Aldraðir svelta á nýrri skopmynd Morgunblaðsins

Helgi Sigurðsson, skopmynda­teiknari Morgun­blaðsins, heldur áfram að fjalla um komu flótta­manna til Íslands. Aldraðir fá hálfan skammt af vatnssúpu vegna kostnaðar við móttöku flótta­manna.

Helgi Sigurðsson, skopmynda­teiknari Morgun­blaðsins, teiknar í dag upp dystópíska framtíð þar sem afleiðingar þess að taka á móti fimm þúsund flótta­mönnum eru orðnar ljósar. Á myndinni er gægst inn á öldrunar­heimili þar sem aldraðir hálf­partinn svelta, því einungis er í boði hálfur skammtur af vatnssúpu. Í ramma uppi á vegg segir að móttaka fimm þúsund hælis­leitenda hafi haft í för með sér hundrað milljarða kostnað fyrir ríkið, en þar er vitnað í orð Vilhjálms Bjarna­sonar, þingmanns Sjálfstæðis­flokksins. Hann sagðist í Útvarpi Sögu fyrr í vikunni sjálfur áætla að móttaka hvers flótta­manns kosti um fimmtán til tuttugu milljónir, þannig að móttaka fimm þúsund flótta­manna kosti ríkið um hundrað milljarða eða sem nemur nýjum Land­spítala. 

Helgi var harðlega gagn­rýndur fyrir skop­teikningu sína síðastliðinn þriðjudag sem sýndi sökkvandi skip í blóð­rauðum sjó. Flótta­mennirnir um borð í bátnum, sem var merktur Sýrlandi, ákölluðu Eygló Harðar­dóttur, félags- og húsnæðis­mála­ráðherra, með sömu orðum og Bryndís Björgvins­dóttir, rithöfundur, gerir á Facebook vettvangi sem þegar hefur vakið heims­athygli. Titill myndarinnar var jafnframt „Helferðar­túrismi ákallar hin blæðandi hjörtu“. Mörgum þótti myndin afar ósmekkleg og sagði Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, hana Morgun­blaðinu til ævarandi skammar. „Hversu lágt er hægt að leggjast í sorp­blaða­mennsku? Ég tel að neðar sé ekki hægt að fara. Þessi mynd sem á að kallast skopmynd er ekkert annað en viðbjóður og Morgun­blaðinu og eigendum þess til ævarandi skammar,“ sagði hann meðal annars. 

Helferðartúrismi
Helferðar­túrismi Helgi Sigurðsson var harðlega gagn­rýndur fyrir skop­teikningu þriðjudagsins.

Aðrir komu Helga til varnar. Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, sagði að fólkið sem hafði mikla þörf á að tjá ást sína á Charlie Hebdo væri nú „froðu­fellandi af reiði vegna skop­myndar í Mogganum“. Þá sagði hann þetta fólk hafa litla ást á tjáningar­frelsi og 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár