni hins vegar ekki lá Bretum það. Allar fjár­veit­ingar Breta í sam­eig­in­lega björg­un­ar­sjóði til evru­landa verða end­ur­greiddar að fullu.

Fjár­mála­hverfið í London (City of London) fær náð frá reglu­verki evr­unar.

Stöðvun Evr­ópu­sam­run­ans - Bretar munu ekki, í fyrsta sinn, taka þátt í eða styðja við aukin Evr­ópu­sam­runa milli Evr­ópu­ríkja. Þetta er raun­veru­lega í and­stöðu við eitt af mark­miðum Evr­ópu­sam­starfs­ins. Þá munu rík­is­stjórnir geta gefið rauða spjaldið á nýjar reglu­gerðir. Ef að minnsta kosti 55 pró­sent allra þjóð­þinga innan ESB mæla gegn Evr­ópu­lög­gjöf verður hún send aftur til Brussel.

Hvaða áhrif hefur þetta á Ísland?

Áhrif Brexit hér á Íslandi geta orðið marg­vís­leg. Eiríkur Bergmann Ein­ars­son, pró­fessor stjórn­mála­fræði, sagði í sam­tali við Kjarnann að áhrifin gætu orðið „feyki­mikil“ enda er Bretland ein af okkar helstu við­skipta­þjóðum; ekki síst með sjáv­ar­af­urðir.

„Grund­völlur íslensks efna­hags­lífs hefur meðal ann­ars verið að selja Bretum þorsk í Fish and chips – sjálfan þjóð­ar­rétt­inn. Við útgöngu fer eflaust af stað umræða um stöðu Bret­lands og ann­arra nágranna­ríkja ESB. Bretland, við [Ísland], Norðmenn, Sviss og slíkríki þurfa öll aðkomu að innri mark­aði ESB og við útgöngu Breta hljóta menn að ræða hvernig sú teng­ing sé best fyrir komið fyrir öll þessi ríki. Þar með gæti orðið til eins­konar ytra Evr­ópu­sam­band með Íslandi, Bret­landi, Noregi, Sviss og ef til vill litlu örríkj­unum, Andorra, San Marino og Ema­sunds­eyj­unum,“ segir Eiríkur Bergmann.

Hér að neðan má sjá breska grínistan John Oliver útskýra Brexit fyrir Banda­ríkja­mönnum í þætti sínum á HBO.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár