Stjórn Kadeco mun ekki taka afstöðu í máli fyrrverandi framkvæmdastjóra

Ekki mun reyna á afstöðu stjórnar Kadeco gagn­vart svörum fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra félags­ins vegna við­skipta hans á Ásbrú þar sem hann hefur þegar sagt upp starfi sínu.

Kjartan Þór Eiríksson.
Kjartan Þór Eiríks­son. Mynd: Kadeco

Kjartan Þór Eiríks­son, sem nýverið sagði starfi sínu sem fram­kvæmda­stjóri Kadeco lausu, hefur skilað stjórn félags­ins skrif­legum svörum vegna við­skipta sinna á Ásbrú og tengslum sínum við kaup­endur eigna sem Kadeco hefur selt á síð­­­ustu árum á svæð­inu. Stjórn Kadeco hefur hvorki sent fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu svörin né hefur ráðu­neytið óskað eftir að fá þau send. Þar sem Kjartan Þór hefur þegar sagt starfi sínu lausu mun ekki reyna á afstöðu stjórnar Kadeco til svara hans við spurn­ingum stjórn­ar­innar. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem fer með eign­ar­hald rík­is­ins í Kadeco, við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Þar segir enn fremur að ráðu­neytið fari fyrst og fremst með stefnu­mark­andi ákvarð­anir um rekstur Kadeco en skipti sér ekki af rekstr­inum frá degi til dags.

Í viðskiptasambandi við viðskiptavin Kadeco

Kadeco, sem er þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vallar, sendi frá sér til­kynn­ingu 1. ágúst síð­ast­lið­inn þar sem fram kom að Kjartan Þór, sem hafði gegnt starfi fram­kvæmda­stjóra frá stofnun félags­ins árið 2006, hefði sagt starfi sínu lausu. Hann lét sam­stundis að störf­um.

Kjart­ani Þór var gert að gera munn­legar skýr­ingar á við­­skiptum sínum á Ásbrú og tengslum sínum við kaup­endur eigna sem Kadeco hefur selt á síð­­­ustu árum á svæð­inu á stjórn­­­ar­fundi sem fram fór í lok júní. Stjórn félags­­ins ákvað í kjöl­farið að óska eftir því að Kjartan Þór geri stjórn­­inni skrif­­lega grein fyrir við­­skiptum sínum á svæð­inu. Kjarn­inn hefur óskað eftir upp­lýs­ingum frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu um hvort það hafi verið gert en ekki fengið svör við þeirri fyr­ir­spurn.

Málið snýst um tengsl Kjart­ans Þórs við Sverri Sverr­is­son. Félög tengd Sverri keyptu þrjár fast­­eignir af Kadeco á und­an­­förnum árum á sam­tals 150 millj­­ónir króna. Síð­­asta eignin sem félög tengd honum keyptu var seld í febr­­úar á þessu ári, nokkrum mán­uðum eftir að Kjart­an Þór og Sverrir hófu við­­skipta­­sam­­band. Þeir eiga saman félagið Airport City á Ásbrú sem stundar fast­­eigna­við­­skipti, þó ekki við Kadeco.

Lagt niður í núver­andi mynd

Kjarn­inn greindi frá því í lok júní að til standi að leggja starf­­semi Kadeco niður í núver­andi mynd. Skipt var um stjórn í félag­inu fyrir um mán­uði síðan og upp­­runa­­legu hlut­verki þess, að selja fast­­eignir á Ásbrú, er nú lok­ið. vilji taka upp við­ræður við heima­­menn um hvernig sé hægt end­­ur­­skoða starf­­sem­ina með það í huga.

Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði við Kjarn­ann að hann hafi lýst þess­­ari skoðun sinni á fundum með starfs­­fólki Kadeco í lok júní­mán­að­ar. Nokkrum dögum áður var hald­inn aðal­­fundur Kadeco og þar var kosin ný þriggja manna stjórn. Sig­­urður Kári Krist­jáns­­son, lög­­­maður og fyrr­ver­andi þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks, hafði verið for­­maður stjórn­­­ar­innar en vék ásamt tveimur öðrum stjórn­­­ar­­mönn­­um. Í stað Sig­­urðar Kára var Georg Brynjar­s­­son, hag­fræð­ingur og stjórn­­­ar­­maður í Við­reisn, kjör­inn stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur. Auk hans komu tveir starfs­­menn fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­is­ins inn í stjórn Kadeco. Bene­dikt stað­­festi við Kjarn­ann að þessar breyt­ingar væru liður í því að leggja starf­­semi Kadeco niður í núver­andi mynd.

Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að nýskipuð stjórn Kadeco hafi verið falið að fara yfir verk­efna­stöðu félags­ins og gera til­lögur um hvernig þeim verk­efnum sem það hefur verði best fyrir komið í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár