Stjórnvöld í Norður-Kóreu hóta að hætta við fundinn með Trump

Heræfingar Bandaríkja­manna og Suður-Kóreu eru álitnar ögrun við Norður-Kóreu.

Stjórn­völd í Norður Kóreu hóta því að aflýsa fyrir­huguðum leiðtoga­fundi þeirra Kim Jong-Un og Donalds Trump í júní næst­komandi, en hann á að fara fram í Singapúr.

Grundvallar­krafa Banda­ríkjanna er sögð vera sú að Norður-Kórea eyði sínum kjarnorku­vopnum, en nú þegar hefur tilrauna­svæði landsins, þar sem eldflaugum hefur verið skotið á loftið, verið jafnað við jörðum.

Í umfjöllun Washington Post segir að stjórn­völd í Norður-Kóreu hafi frestað fundi með yfir­völdum í Suður-Kóreu þar sem heræfingar Banda­ríkjanna og Suður-Kóreu, á Kóreu­skaga, feli í sér ögrun við Norður-Kóreu.

Aðstoðar­utan­ríkis­ráðherra Norður Kóreu, Kim Kye Gvan, sendi frá sér yfir­lýsingu í gær, sem flutt var samvisku­samlega í ríkis­fjölmiðlum landsins, meðal annars í sjónvarpi. Þar varaði hann við því, að Norður-Kórea yrði ekki kúguð til að afvopnast að fullu, og að heræfingar Banda­ríkjanna og Suður-Kóreu væru ekki til þess fallnar að skapa ráðrúm til góðra samskipta.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur sagst vera vongóður um að viðræður við Kim Jong Un muni leiða til þess, að meiri friðsemd skapist á Kóreu­skaga, og að ógnin af Norður-Kóreu yrði ekki lengur fyrir hendi. Hefur það verið afdráttar­laus krafa Banda­ríkjanna að Norður-Kórea afvopnist alveg af kjarnorku­vopnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár