Líkir Trump við mafíuforingja

James Comey, fyrr­verandi forstjóri FBI, líkir Donald J. Trump, Bandaríkja­forseta, við mafíu­foringja í nýrri bók sinni, A Higher Loyalty.

Fyrr­verandi forstjóri alríkis­lögreglunnar FBI, James Comey, segir í nýrri bók sinni, A Higher Loyalty, að Donald J. Trump Bandaríkja­forseti hafi minnt sig á mafíu­foringja, þegar hann átti samskipti við hann, skömmu eftir að hann varð forseti.

Þetta kemur fram í umfjöllun New York Times um bókina, en hún kemur formlega út á næstu dögum. Eitt stærsta málið sem Comey kom að sem rann­sakandi og saksóknari var þegar hann saksótti Gambino-fjöl­skylduna sem leiddi til uppbrots á skipulagðri glæpa­starfsemi hennar í New York.

Comey segir að Trump hafa um margt hagað sér með svipuðum hætti og mafíu­foringjarnir, ekki síst þegar hann krafði Comey um hollustu við sig. „Hinn þögli hringur samþykkis. Stjórn­andinn ræður öllu. Hollustan. Við á móti þeim, heimsýnin. Logið til um allt, stórt sem lítið, til að þjóna einhverri hollustu þar sem hreyfingin er mikil­vægari en siðferði og sann­leikur,“ segir meðal annars í umfjöllun New York Times.

Þá fullyrðir Comey í bókinni að Trump sé siðlaus, stjórnist alfarið af sjálfs­áliti sínu og hollustu­kröfum gagnvart sínum nánustu, og hafi enga raun­verulega leiðtoga­hæfileika. Þá sé hann eineltis­maður sem hiki ekki við að misnota aðstöðu sína.

Bókarinnar hefur verið beðið með mikilli eftir­væntingu, en Comey var undir miklu álagi sem forystu­maður alríkis­lögreglunnar, bæði vegna tölvu­pósta­rann­sóknarinnar sem beindist að Hillary Clinton og síðan vegna rann­sóknarinnar á Trump og tengslum framboðs hans við Rússa.

Comey á langan feril að baki í lögreglunni og réttar­vörslu­kerfinu í Banda­ríkjunum, en Barack Obama skipaði hann forstjóra FBI í júní 2013, en hann tók þá við af Robert Mueller, sem nú er sérstakur saksóknari í rannsókn á tengslum Rússa við kosninga­baráttuna í Banda­ríkjunum 2016, og mögulegum tengslum við kosninga­framboð Trumps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár