„Við eigum að verja landið“

Ólafur Valsson, fyrr­verandi eftirlits­maður hjá Eftirlits­stofnun EFTA, reynir að verja land í Öxnadal fyrir umdeildum raflínum, en er gáttaður á vinnu­brögðum Umhverfis­stofnunar. Land hans er hluti af stærra svæði sem er á náttúru­minjaskrá, en lítið gengur að fá það friðlýst hjá stofnuninni sem hefur það hlutverk.

Gáttaður
Gáttaður Ólafur hefur unnið sem eft­ir­lits­að­ili víða um heim en minn­ist þess ekki að hafa rek­ist á önnur eins vinnu­brögð og hjá Umhverf­is­stofnun. Það sé engin sýn, engin stefna, engir verk­ferlar um hvernig skuli standa að frið­lýs­ing­ar­málum.

Norður í Eyja­fjarðar­sýslu eru Hólahólar beint á móti Hrauns­hrauni í Öxnadal. Svæðið er hluti af landslags­heild sem hefur verið á náttúru­minjaskrá frá 1978, þar sem þetta þykir „fjöl­breytt og fagurt land með stöðu­vötnum, stórum fram­hlaupum og sérkenni­legum kletta­dröngum, svo sem Hraun­drangur.“

Búið er að friðlýsa hluta svæðisins, það er að segja Hrauns­megin en Ólafur Valsson, land­eigandinn að Hólum hefur sóst eftir því að svæðið þar verði einnig friðlýst sem fólks­vangur, en málið strandar á Umhverfis­stofnun. Ólafur sem hefur um árabil starfað við eftirlit og ráðgjöf með opinberum stofnunum erlendis segist hvergi hafa kynnst öðrum eins vinnu­brögðum.

Sérstakt landssvæði

„Hólar í Öxnadal eru beint á móti Hrauni,“ útskýrir Ólafur. „Þetta er eitt lands­svæði, Hraun í Öxnadal, hraun­dranginn og síðan allir hólarnir við Hraun. Þarna varð eitt stærsta berghlaup á Íslandi, sam­bærilegt við Vatns­dalshólana. Þarna hefur hrunið úr og fjallið fallið niður þar sem hraun­göngin eru. 

Öll sú hlíð hefur farið þegar hraunið skreið fram og eins fjallið á móti, sem er okkar megin í hólunum. Þessi landslags­heild heitir mismun­andi nöfnum sitthvorum megin við ána. Hólarnir í Hrauni eru kallaðir Hrauns­hraun og hinum megin eru það Hólahólar. Í náttúru­minjaskrá er tekið fram að svæðið sé Hrauns­hraun og Hólahólar.

Fyrir nokkrum árum var hlutinn í Hrauni frið­lýstur sem fólks­vangur að ánni og svo stóð alltaf til að friðlýsa áfram, vegna þess að þarna er mjög merkileg jarðfræði. Þarna er gömul eldstöð, ein af þessum fjórum stóru gömlu eldstöðvum er þarna uppi í minninu á Hóladal, sem gengur upp af þessum hólum. Það er örugglega þess vegna sem þessar miklu jarð­hræringar urðu til þess að þetta hrundi, því það er frekar gljúft berg þarna.“

Sáu fréttirnar fyrir tilviljun

Árið 2008 kom svo í ljós að Landsnet hafði í hyggju að leggja línu yfir jörðina. Línan, sem kallaðist Blöndu­lína 3, átti að liggja frá Blöndu­virkjun til Akureyrar og í gegnum dalinn endi­langan, samhliða gamalli byggðar­línu. „Við höfðum reyndar aldrei fengið neina tilkynningu um að það stæði til að leggja þessa línu. Fyrir tilviljun sáum við fréttir af því að Skagfirðingar settu sig upp á móti þessu og þá fórum við að skoða þetta og sáum hvað var. Þá sáum við meðal annars að því væri haldið fram að línan færi ekki yfir svæði sem er á náttúru­minjaskrá sem er rangt. Við skrifuðum langa greinar­gerð þar sem við mótmæltum línunni og bentum á að hún færi yfir svæði á náttúru­minjaskrá en það var snúið út úr því af hálfu Landsnets.“

Ólafur segir að Umhverfis­stofnun hafi gert mistök á þessum tíma­punkti í málinu. Hún hefði átt að gera athugasemd við umhverfis­matið á þeim forsendum að línan lægi yfir svæði á náttúru­minjaskrá en henni hafi láðst að gera það. Hann bendir á að korta­grunnur af svæðinu sé vitlaus og það hafi kannski valdið þessum mistökum. „Það er fyrsta feil­sporið, og eitt af því sem Landsnet nuddar núna framan í stofnunina – að hún hafi ekki gert athuga­semdir þá og því sé undarlegt að hún geri það núna. Kannski er það að þvælast fyrir þeim.“

Landeigendur mótmæltu línunni

Fyrir er byggða­lína sem fer um þetta svæði. Blöndu­lína 3 var hins vegar mun stærra mannvirki, 220 kw lína á stálgrindar­möstrum. Ráðgert var að línan lægi meðfram þjóð­veginum og inn í dalinn, sem er mjög þröngur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár