Fólkið sem tap­aði Bjarni Bene­dikts­son hefur gert lítið úr þeirri stað­reynd að hann varði sig frá tapi með sölu hlut­deild­ar­skír­teina sinna í Sjóði 9 dag­ana fyrir banka­hrunið 2008. Lang­flestir töp­uðu hins vegar sínum eignum í Sjóði 9 að hluta til. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn á Facebook

Bjarni og Glitnistoppanir sem seldu í Sjóði 9 og fólkið sem tapaði

Bjarni Benediktsson hefur gert lítið úr þeirri staðreynd að hann seldi hlutdeildar­skírteini í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hrunsins. Stundin leitaði til fólks sem tapaði á Sjóði 9 og á öðrum viðskiptum í aðdrag­anda hrunsins og heyrði sögur þeirra. Auk Bjarna seldu margir Glitnis­toppar allar eignir sínar í Sjóði 9 rétt fyrir hrun.

Hversu réttmætt er það mat Bjarna Benedikts­sonar að „allir skynsamir fjár­festar“ hafi verið að íhuga að selja hlutdeildar­skírteini sín í Sjóði 9 um það leyti sem hann gerði það í byrjun október­mánaðar árið 2008? Bjarni lét þessi orð falla í viðtali við breska blaðið The Guardian í byrjun október síðastliðinn þegar hann var spurður út í sölu sína á 50 milljóna króna hlut í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hrunsins á Íslandi fyrir umfjöllun blaðsins, Stundarinnar og Reykjavík Media um viðskipti hans í Sjóði 9. „Allir skynsamir fjár­festar hefðu verið að íhuga að selja á þessum tíma.“ Bjarni hefur allt frá þessu gert lítið úr sölu sinni á hlutdeildar­skír­teinunum í Sjóði 9 og talað þannig eins og allir eða flestir hefðu mátt vita að íslenska banka­kerfið væri að hrynja. 

Þetta var hins vegar alls ekki raunin. Hvorki með tilliti til Sjóðs 9 eða annarra fjár­festinga fólks á Íslandi á þessum tíma, hvort sem um var að ræða í peninga­markaðs­sjóðum Glitnis, Lands­bankans eða Kaupþings eða þá í hluta­bréfum viðkomandi fjármála­fyrirtækja.  Eitt af því fyrsta sem einn ættingi minn sagði við mig þegar ég sagði honum frá því að Bjarni Benediktsson hefði selt eignir sínar í Sjóði 9 fyrir banka­hrunið 2008 var: „Nú, var það? Ég tapaði fullt af peningum á Sjóði 9.“ 

Ekki mikið tekið úr sjóðum Glitnis

Bjarni hefur samt reynt að láta líta út fyrir að öllum hefði mátt og átt að vera ljóst hversu alvarleg staða banka­kerfisins var. „Öllum Íslendingum var ljóst að það var eitthvað mjög alvarlegt að gerast í banka­kerfinu og ég bjó ekki yfir neinum trúnaðar­upplýsingum,“ sagði Bjarni nú í október í viðtali við Vísi.

Á það skal meðal annars bent að framkvæmda­stjóri eigna­stýringar Glitnis í hruninu 2008, Eggert Þór Krist­ófersson, sagði meðal annars í viðtali við RÚV þann 1. október 2008 að ekki hefði verið mikið um það að fólk hefði innleyst fjármuni sína úr peningarmarkaðssjóðunum á þessum tíma. Þetta bendir til að sú almenna vitneskja almennings um stöðu banka­kerfisins, sem Bjarni vísar til, hafi hreint ekki verið svo útbreidd á þessum tíma. Sjálfur hafði Bjarni hins vegar meðal annars verið viðstaddur á fámennum neyðar­fundi í Stoðum nokkrum dögum áður en hann seldi í Sjóði 9, en stór hluti af eignum sjóðsins reyndust vera kröfur á Stoðir.

Skýring Bjarna um almenna vitneskju fólks á stöðu banka­kerfisins á þessum tíma virðist því vera eftirá­skýring.

„Allir skynsamir fjár­festar hefðu verið að íhuga að selja á þessum tíma.“ 

„Venjulega fólkið“ sem tapaði

Fjölmargt fólk, „venjulegt fólk“, tapaði háum fjárhæðum við fall íslensku bankanna af því það seldi ekki eignir sínar í aðdrag­anda þess. Í einhverjum tilfellum var fólki ráðið frá því af starfs­mönnum þeirra fjármála­fyrirtækja sem það skipti við, meðal annars eins og í tilfelli konunnar sem átti nokkurra milljóna króna hlutabréfa­eign í FL Group, stærsta hluthafa Glitnis, og sem rætt er við hér í greininni. Eins og konan segir: „En það var ekki fyrr en í september 2008 sem ég fór að hugsa um hvort eitthvað óeðlilegt væri á seyði, hvort ég ætti að ná í þessa aura, og hringdi í bankann.  Elskan mín, ekki hafa neinar áhyggjur, þetta fer upp von bráðar.  Og  svo fór sem fór.“ 

Þessi kona átti ekki hlutabréf upp á hundruð milljóna eða tugi milljóna í FL Group heldur voru þetta nokkrar milljónir sem hún hafði safnað saman í gegnum árin með sparifé sínu. Þetta voru samt himinháar fjárhæðir fyrir hana og hafði hún hugsað upphæðina sem eins konar lífeyris­sjóð til framtíðar.

Alveg óvíst með endurheimtur

Bjarni Benediktsson segir að hann hafi ekki búið yfir neinum innherja­upplýsingum á þessum tíma, að viðskipti hans hafi staðist lög og að eftirlits­aðilar hafi farið í gegnum viðskipti með hlutdeildar­skírteini í Sjóði 9 og enginn hafi verið ákærður vegna þeirra. Þó þetta kunni að vera rétt hjá Bjarna – enda hefur Stundin aldrei sagt að hann hafi framið lögbrot – þá voru hann og og ættingjar hans samt hluti þeirra tiltölu­lega fáu einstaklinga og aðila sem náðu að selja eignir sínar sem voru bundnar í bönkunum og þannig að verja sig gegn því tapi sem margir aðrir urðu fyrir í aðdrag­anda banka­hrunsins.

„Ég tapaði svo þessum peningum. Eftir það varð ég svo veikur.“

Aðrir urðu hins vegar eftir, vegna þess að þeir höfðu ekki talið skýr merki um að Sjóði 9 væri alvarlega ógnað. „Ég tapaði svo þessum peningum. Eftir það varð ég svo veikur út af því að ég tapaði öllum þessum peningum,“ segir Ingjaldur Arnþórsson.

Eins og Guðjón Sigurðsson, formaður MND-félagsins, segir þá var það þannig í aðdrag­anda hrunsins og fyrst eftir það að alveg óvíst var hversu miklar endur­heimturnar yrðu á hlutdeildar­skírteinum í Sjóði 9. „Á þeirri stundu var alveg óvíst hverjar endur­heimtur yrðu í þessum fjandans sjóði,“ segir Guðjón. 

Svo fór á endanum, í lok október árið 2008, að eigendur hlutdeildar­skírteina í Sjóði 9 fengu greitt út rúmlega 85 prósent af inni­stæðum sínum. Tapið varð því á endanum tæp 15 prósent en þetta kom fram í frétta­tilkynningu frá Glitni í lok október árið 2008.„Útgreiðslu­hlutfall sjóðsins er 85,12% sem er allt laust fé sjóðsins sem og það endur­gjald sem hann fékk fyrir verð­bréfasafn sitt. Þetta hlutfall miðast við síðasta skráða viðskipta­gengi í Sjóði 9, þann 6. október sl. Upphæðin verður lögð inn á innláns­reikninga sjóð­félaga.“

Þeir sem höfðu haft vit á því að selja í Sjóði 9 fyrir 6. október 2008, daginn sem neyðar­lögin voru samþykkt, vörðu sig hins vegar gegn þessu tæplega 15 prósenta endanlega tapi, rétt eins og þeir sem höfðu vit á því að selja hlutabréf sín í bönkunum í aðdrag­anda hrunsins vörðu sig gegn tapinu sem af hruninu hlaust.  

Seldi í Sjóði 9Birkir Krist­ins­son, starfs­maður eigna­stýr­ing­ar­deildar Glitnis og fjár­festir, var einn þeirra sem seldi í Sjóði 9 rétt fyrir banka­hrunið. Sjálfur sýsl­aði hann með fé fyrir fólk sem átti inni­stæður í Sjóði 9.

Glitnistopparnir sem seldu

Eins og fram kom í Kjarnanum fyrr í vikunni, þegar miðillinn fjallaði um upplýsingar í Glitnis­gögnunum sem Stundin má ekki fjalla um út af lögbanni sem sett var á fjöl­miðilinn, þá seldu fjölmargir af æðstu stjórn­endum Glitnis hlutdeildar­skírteini sín í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hrunsins árið 2008. Stundin telur að lögbannið sem Sýslu­maðurinn í Reykjavík setti á Stundina nái ekki til umfjöllunar annarra fjölmiðla um umrædd Glitnis­gögn og þess vegna fjallar Stundin um grein Kjarnans. 

Einn þeirra sem seldiJóhannes Bald­urs­son, fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta Glitnis, var einn sem seldi í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hruns­ins.

Í frétt Kjarnans er fjallað um hvernig starfs­menn Glitnis, þeir Jóhannes Baldursson, Birkir Kristinsson, Eiríkur S. Jóhannson og Jóhann Ómarsson hafi allir selt eignir í Sjóði 9 dagana 24. til 26. september árið 2008. Um var að ræða viðskipti sem námu allt frá 1 milljón króna og upp í tæplega 100 milljónir í tilfelli Jóhanns Ómars­sonar, sem var fyrr­verandi forstöðu­maður einka­banka­þjónustu Glitnis, en fjölmargir viðskipta­vinir þeirrar deildar bankans töpuðu háum fjárhæðum á Sjóði 9 í banka­hruninu. 

Á þessum tíma var Bjarni Benediktsson bæði stjórn­málamaður og þingmaður flokksins sem leiddi ríkis­stjórn Íslands, sem og fjár­festir og prókúru­hafi eins stærsta lántakanda Glitnis, N1 og tengdra félaga. Bjarni átti auk þess í miklum samskiptum við starfs­menn Glitnis á þessum tíma eins og Glitnis­gögnin sýna fram á og Stundin hefur reifað.  

Fundur mik­il­vægurSlita­stjórn Glitnis gerði tals­vert með fund Davíðs Odds­sonar og Þor­steins Más Bald­vins­sonar, stjórn­ar­for­manns Glitnis, þann 25. sept­em­ber 2008 en vit­neskja um hann kann að hafa ýtt á starfs­menn Glitnis að selja í Sjóði 9.

Erfið sönnunarstaða

Svo fór á endanum að slita­stjórn Glitnis höfðaði engin riftunarmál gegn fyrr­verandi starfs­mönnum bankans út af þessum viðskiptum með hlutdeildar­skírteini í Sjóði 9. Ein af ástæðunum var sú að sönnunar­staða í málunum var mjög erfið, samkvæmt skýrslu KPMG, þar sem sýna þurfti fram á að starfs­mennirnir hafi búið yfir upplýsingum sem ekki voru aðgengilegar öðrum eigendum hlutdeildar­skírteina á umræddu tímabili. Hið sama hefði átt við um Bjarna Benediktsson.

Þá rann­sakaði Fjármála­eftirlitið viðskipti með Sjóð 9 í aðdrag­anda banka­hrunsins eftir hrunið og sendi kæru vegna þeirra til embættis sérstaks saksóknara. Saksóknara­embættið lét rann­sóknina hins vegar niður falla. Þegar litið er til þess að ákæru­valdið aðhafðist ekkert gegn fyrr­verandi starfs­mönnum Glitnis, sem seldu fyrir háar fjárhæðir í Sjóði 9 eftir fundahöld Þorsteins Más Baldvins­sonar og Davíðs Oddssonar um slæma stöðu Glitnis, þá verður að teljast afar ólíklegt að viðskipti Bjarna Benedikts­sonar í Sjóði 9 hafi verið litin alvarlegum augum.

Staðreyndin er hins vegar sú að þessir starfs­menn Glitnis seldu eignir sínar í Sjóði 9 og Bjarni Benediktsson líka á meðan fjölmargir einstaklingar sem ekki störfuðu í stjórn­málum eða í banka­kerfinu brunnu inni með þessar eignir og töpuðu oft og tíðum háum fjárhæðum vegna þess.

Athugasemd ritstjórnar: Sýslu­maðurinn í Reykjavík lagði lögbann á umfjöllun Stundarinnar 16. október síðastliðinn. Yfir­standandi er dómsmál fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur þar sem þrotabú Glitnis fer fram á að lögbannið verði staðfest. Brot á lögbanni varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Til að fylgja lögum hefur Stundin því afmáð hluta umfjöllunarinnar sem túlka mætti sem brot á lögbanninu. Eftir stendur þannig sú umfjöllun sem aðrar heimildir eru fyrir en þau gögn sem lögbannið tekur til sem og endursögn af þegar birtri umfjöllun annarra fjölmiðla. 

Hér má nálgast PDF af umfjölluninni úr prent­útgáfu Stundarinnar.

 


Guðmundur Gunnarsson:

Pabbinn sem tapaði ævisparnaðinum

„Lífeyris­sjóður föður míns var fólginn í sölu á því fyrirtæki sem hann hafði byggt upp og setti það allt í eigna­stýringu Lands­bankans. Hann spurði mig nokkru fyrir hrun hvort hann ætti að færa peninga sína og ég sagði honum að við mæltum alltaf með því að þegar fólk væri komið yfir sextugt að það færði sparnað sinn á örugga staði því þá hefði það ekki svigrúm til þess að vinna inn niður­sveiflur. Hann talaði við spekinga Lands­bankans nokkru fyrir hrun og þeir sögðust sjá um þetta, engin viðvörun eða tilfærslur komu og svo fór að hann tapaði hverri einustu krónu af sínum lífeyris­sjóði. Þúsundir Íslendinga töpuðu eignum sínum á meðan aðrir höfðu innherja­upplýsingar og björguðu sér. Allt fram á síðustu stundu voru fjármála­ráðgjafar bankanna og fjár­festingar­sjóðanna að fá fólk til þess að leggja fram fjármuni í vonlaus dæmi. „Seldu húsið þitt og láttu okkur sjá um peningana þína, við skulum láta þá vinna fyrir þig og lána þér fyrir drauma­íbúðinni.“ 


Vilborg Davíðsdóttir:

Peningamarkaðssjóðirnir áttu að búa til peninga

„Ári fyrir hrun ákváðum við maðurinn minn heitinn að leggja vara­sjóðinn okkar inn á þessa peninga­markaðs­sjóði Glitnis og Lands­bankans sem sífellt var verið að dásama sem nánast peninga­prentvélar, svo mikil væri ávöxtunin. Svo skemmtum við okkur við að metast um hvort hefði grætt meira þann daginn miðað við tölurnar sem birtust á heima­bankanum, ég með mína milljón í Sjóði 9 hjá Glitni eða hann með sína hjá samsvar­andi sjóði í Lands­bankanum. Ég man að tengda­mamma hafði orð á því stuttu fyrir hrun að kannski færu bankarnir á hausinn og þá gætum við tapað þessu fé. Við hristum bara hausinn yfir áhyggjum gömlu konunnar, höfðum ekki hugmynda­flug í að það gæti gerst sem síðan varð. Þessar þrjár vikur sem við biðum eftir því að vita hvort eða hversu mikið yrði eftir af sparifénu voru heldur óþægilegar. En verra var vitanlega að sjá verð­tryggt húsnæðis­lánið frá Lands­bankanum rjúka upp í fram­haldinu.“


57 ára gömul kona sem býr í ­Reykjavík en vill ekki láta nafns síns getið:

Hverjir seldu þessa daga?

„Eðlilega staldrar maður við, þegar Bjarni Benediktsson kemur með skýringar á sölu eigin hluta­bréfa í Glitni og tilfærslu fé úr sjóði 9 það nánast litla … korter … sem opið var fyrir viðskipti þar hrun­dagana í október. Ætla ekki að gera lítið úr fjármála­læsi Bjarna en, mín tilfinning er að hann sé nánast skyggn. 

Það er dapurlegt að hugsa um alla þá sem töpuðu peningum þessa daga. Margir hverjir, ja eins og ég, áttu hlutabréf í Glitni og keyptu árlega fyrir arðinn til þess að freista þess að eiga varasjóð til efri áranna.  Ekki munum við útivinnandi mæður sem höfum, eðlilega, verið fjarri vinnu­markaði x langan tíma á starfs­ævinni njóta þess úr lífeyri­sjóðakerfum landsins. 

En það var ekki fyrr en í september 2008 sem ég fór að hugsa um hvort eitthvað óeðlilegt væri á seyði, hvort ég ætti að ná í þessa aura, og hringdi í bankann. Elskan mín, ekki hafa neinar áhyggjur, þetta fer upp von bráðar.  Og svo fór sem fór.  

Það sem mig langar verulega mikið til að vita núna er, hverjir það voru til dæmis sem seldu bréf í bankanum þessa mánuði fyrir hrun og hverjir það voru sem færðu fé úr sjóði 9 annað þetta ... kortér … sem opið var fyrir viðskiptin.“ 


Hólmfríður Tómasdóttir:

Dreymdi aldrei Sjóð 9

„Ég átti peninga í Sjóði 9 í banka­hruninu. Ég man ekki nákvæmlega hver sagði mér að setja þá þangað en ég hlýt að hafa fengið ráðgjöf um það frá einhverjum, kannski bankanum. Ég var sjálf ekki svo mikið inni í þessu. Sem betur fer þá dreymdi mig hins vegar draum sem gerði það að verkum að ég seldi þau hlutabréf sem ég átti í bönkunum. Þetta var nú samt bara eitthvert lítilræði. Mig dreymdi að ég væri að falla fram af bjargi og eftir þennan draum seldi ég hluta­bréfin. Mig dreymdi hins vegar engan draum um Sjóð 9. Það var alltaf talað um þetta eins og þetta væri svo ægilega sniðugt. Á þessum árum þá man ég eftir því að maðurinn minn sat í stólnum sínum, hlustaði á útvarpið og þuldi fyrir munni sér: „Það er eitthvað mikið að í þessu landi. Það er ekki hægt að búa til peninga úr engu.““


Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins á Íslandi:

Sjóður 9 var hin eina sanna lausn

„Þetta situr í mér ennþá þótt okkar félag hafi ekki tapað neinu að lokum. Bæði var að við áttum ekki mikla peninga og svo beitti ég mér af hörku við arftaka Glitnis. Á þeirri stundu var alveg óvíst hverjar endur­heimtur yrðu í þessum fjandans sjóði.

Við höfðum í gegnum tíðina verið með of marga reikninga í gangi og óþarflega marga að mati endur­skoðanda. Líknar­sjóður, styrktar­sjóður, framkvæmda­sjóður og marga fleiri. Við töluðum við Glitni, sem tók á móti okkur með eina sanna lausn. Loka þessum banka­bókum flestum og leggja allt inn á Sjóð 9. Það væri örugg ávöxtun, miklu betri en bækur og nánast eins laus og liðugur og bankabók. Sem betur fer áttum við ekki mikið af aurum, en það sem mér fannst ljótast var að láta svíkja það fé sem Íslendingar treystu okkur fyrir. Mörg líknar­félög töpuðu miklum peningum með því að láta glepjast inn í Sjóð 9 og aðra svipaða sjóði.“ 


Ingjaldur Arnþórsson:

Varð veikur út af tapinu á Sjóði 9

„Ég fjárfesti í Sjóði 9 að ráðleggingum bankans á Akureyri því ég hafði ágætis tekjur á þessu tímabili. Mér fannst allir vera að græða á þessum sjóðum. Bankinn sagði mér að Sjóður 9 væri lang­bestur og hann hækkaði líka upp úr öllu valdi og ég féll algjör­lega fyrir þessu. Ég greiddi mánaðar­lega í þetta af mínum launum. Auðvitað get ég ekkert skotist undan ábyrgð á þessu, þetta var algjör­lega á mína ábyrgð. Ég tapaði svo þessum peningum. Eftir það varð ég svo veikur út af því að ég tapaði öllum þessum peningum. Mér brá svo mikið að ég fór bara í algjört „blackout“. Ég veit enn þann dag í dag ekki hvað ég tapaði miklu. Þetta voru 4 til 6 milljónir. Einhver myndi kannski segja að þetta væru bara vasa­peningar en þetta var það ekki fyrir mig, venju­legan launþega. Ég fékk bréf í póstinum eftir banka­hrunið þar sem ég fékk bara þær upplýsingar að allir þessir peningar hefðu tapast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna

Mest lesið undanfarið ár