Olía hækkar um 7% eftir viðvörun Trumps um langt hafnarbann

Útlit er fyrir að hafnar­bann Banda­ríkjanna á írönskum höfnum gæti staðið mun lengur en áður hefur verið gert ráð fyrir. „Þeir ættu að verða skynsamir fljótlega!“ segir Donald Trump Bandaríkja­forseti um Írani. Olíuverð hefur náð nýjum hæðum.

Hækkanir
Hækkanir Stór hluti af olíu heims­ins flæðir í flutn­inga­skipum um hið lok­aða Hor­mússund. Nú þegar Banda­ríkja­for­seti hefur gefið til kynna að hafn­ar­bann hans á írönskum höfnum gæti staðið lengi hefur olíu­verð náð nýjum hæðum. Mynd: HUSSEIN FALEH / AFP

Olíuverð hækkaði um meira en sjö prósent og náði fjögurra ára hámarki yfir 126 dölum í morgun eftir að Donald Trump varaði við því að hafnar­bann Banda­ríkjanna á íranskar hafnir gæti staðið yfir í marga mánuði og fréttir bárust af því að hann fengi tillögur um hugsanlegar nýjar hernaðar­árásir.

Þrátt fyrir að stjórn­völd í Teheran hafi lagt fram nýja tillögu í þessari viku um að opna hið mikilvæga Hormús­sund að nýju, segir Bandaríkja­forseti Íranir séu ekki semja í góðri trú. The Wall Street Journal sagði að hann hefði sagt þjóðar­öryggis­fulltrúum að búa sig undir langt hafnar­bann til að neyða Írani til að hætta við kjarnorku­áætlun sína.

Á fundi með stjórn­endum olíu­fyrirtækja á þriðjudag ræddi Trump viðleitni „til að létta á alþjóð­legum olíu­mörkuðum og skref sem við gætum tekið til að halda núverandi hafnar­banni áfram í marga mánuði ef þörf krefur og lágmarka áhrif á bandaríska neytendur,“ sagði …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Það virðist eins og þeir ríkustu og öflugustu komist helst til valda í heiminum þvimiðufyrir valdalausann almúgann sem má sín einskis gen valdinu
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár