Vill draga úr gjaldeyrisáhættu hjá norska olíusjóðnum

Sjóðs­stjóri norska olíu­sjóðsins er í sjaldgæfu ítarlegu viðtali við Bloomberg Markets, tímarit Bloomberg. Hann stýrir stærsta fjár­festinga­sjóði heimsins.

Yngve Slyngdstad, sjóðs­stjóri norska olíu­sjóðsins, segir að það sé áherslumál hjá sjóðnum að minnka gjaldeyris­áhættu sjóðsins, og einangra hana að mestu við Bandaríkjadal, evru og breskt pund. Um 90 prósent af gjaldeyris­forða heimsins er í Bandaríkjadal og evru, þannig að stærsta gjaldeyris­áhættan hjá norska olíu­sjóðnum, stærsta fjár­festinga­sjóði í heimi, liggur alltaf í þessum tveimur myntum.

Í bréfi sem Slyngstad skrifaði til fjármála­ráðherra Noregs, og gert að umtals­efni í ítarlegu viðtali við Slyngstad í Bloomberg Markets, segir hann að sjóðurinn hafi áhættu í sínu eigna­safni í 23 gjald­miðlum, en að það sé stefna sjóðsins að minnka hana.

Slyngstad, sem er heim­spekingur að mennt, með framhaldsnám í stjórn­mála- og lögfræði, segir sjóðinn vera nú með um 70 prósent af eignum í hluta­bréfum, en 30 prósent í öðrum eignum, mest ríkis­skulda­bréfum.

Sjóðurinn á um 1,3 prósent af öllum skráðum skulda­bréfum í heiminum, og nema heildar­eignir hans nú meira en þúsund milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 120 þúsund milljörðum króna. Það er upphæð sem nemur um 23 milljónum á hvern Norðmann.

Slyngstad segir að það sé einlæg trú hans, og stefna sjóðsins, að hið mikla tekju­streymi sem kemur úr Norður­sjóð, úr olíu­auðlindum Noregs, verði áfram til staðar fyrir komandi kynslóðir. Það hafi í reynd alltaf verið þarna, en verkefnið sé að vernda það og komandi kynslóðir Noregs.

Hann nefnir sem dæmi, að vegna sjóðsins, hafi enginn efast um það á fjármála­mörkuðum, að Noregur gæti stutt fjármála­kerfi landsins, þegar alþjóða­markaðir gengum í gegnum storminn mikla, 2008 og 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár