Fjárfestingaarmur Samherja skilinn frá útgerðinni

Gera á félagið Kaldbak sjálfstætt frá Samherja til að auka gangsæi og skerpa áherslur. Félagið mun taka yfir eignir útgerð­ar­innar sem ekki tengjast kjarna­starfseminni; veiðum, vinnslu og fiskeldi.

Útgerð, fyrst og síðast
Útgerð, fyrst og síð­ast Samkvæmt til­kynn­ingu Samherja mun Kald­bakur taka yfir þær eignir sem félagið á nú í fyr­ir­tækjum sem sinna öðru en kjarna­starf­semi útgerð­ar­innar. Mynd: Davíð Þór

Skilja á að félögin Kaldbak og Samherja, samkvæmt tilkynningu á vef Samherja. Hingað til hefur Kaldbakur verið einskonar fjárfestingaarmur útgerðar­risans og heldur félagið á eignar­hlutum Samherja­fjöl­skyldunnar í fjölda annarra fyrir­tækja. 

Báðu meginEiríkur S. Jóhanns­son er fram­kvæmda­stjóri Kaldbaks og stjórn­ar­for­maður Samherja.

Tilkynningin var send út í tilefni þess að Kaldbakur, sem er dóttur­félag Samherja, hafi fengið Lands­bankahúsið við Ráðhús­torgið á Akureyri afhent í dag. „Starfsemi Lands­bankans verður áfram í hluta hússins eða þar til bankinn finnur sér annan hentugan stað. Kaldbakur flytur sína starfsemi í húsið á næstu dögum, okkar markmið er að glæða það frekara lífi,“ er haft eftir Eiríki S. Jóhannsyni, framkvæmda­stjóra Kaldbaks, í tilkynningunni. Hann er líka stjórnar­formaður Samherja.

Aðskilnaður Samherja og Kaldbaks er sögð gerð til að skerpa á áherslum í starfseminni og auka gagnsæi. Kaldbakur eigi að vera sjálfstætt starfandi fjár­festinga­félag og taka yfir eignir Samherja sem …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    þir skilja aldri af veiðar og vinslu enda fer þar framm mesti stuldur aldarinar af afhludeild sjómanna sem nota bene leggja á sig vinnuna við að afla fisks en ekki útgerðarmenn sem hirða bara arðin þegar stolið hefur verið nóg af sjómönnum og fiskvinslu fóki Tvöfald siðgæði aðens fyrir glæpa menn sem þvo svo hagnaðin ,múta ráðamönnum annara þjóða til að geta stoilið nógu miklu .

    Verða lika að fela gróðann svo ekki þurfi að láta hann sjást á yfirborðinu það leðir af sjálfu sér að þufa að fela íllafengið fé .

    Eða eins og eiturlifjasölumaðurin sem gefur ekki upp til skatts enda ólöglegt að selja eitur lif .

    Ætli þeir samherja yfirmenn sem eiga von á höðrum dómi um allan hin vestræna heim ,séu ekki að reina að koma undan íllafengnu fé sem ekki þolir dagljósið .

    En góðu landsmenn og þá sérstaklega Akureyringar að þó svo yfirmenn Samherja fái lifstiðardóm að verða gerðir brottrækir úr íslenskri lögsögu, fer samherji ekkert eða öll flottu skipin eða þá kvótin sem verður eftir á skipunum ..
    Aðeins þeir sem eru siðlausir glæpamenn verða gerðir óvirkir og fá aldrei að stunda hér útgerð .

    Allt fólkið sem vinnur hjá samsteipuni heldur afram að vinna verðmæti úr aflanum okkar og fer ekki neitt.

    Enda Samhrji og dóttur fyrirtakin fara ekki neitt enda sjalstæður aðili .
    Aðeins skipt um kallana í brúnni eins og gerist hjá þem sem verða uppvísir af glæpamennsku af verstu gerð sem skaðar líðræðið.

    Og gott að losna við svoleiðis veiru úr okkar þjóðfélagi og litil eftirsja í svoleiðis veiru.
    0
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Það hefði nú verið stærri frétt ef þeir hefðu skilið að veiðar og vinnslu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár