Hópur þingmanna Sjálfstæðisflokks vill bjóða út rekstur flugstöðvar Keflavíkurflugvallar

Fimm þingmenn Sjálfstæðis­flokks vilja að Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra nýti laga­heimildir til að opna á útboð á ýmsum þáttum í rekstri Isavia á Kefla­víkur­flugvelli, til dæmis reksturs fríhafnar­verslana á vellinum.

Friðjón R. Friðjónsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokks er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Friðjón R. Frið­jóns­son vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Bára Huld Beck

Fimm þingmenn Sjálfstæðis­flokks, þar af þrír vara­þingmenn, hafa lagt fram þings­ályktunar­tillögu þess efnis að fjármála- og efnahags­ráðherra verði falið að gera ráðstafanir svo að bjóða megi út rekstur, viðhald og uppbyggingu Isavia á starfsemi í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar.

Þing­mennirnir vilja að ráðherra búi svo um hnútana að „fagaðilum“ verði kleift að bjóða í rekstur verslana með toll­frjálsar vörur á flugvallar­svæðinu, starfsemi sem er í beinum tengslum við flug­rekstur, rekstur flugvalla og flug­stöðvar og „aðra starfsemi sem nauðsynlegt er að sé innan hafta­svæðis flug­verndar“.

Friðjón R. Friðjónsson borgar­fulltrúi í Reykjavík og vara­þingmaður er fyrsti flutnings­maður tillög­unnar, en auk hans eru þing­konurnar Berglind Ósk Guðmunds­dóttir og Hildur Sverris­dóttir og vara­þing­mennirnir Björgvin Jóhannesson og Arnar Þór Jónsson í hópi flutnings­manna.

Einn óhagkvæmasti og dýrasti flugvöllur í Evrópu

Í greinar­gerð með tillög­unni segir að ef fjármála­ráðherra nýti heimild sína samkvæmt lögum til að leyfa Isavia að „gera hvers konar samninga við aðra aðila til að ná tilgangi sínum á sem hagkvæmastan hátt“ og Kefla­víkur­flugvöllur verði þannig rekinn með blönduðu rekstrar­fyrir­komulagi yrði „hægt að auka samkeppnis­hæfni flug­vallarins í þágu neytenda“.

Þetta rökstyðja þing­mennirnir með því að vísan í samkeppnismat OECD á íslenskri ferða­þjónustu og byggingar­iðnaði frá 2020, þar sem fram kemur að Kefla­víkur­flugvöllur „sé einn óhagkvæmasti og dýrasti flug­völlur í Evrópu, jafnvel í saman­burði við flugvelli af sömu stærð sem taka á móti svipuðum fjölda farþega og starf­ræktir eru við sambærilegar veðurfars­aðstæður“ og að „rekstur opinbera hluta­félagsins Isavia sé sá óhagkvæmasti í saman­burði við rekstur allra annarra flug­rekstrar­aðila í Evrópu“.

Í útdrætti úr skýrslu OECD sagði að líkur væru á að núgildandi regluverk og fyrir­komulag eignar­halds flugvalla á Íslandi kynni að stuðla að þessari niður­stöðu. Lagt var til af hálfu OECD að kannaðar yrðu leiðir til að „auka hvata Isavia á Kefla­víkur­flugvelli til að draga úr kostnaði og auka samkeppnis­hæfni“ til dæmis með breyttri skipan eignar­halds eða reksturs með útboði á rekstri Kefla­víkur­flugvallar, eða aðskildu útboði fyrir rekstur innan­landsflug­valla.

Þing­mennirnir fimm segja þings­ályktunar­tillögu sína fyrsta skrefið í þessa átt og minnast einnig á gagnrýni sem Isavia hefur hlotið frá Samkeppnis­eftirlitinu, en í áliti eftirlits­stofnunarinnar sem gefið var út í janúar á þessu ári sagði að háttsemi Isavia á síðustu árum hefði vakið upp „áleitnar spurningar“ um það hvernig ríkis­fyrirtækið nálgaðist samkeppni og samkeppnismál.

Í greinar­gerð þing­mannanna segir að fjárþörf Isavia verði mikil á næstu árum og bent er á að samkvæmt ársskýrslu Ríkis­endur­skoðunar frá 2021 telji Isavia sig þurfa að lágmarki 12-18 milljarða króna í nýju hlutafé á næstu tveimur árum til að standa undir nauðsyn­legum fjár­festingum. Að mati þingmanna Sjálfstæðis­flokks er það vafamál „hvort réttlætanlegt sé að nota almannafé í áhættu­rekstur líkt og rekstur flug­stöðvar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár