Ísland raðgreinir mest í heimi

Í Suður-Afríku, þar sem hið nýja afbrigði kórónu­veirunnar Ómíkron greindist fyrst í síðustu viku, eru innan við 1 prósent jákvæðra sýna raðgreind. Hlut­fallið er langhæst á Íslandi.

Ísland: Fyrsta sæti.

Danmörk: Annað sæti.

Ástralía: Þriðja sæti.

Þegar kemur að einu helsta tæki sem mannkynið hefur til að fylgjast með þróun kórónu­veiru­faraldursins og mögulega bregðast við með áhrifa­ríkum hætti á hverjum tíma er Ísland fremst í flokki. Hér hafa 56,2 prósent allra jákvæðra sýna verið raðgreind. Danir sem koma næstir hafa greint 46,6 prósent.

Um þetta er fjallað í frétta­skýringu Washington Post.

Mann­fjöldi og þar af leiðandi fjöldi sýktra er vissulega misjafn milli okkar Íslendinga og t.d. Banda­ríkjanna en þar í landi hafa aðeins 3,6 prósent jákvæðra sýna verið raðgreind. Þar hafa hins vegar greinst um 48 milljónir tilfella en hér eru þau 17.770 talsins.

Raðgreining varpar ljósi á gerð veirunnar og breytingar sem á henni verða. Veirur breytast stöðugt en aðeins er farið að tala um ný afbrigði þegar þessar breytingar eru orðnar umfangs­miklar. Þannig hefur Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunin skilgreint afbrigði og gefið þeim nafn: Alfa. Beta. Gamma. Delta.

Og nú Ómíkron.

Á þessari stundu er ekki vitað hvort að Ómíkron varð til í Suður-Afríku þó að það hafi fyrst uppgötvast þar líkt og þarlendir vísinda­menn tilkynntu opinber­lega í lok síðustu viku. Svo miklar og þess eðlis voru stökk­breytingarnar á veiru­afbrigðinu, sem hafði fyrst og fremst greinst á ákveðnu svæði í landinu en hefur nú greinst í löndum víðsvegar um heiminn, að Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunin ákvað að setja það þegar á lista yfir afbrigði sem valda áhyggjum. Hvort að þær reynist réttmætar á þó enn eftir að koma í ljós. Stór bylgja gengur nú yfir flest Evrópu­ríki sem og Banda­ríkin. Það hefur ekkert með Ómíkron að gera en óttinn felst í því að afbrigðið gæti enn aukið á þann vanda sem faraldurinn er nú að valda. Þess vegna einkenndust viðbrögð margra ríkja af skelfingu – og ferðabönn hafa aftur verið tekin upp, aðallega á ferðalög frá ríkjum í sunnan­verðri Afríku þar sem Ómíkrón greindist fyrst. Japan og Ísrael gengu skrefinu lengra og hafa skellt ferða­banni á alla erlenda ríkis­borgara, hvaðan svo sem þeir eru að koma.

Í næsta mánuði verða tvö ár liðin frá því að kórónu­veiran greindist fyrst í Wuhan í Kína. Síðan þá hafa fjölmörg afbrigði skotið upp kollinum, nokkur orðið ráðandi á ákveðnum svæðum eða um ákveðinn tíma en ekkert þó í líkingu við Delta, afbrigðið sem fyrst greindist á Indlandi fyrir um ári.

Veirur greindar og gögnum deilt með öðrum

Þekking á afbrigðum fæst með raðgreiningu og slíkum upplýsingum er deilt með öðrum, m.a. í gegnum fyrirbæri sem kallast GISAID. Í Suður-Afríku, þar sem Ómíkron var fyrst greint, eru raðgreiningar ekki stundaðar af sama kappi og hér á landi. Þar hafa aðeins um 0,8 prósent allra jákvæðra sýna verið raðgreind en tilfelli COVID-19 frá upphafi faraldursins eru um þrjár milljónir.

Í greiningu Washington Post á gögnum um raðgreiningar kemur fram að þótt aðeins um 3,6 prósent af jákvæðum sýnum í Banda­ríkjunum séu raðgreind sé það framför frá því fyrir tæpu ári er hlut­fallið var aðeins 0,3 prósent. Á Indlandi er hlut­fallið aðeins um 0,2 prósent. Í apríl, er Delta-faraldurinn reis sem hæst, var það 0,06 prósent.

Þetta hlutfall skiptir máli og vísinda­menn telja að það verði að vera ákveðið hátt svo hægt sé að grípa til aðgerða tímanlega.

Það er sama hvort horft er til raðgreininga eða bóluefna­skammta. Fátækustu ríki veraldar eru á botninum. Á meðan örvunar­skammtar eru gefnir á Vestur­löndum er aðeins búið að bólusetja um 6 prósent þeirra 1.200 milljóna manna sem búa í Afríku. Aðeins um 3 prósent íbúa fátækustu ríkja heims hafa verið bólusett.

Vísinda­menn og alþjóða­stofnanir, m.a. WHO, hafa frá upphafi varað við því að misskiptingin ætti eftir að koma í bakið á þeim sem keyptu sig fremst í forgangs­röðina. „Þangað til að við bólu­setjum nægilega marga mun þetta gerast aftur og aftur,“ hefur Washington Post eftir Glendu Gray, sem fer fyrir læknaráði Suður-Afríku. Óbólusettir munu alltaf dreifa veirunni meira og hraðar en bólu­settir og eftir því sem veiran hefur fleiri líkama að sýkja mun hún halda áfram að stökk­breytast – jafnvel til hins verra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár