Bann á umfjöllun Stundarinnar framlengist út árið 2017

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur ákveðið að aðal­meðferð í máli þrotabús Glitnis gegn Stundinni fari fram þann 6. janúar 2018. Því verður lögbann á umfjöllun Stundarinnar við lýði fram á næsta ár hið minnsta.

Umfjöllun Stundarinnar
Umfjöllun Stund­ar­innar Eftir umfjöllun Stund­ar­innar um við­skipti for­sæt­is­ráð­herra með bréf tengd Glitni, sam­hliða aðkomu hans að mál­efnum bank­ans sem kjör­inn full­trúi, fékk Glitnir sam­þykkt lög­bann á frek­ari frétta­flutn­ing.

Lögbann á fréttir Stundarinnar upp úr gögnum, sem sögð eru koma úr þrotabúi Glitnis, verður áfram við lýði út þetta ár hið minnsta. Þetta er orðið ljóst eftir að dómari við Héraðsdóm Reykja­víkur boðaði að meðferð dómsmáls um lögbannið yrði ekki haldið áfram fyrr en 6. janúar 2018.

Í dóms­málinu stefnir þrotabú Glitnis, Glitnir Holding, Stundinni fyrir dóm, til að freista þess að fá stað­festingu á lögbanni sem Sýslu­maðurinn í Reykjavík lagði  á umfjöllun Stundarinnar upp úr tilteknum gögnum sem þrotabúið gerir kröfu til. 

Inngrip í umfjöllun sem varðar ráðherra

Lögbann var sett á Stundina og Reykjavik media mánudaginn 16. október, þegar fulltrúar sýslu­mannsins í Reykjavík fyrirvara­laust á skrif­stofu Stundarinnar ásamt lögmanni Glitnis og tilkynntu að lögbann yrði lagt á áfram­haldandi umfjöllun. Fyrirvara­laust dómþing var samþykkt af sýslu­manni að kröfu Glitnis með tilvísun um að Stundin hefði annars verið í aðstöðu til að birta meiri upplýsingar upp úr hinum meintu gögnum.

Stundin hafði þá fjallað um að viðskipti Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra með bréf tengd Glitni, sem og lánamál hans hjá bankanum og boðs­ferðir, hefðu verið með öðrum hætti en hann hafði sjálfur lýst. Þannig hafði hann til dæmis losnað undan persónulegri ábyrgð á 50 milljóna króna kúluláni, þegar það var flutt yfir á einka­hlutafélag í eigu föður hans skömmu fyrir hrun, en félaginu var slitið eftir efnahags­hrunið þegar skuldir þess höfðu rokið upp úr öllu valdi. Auk þess fór Bjarni í fleiri boðs­ferðir í boði bankans en hann hafði greint frá áður, hafði átt 165 milljónir króna í peninga­markaðs­sjóði Glitnis, sem stangaðist á við fyrri yfir­lýsingar, og seldi öll bréf sín í sjóðnum dagana fyrir banka­hrunið. Þá fundaði hann með banka­stjóra Glitnis um vanda bankans, sem kjörinn fulltrúi, tveimur dögum áður en hann hóf að selja persónuleg hlutabréf sín í bankanum fyrir rúmlega 120 milljónir króna.

Glitnir krafðist þess að Stundin eyddi öllum fréttum sem skrifaðar hefðu verið um málið af internetinu og afhenti tiltekin gögn. Lögmaður þrota­búsins féll hins vegar frá fyrri kröfunni og var síðari kröfunni hafnað, á grund­velli þess að ómögulegt væri að afhenda gögn sem gætu verið til rafrænt.

Sýslu­maðurinn í Reykjavík sendi frá sér yfir­lýsingu þess efnis að með lögbanninu væri verið að „frysta tiltekið ástand“, en þrotabú Glitnis hafði lýst áhyggjum af því að upplýsingar um fjármál þúsunda Íslendinga væri að finna í gögnum sem Stundin hefði undir höndum.

Stundin vildi flýta málinu

Sýslu­maðurinn í Reykjavík féllst ekki á þá vörn Stundarinnar í skyndi­legu dómþingi á skrif­stofu miðilsins að umfjöllunin ætti erindi til almennings, hefði þýðingu í lýðræðis­legu samfélagi og nyti verndar stjórnar­bundins tjáningar­frelsis.

Stundin fór fram á að málinu yrði flýtt eins og auðið yrði fyrir héraðs­dómi. Beiðni Stundarinnar um flýti­meðferð var ekki formleg í skilningi einkamála­laga, þar sem einungis stefnandi máls getur óskað eftir flýti­meðferð formlega. Hins vegar taldi dómari að dagsetningin samræmdist tímaramma flýti­meðferða­mála.

Bæði Kjarninn og Ríkis­útvarpið hafa fjallað um upplýsingar um viðskipti innan Glitnis fyrir hrunið á undan­förnum vikum. Viðbrögð lögmanns þrotabús Glitnis hafa verið að biðja Kjarnann að upplýsa um hvort frekari umfjöllun væri fyrir­huguð úr gögnunum. Fyrirvara­laus koma á skrif­stofur Kjarnans átti sér því ekki stað, líkt og í tilfelli Stundarinnar.

Frá því að Glitnir fékk samþykkt lögbann á umfjöllun Stundarinnar og Reykjavík Media hefur verið greint frá því, upp úr gögnum frá bankanum, að hópur stjórn­enda og starfs­manna Glitnis hafði stundað umfangs­mikil viðskipti með bréf tengd bankanum eftir að hafa fengið þá vitneskju að stjórnar­formaður Glitnis hefði hitt seðla­bankastjóra og sóst eftir fyrir­greiðslu Seðla­banka Íslands vegna þess að bankinn væri fyrir­sjáanlega ógjaldfær.

Leki á gögnum úr Glitni er til rann­sóknar hjá Héraðs­saksóknara­embættinu, sem áður hét Sérstakur saksóknari. Ritstjórar Stundarinnar fóru til skýrslu­töku hjá embættinu á mánudag og verða samtals tólf blaða- og frétta­menn boðaðir til skýrslu­töku hjá embættinu vegna málsins samkvæmt frétt Ríkis­útvarpsins.

Fyrirvari vegna hagsmuna: Í fréttinni fjallar Stundin um dómsmál sem varðar Stundina beint og Stundin er aðili að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár