Trump hótar að „heil siðmenning mun deyja í kvöld“

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur ítrekað hót­anir sínar gagn­vart Íran ef stjórn­völd þar í landi semji ekki um enda­lok átaka sem hófust með sprengju­árásum Banda­ríkj­anna og Ísraels.

„Heil sið­menn­ing mun deyja í kvöld og verður aldrei end­ur­vakin,“ sagði Donald Trump í færslu á sam­fé­lags­miðli sínum og ítrek­aði kröfur sínar til íranskra stjórn­valda um að semja um enda­lok stríðs­ins sem hann hóf gagn­vart land­inu.

For­set­inn banda­ríski hefur gefið Írönum til mið­nættis í kvöld til að verða við kröfum sínum, sem fel­ast meðal ann­ars í því að Íranir leyfi á ný frjálsa för skipa um Hor­mússund. Um sundið fer stór hluti olíu heims­ins og hefur lok­unin þegar haft víð­tæk efna­hags­leg áhrif. 

Trump skrif­aði í færsl­unni að hann von­að­ist til að kannski geti „eitt­hvað bylt­ing­ar­kennt og dásam­legt gerst“ til að koma í veg fyrir átök. Þá kall­aði hann stöð­una eitt mik­il­væg­asta augna­blik í „langri og flók­inni sögu heims­ins“.

„47 ára kúgun, spill­ingu og dauða mun loks­ins ljúka. Guð blessi hina stór­kost­legu írönsku þjóð!“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Greg Hill skrifaði
    "Kill the people to set them free, who set this price on their liberty?" - Lína úr laginu „El Salvador“ eftir Peter Paul og Mary á tímum stjórnarskiptanna sem Bandaríkin hófu á níunda áratugnum. Sama lygin er notuð aftur núna í Íran en hvers vegna heldur einhver áfram að trúa henni, jafnvel í eina sekúndu?
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Er þetta geðsjúka gamalmenni að daðra við kjarnorku?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár