„Brexit“ gæti breytt miklu fyrir Ísland

Eftir tæpa viku kjósa Bretar um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Fari svo að Bretland fari úr ríkja­banda­lag­inu gæti áhrifa gætt víða.

Fari svo að Bretar fari úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB), eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 23. júní næst­kom­andi, þá gæti það haft „feyki­mikil“ áhrif fyrir Ísland. Þetta segir Eiríkur Bergmann Ein­ars­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði.

Ástæðan er sú, að Bretar myndu þurfa að end­ur­skoða í hvaða far­vegi við­skipta­samn­ingar og við­skipta­sam­bönd ættu að vera, í ljósi breyttrar alþjóða­póli­tískrar stöðu. „Í fyrsta lagi fær­ist Ísland frá Evr­ópu­sam­band­inu, eða það það frá okkur, eftir atvikum. Grund­völlur íslensks efna­hags­lífs hefur meðal ann­ars verið að selja Bretum þorsk í Fish and chips – sjálfan þjóð­ar­rétt­inn. Við útgöngu Breta fer eflaust af stað umræða um stöðu Bret­lands og ann­arra nágranna­ríkja ESB. Bretland, við [Ísland], Norðmenn, Sviss og slík ríki þurfa öll aðkomu að innri mark­aði ESB og við útgöngu Breta hljóta menn að ræða hvernig sú teng­ing sé best fyrir komið fyrir öll þessi ríki. Þar með gæti orðið til eins­kona ytra Evr­ópu­sam­band með Íslandi, Bretland, Noregi, Sviss og ef til vill litlu örríkj­unum, Andorra, San Marino og Erma­sunds­eyj­unum,“ segir Eiríkur Bergmann.

Mikið undir

Sé mið tekið af nýj­ustu könn­unum í breskum fjöl­miðlum, þá eru tölu­verðar líkur á því að Bretar yfir­gefi ESB, næstum hní­f­jöfn staða hefur komið út í könnum. Um 49 pró­sent vilja úr sam­band­inu en 51 pró­sent vilja vera áfram, af þeim sem gefa upp afstöðu sína, sam­kvæmt könnun sem Sky frétta­stofan greindi frá í síð­ustu viku. Kannanir hafa sýnt tölu­verða fylg­is­sveiflu í átt að meiri and­stöðu við ESB, en greini­legt er þó að ekki hafa allir gert upp hug sinn.

Þrátt fyrir að ýmsir þjóð­ar­leið­togar og for­ystu­fólk alþjóða­sam­starfs, svo sem Barack Obama Banda­ríkja­for­seti og Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, hafi talað fyrir því að Bretar verði áfram í sam­band­inu, þá virð­ist sem það sé ekki að hafa mikil áhrif í Bret­landi. And­stæð­ing­arnir gagn­rýna slíkt tal, og hefur Boris Johnson, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í London, sagt að ákvörð­unin sé ein­ungis mál Breta og komi öðrum ekk­ert við.

Lagarde lét hafa eftir sér í gær, að það væri óum­deilt að þátt­taka Bret­lands í ESB hefði styrkt efna­hags­líf Bret­lands. Hún vildi ekki svara spurn­ingum beint um atkvæða­greiðsl­una, og bar því við að hún vildi með því votta fjöl­skyldu bresku þing­kon­unnar Jo Cox, sem myrt var í fyrra­dag, virð­ingu sína. Hún var ötull bar­áttu­maður fyrir opn­ara Bret­landi, og vildi Lagarde ekki, sökum þessi hve umræðan um þessi mál er við­kvæm, fara inn á eldimt deilu­mál. For­ystu­menn í breskum stjórn­málum hafa sam­ein­ast, hvar í flokki sem þeir standa, um að láta hið skelfi­lega morð ekki magna upp ómál­efn­lega umræðu í Bret­landi.

Lok, lok og læs

Wolf­gang Schäu­ble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, sagði í við­tali við þýska viku­ritið Der Spi­egel, um liðna helgi að Bretland myndi ekki fá aðgang að innri mark­aði ESB ef það stæði fyrir utan sam­bandið. Stokka þyrfti spilin upp á nýtt, og það gæti reynst erfitt úrlausn­ar­efni.

Schäu­ble var spurður hvort Bretum stæði til boða að ganga í evr­ópska efna­hags­svæðið (EES) eftir útgöngu úr ESB og gera svip­aðan samn­ing og Ísland, Nor­eg­ur, Liechten­stein eða Sviss hafa við sam­band­ið. „Það mun ekki ganga,“ sagði hann. „Þá þyrfti landið að fylgja reglum klúbbs­ins sem það vill hætta í. Ef meiri­hluti kjós­enda í Bret­landi velur að sam­starf­inu sé slitið verður það ákvörðun gegn sam­eig­in­lega mark­að­in­um. Annað hvort ertu með eða ekki.“

Ekki sammála

And­stæð­ingar veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu hafa bent á að orð eins og þessi, um að innri mark­að­ur­inn kunni að lok­ast, séu ekk­ert nema orðin tóm, þar sem alþjóða­vætt við­skipta­líf heims­ins opni á frjálsa samn­inga sem Bretar ættu ekki að hræð­ast. Auk þess hljóti Bretar, eins og önnur ríki sem standi utan ESB, að geta samið um aðgang að innri mark­aðnum til lengdar litið, þar sem í því fel­ast beinir hags­munir ESB. Bretar séu með breska pundið og sjálf­stæðan seðla­banka, Eng­lands­banka, sem geti hagað sinni stefnu að vild, og geri það nú þegar. Breyt­ingin þurfi ekki að vera dramat­ísk.

Kosn­inga­bar­átta fylk­ing­anna tveggja, með og á móti útgöngu Bret­lands, fer nú að ná hámarki sínu og hefur heldur herst á áróðr­inum. Á vef Guar­dian er kosn­inga­bar­áttan útskýrð á ein­faldan hátt. Þeir sem telja Bret­landi best borgið utan ESB hafa lagt árherslu á minn­ing­una um breska heims­veld­ið, hug­ar­far Breta á stríðs­ár­unum og Thatcher-­tím­ann á átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu ald­ar. Auk þess sem mikið er rætt um efna­hags­legt sjálf­stæði lands­ins og mik­il­vægi punds­ins og sjálf­stæðrar pen­inga­stefnu. Fyrir þeim er ESB ofrík­is­fullt, dýrt og ólýð­ræð­is­legt; og inn­flutn­ingur fólks í álf­una veldur þeim hug­ar­angri.

Þeir sem vilja halda sam­band­inu við ESB minna á það hversu vel Evr­ópu­sam­starf­inu hefur tek­ist að stilla til friðar í heims­álfu sem log­aði áður í deil­um. Þar er einnig lögð áhersla á hversu vel fjór­frelsið hefur komið sér fyrir alla þátt­tak­endur í sam­starf­i ESB-ríkja, og að sam­eig­in­leg stefnu­mál og mark­mið, t.d. á sviði orku- og umhverf­is­mála, muni skipta heims­byggð­ina miklu máli á næstu árum og ára­tugum. Þar þurfi að ríkja ein­hugur og mikið sam­starf.

Meðal þeirra sem sem styðja áfram­hald­andi veru Bret­lands í ESB eru allir leið­togar allra stærstu stjórn­mála­flokka á Bret­landi, þar með talið David Cameron for­sæt­is­ráð­herra Íhalds­flokks­ins, en innan þess flokks er and­staðan mest. Allir helstu leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna hafa einnig hvatt Breta til að kjósa áfram­hald­andi aðild. Valið standi að miklu leyti um sam­stöðu og sam­starf, eða ein­angr­un­araf­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár