Segir kynferðisbrot oftast „fara fram milli nátengdra aðila“

Páley segir orð sín hafa verið slitin úr sam­hengi

Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, segir að ummæli sem höfð voru eftir henni á Stöð 2 í gær hafi verið slitin ræki­lega úr sam­hengi. Hún hafi þó ekki horft á umrædda frétt. 

„Ég heyrði nú ekki frétt­ina í heild sinni þarna en sá að hún hafði verið slitin ræki­lega úr sam­hengi. Að minnsta kosti fékk ég spurn­ingu um hvort það yrði ekki að til­kynna hátíð­ar­gestum um það ef brot hefði verið framið á hátíð­inni og ég svar­aði með þeim hætti að oft­ast væru þessi brot framin, að þau fara fram á milli nátengdra aðila í heima­húsum eða ein­hverjum í lok­uðum rýmum sem þau væru á og þá var ég að svara því til að ef ein­hver almanna­hætta væri uppi þá mundum við að sjálf­sögðu upp­lýsa um það,“ segir Páley í við­tali við RÚV. „En mér skilst nú að spurn­ingin hafi ekki fylgt svar­inu svo það er búið að slíta það svar mitt tals­vert úr sam­hengi.“

Þau umdeildu ummæli sem Vísir og Stöð 2 höfðu áður haft eftir Páleyju hljóða svo: 

„Flest þess­ara brota eiga sér stað á milli tveggja ein­stak­linga í lok­uðum rýmum þangað sem fólk fer yfir­leitt sjálf­vilj­ugt. Það er bara stað­reyndin. Við erum ekki að sjá þessi brot, sem betur fer og von­andi munum við ekki sjá það og reynum að fyr­ir­byggja með öfl­ugri gæslu og svona, þessi almanna­fær­is­brot. Og það er nátt­úr­lega það sem sífellt er verk­efni lög­reglu. Að reyna að tryggja lög­gæslu á almanna­færi og all­staðar svo fólk sé óhult þar sem það er á gangi á ýmsum vett­vangi. En það er erf­ið­ara við að eiga, og þess vegna eru þetta svona við­kvæm brot, þau ger­ast mjög oft á milli tengdra og nátengdra aðila inni í lok­uðu rými.“

Sjá einnig:

Umdeildur lög­reglu­stjóri skorar á bæj­ar­stjór­ann að bjóða sig fram til Alþingis

Elliði kemur Páleyju til varnar en rík­is­lög­reglu­stjóri segir
þagn­ar­kröfu hennar „stíl­brot“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár