Sýslumenn vilja áfram geta sett lögbann á fjölmiðla án dómsúrskurðar

Sýslumanna­félag Íslands leggst gegn frumvarpi Pírata: „Vinnur þvert gegn tilgangi laganna um lögbann.“

Þórólfur Halldórsson
Þórólfur Hall­dórs­son Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kom fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd vegna lög­banns­ins í fyrra. Mynd: Pressphotos

Sýslumanna­félag Ísland leggst eindregið gegn því að frumvarp Pírata um lögbann á fjölmiðla verði samþykkt, en með frum­varpinu eru lagðar til breytingar í þá veru að ekki verði unnt að leggja lögbann á upplýsinga­vinnslu og umfjöllun fjölmiðla án dóms­úrskurðar.

Í umsögn Sýslumanna­félagsins um frum­varpið, sem barst allsherjar- og menntamála­nefnd Alþingis í síðustu viku, eru gerðar athuga­semdir við ýmis atriði frum­varpsins og varað við réttaróvissu sem kunni að skapast ef það er samþykkt. 

Megin­gagnrýni félagsins er sú að með frum­varpinu sé dregið verulega úr gagnsemi lögbanns sem aðferðar til að vernda réttindi gerðar­beiðanda, það er þess aðila sem fer fram á að lögbanni sé beitt.

„Ef lögbann á að þjóna tilgangi sínum þá er eðli málsins samkvæmt mjög brýnt að krafa þar um fái skjóta máls­meðferð og er það tilgangur laga um lögbann að ekki þurfi að bíða eftir niður­stöðu dómstóls um efnið. Lögbanni er ætlað að tryggja óbreytt ástand á meðan leitað er álits dómstóla um lögmæti tiltekinnar athafnar,“ segir í umsögn Sýslumanna­félagsins sem er undir­rituð af Lárusi Bjarna­syni formanni þess.

„Sú tillaga sem lögð er fram í þessu frumvarpi vinnur þvert gegn tilgangi laganna um lögbann og skjóta málmeðferð lögbanns­beiðna. Tillagan stuðlar að mun lengri máls­meðferð og gerir það að verkum að sú réttarfars­lega bráðabirgða­vernd sem ákvæðum um lögbann er ætlað að tryggja er verulega skert ef ekki gagnslaus.“ 

Þannig telur Sýslumanna­félag Íslands að frum­varpið leiði til lengri álsmeðferðar og vinni þvert gegn tilgangi laga­ákvæða um lögbann. „Sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra hafa farið með lögbanns­gerðir frá því að dómsvald og umboðs­vald í héraði var aðskilið árið 1992 og farist það vel úr hendi. f flestum tilvikum hefur ákvörðun sýslu­manna verið staðfest fyrir dómstólum. Loks vakna spurningar um jafnréttis­sjónarmið í löggjöf þegar ákvæði í heildar­löggjöf eiga ekki að ná til ákveðinna aðila. Sýslumanna­félag íslands telur ekki ástæðu til þess að breyta lögum um lögbann á þann hátt sem lagt er til í umræddu frumvarpi og mælir gegn því að frum­varpið verði samþykkt.“

Umsögn Sýslumanna­félagsins er í takt við sjónarmið sem Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, viðraði í þingræðu þegar rætt var um frumvarp Pírata þann 21. desember síðastliðinn. 

„Það hefur enga þýðingu, eins og þetta frumvarp hér er, að dómstólar fari að ákveða lögbann eftir að hafa fjallað um stjórnar­skrána og tekist á um hana í marga mánuði. Því að þá er tjónið orðið. Þá hefur lögbann enga þýðingu lengur,“ sagði Brynjar. „Þess vegna hefur þetta frumvarp enga þýðingu. Þegar tjáningar­frelsi er takmarkað í lögum gildir það um alla í samfélaginu, líka fjölmiðla.“

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata og fyrsti flutnings­maður frum­varpsins, rakti í sömu umræðum að Mann­réttinda­dómstóll Evrópu hefði gefið út tilmæli um skilyrði sem yrðu að vera fyrir hendi svo skerða mætti tjáningar­frelsi með lögmætum hætti. Augljóst væri að ekkert mat hefði farið fram af hálfu sýslu­manns á því hvort skilyrðin væru uppfyllt.

„Ég held því hér fram að það sé ekki nauðsynlegt heldur beinlínis stór­hættulegt lýðræðis­þjóðfélagi að setja lögbann á umfjöllun fjölmiðla tveimur vikum fyrir kosningar um fjármála­viðskipti þá hæstráðanda framkvæmdar­valds þjóðarinnar,“ sagði hún. „Það er stór­hættulegt lýðræðinu og langt frá því að vera nauðsynlegt í lýðræðis­ríki. Það er því augljóst að matið á hvort það skilyrði hafi verið uppfyllt þegar ákveðið var að setja lögbann á umfjöllun Stundarinnar um fjármála­viðskipti hæstvirts fjármála­ráðherra Bjarna Benedikts­sonar í aðdrag­anda banka­hrunsins 2008 fór ekki fram á skrif­stofum sýslumanns­embættisins.“

Fyrirvari: Fjöl­miðillinn Stundin er aðili að lögbanns­máli sem nú er til meðferðar fyrir dómstólum og hefur verið stefnt af Glitni Holding fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur þar sem staðfestingarmál er enn yfir­standandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár