„Konur eru ekkert minna áberandi en karlkyns höfundar í dag – nema síður sé“

Konur eru teknar alvarlega sem skáld í dag, ólíkt því sem var þegar Soffía Auður Birgis­dóttir var að stíga sín fyrstu skref sem bókarýnir fyrir rúmlega þrjátíu árum. Í nýrri bók sem kemur út í tilefni af sextíu ára afmæli Soffíu bregður hún upp fjöl­breyttri mynd af konum í íslenskum bókmenntum.

Reynslumikill rýnir
Reynslu­mik­ill rýnir Soffía Auður hefur mark­visst rýnt í íslenskar bók­menntir í á fjórða ára­tug. Í nýrri bók hennar varpar hún upp fjöl­breyttri mynd af konum, í gegnum verk höf­unda á borð við Halldór Laxness, Svövu Jak­obs­dóttur, Vigdísi Gríms­dóttur, Kristínu Ómars­dóttur, Elísa­betu Kristínu Jök­uls­dóttur og marga fleiri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í á fjórða áratug hefur Soffía Auður Birgis­dóttir verið virkur gagn­rýnandi íslenskra bókmennta. Hún hefur þar að auki gefið íslenskum skáld­konum sérstakan gaum og lagt sig eftir að rýna í verk þeirra, nokkuð sem margir kollega hennar hafa vanrækt, í það minnsta hér áður fyrr. Nýlega kom út á vegum Háskóla­útgáfunnar bók hennar Maddama, kerling, fröken, frú en í henni er að finna 31 grein eftir Soffíu, þar sem rýnt er í kven­lýsingar íslenskra nútíma­bókmennta. Þannig varpar Soffía upp fjöl­breyttri mynd af konum, í gegnum verk höfunda á borð við Halldór Laxness, Svövu Jakobs­dóttur, Vigdísi Gríms­dóttur, Kristínu Ómars­dóttur, Elísabetu Kristínu Jökuls­dóttur og marga fleiri. 

Soffía fagnar sextugsafmæli sínu í ár. „Kannski var það afmælis­gjöf til sjálfrar mín að gefa út hluta af þessum greinum sem ég hef skrifað um konur í bókmenntum og kven­lýsingar í bókmenntum. Þó að meirihluti þeirra fjalli um kven­rithöfunda eru þarna líka greinar um bækur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár