Vildu að framkvæmdastjóri Kadeco gerði skriflega grein fyrir viðskiptum sínum

Fram­kvæmda­stjóri Kadeco gerði munn­lega grein fyrir við­skiptum sínum við kaup­anda eigna á Ásbrú á stjórn­ar­fundi í fyrra­dag. Stjórnin óskaði eftir skrif­legum skýr­ingum. Fram­kvæmda­stjór­inn á félag með manni sem keypti þrjár fast­eignir af Kadeco.

Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco.
Kjartan Þór Eiríks­son, fram­kvæmda­stjóri Kadeco. Mynd: Kadeco

Fram­kvæmda­stjóri Kadeco, Kjartan Þór Eiríks­son, gaf munn­legar skýr­ingar á við­skiptum sínum á Ásbrú og tengslum sínum við kaup­endur eigna sem Kadeco hefur selt á síð­ustu árum á svæð­inu á stjórn­ar­fundi sem fram fór á þriðju­dag. Stjórn félags­ins, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, ákvað í kjöl­farið að óska eftir því að Kjartan geri stjórn­inni skrif­lega grein fyrir við­skiptum sínum á svæð­inu. Þetta segir Sigurður Kári Krist­jáns­son, frá­far­andi stjórn­ar­for­maður Kadeco, í sam­tali við Kjarnann.

Félög tengd Sverri Sverris­syni keyptu þrjár fast­eignir af Kadeco á und­an­förnum árum á sam­tals 150 millj­ónir króna. Síðasta eignin sem félög tengd honum keyptu var seld í febr­úar á þessu ári, nokkrum mán­uðum eftir að Kjartan, fram­kvæmda­stjóri Kadeco, og Sverrir hófu við­skipta­sam­band. Þeir eiga saman félagið Airport City á Ásbrú sem stundar fast­eigna­við­skipti, þó ekki við Kadeco.

Eftir að stjórn­ar­fund­inum lauk var hald­inn aðal­fundur Kadeco og á honum var kosin ný stjórn. Enginn þeirra þriggja sem sat í stjórn var end­ur­kjörin. Þessi í stað var Georg Brynjars­son, hag­fræð­ingur og stjórn­ar­maður í Viðreisn, kjör­inn stjórn­ar­for­maður. Auk hans komu tveir starfs­menn fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins inn í stjórn Kadeco, en félagið heyrir undir það ráðu­neyti. Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, stað­festi við Kjarnann í gær að til stæði að leggja starf­semi Kadeco niður í núver­andi mynd þar sem upp­runa­legu hlut­verki þess, að selja fast­eignir á Ásbrú á Kefla­vík­ur­flug­velli, væri lokið.

Selt áfram til Bílaleigu Akureyrar

Kjartan fram­kvæmda­stjóri hefur legið undir ámæli eftir að greint var frá því, í vef­miðl­inum Local Suðurnes, að hann ætti helm­ings­hlut í félag­inu Airport City á Ásbrú. Hinn helm­ing­ur­inn í félag­inu er í eigu fjár­fest­is­ins Sverris Sverr­is­sonar. Airport City í nóv­em­ber í fyrra. Ástæða þess að við­skipta­sam­band mann­anna tveggja hefur vakið athygli er sú að Kadeco hefur selt félögum í eigu Sverris fast­eignir í þrí­gang á und­an­förnum árum fyrir sam­tals 150 millj­ónir króna.

Fyrst keypti félagið Þórs­hamar ehf. fast­eign­ina Funatröð 3. þann 28. des­em­ber 2015 á 35 millj­ónir króna. Það félag er í eigu Sverris og barna hans. Fast­eigna­mat þeirrar eignar er 27,3 millj­ónir króna. Sú eign hefur verið seld áfram til Höldur, eig­anda Bíla­leigu Akur­eyrar. Salan var hluti af stærri kaupum fyr­ir­tæk­is­ins á Ásbrú, en alls keypti það hús­næði og lóðir á tæp­lega 17 þús­und fer­metra svæði við Funatröð 1-5 í októ­ber 2016.

Næst keypti félagið Sverrir Sverr­is­son ehf. fast­eign­ina Skóg­ar­braut 945 þann 27. apríl 2016 á 55 millj­ónir króna. Fast­eigna­mat þeirrar eignar er 38,5 millj­ónir króna. Síðustu við­skipti Kadeco og félags Sverris áttu sér síðan stað í febr­úar 2017 þegar félagið G604 ehf. keypti fast­eign­irnar Grænás­braut 604- 606 á 60 millj­ónir króna. Gildandi fast­eigna­mat þeirrar eignar er 160 millj­ónir króna, eða 100 millj­ónum króna meira en kaup­verðið.

Þarf að gera skriflega grein fyrir viðskiptum sínum

Í Frétta­blað­inu fyrr í þess­ari viku sagði Kjartan frá því að hann hefði upp­lýst þáver­andi stjórn­ar­for­mann Kadeco um þessi tengsl í byrjun sum­ars. Sigurður Kári sagði í sömu frétt að fjár­fest­ingar Airport City, sem keypti fast­eignir á Ásbrú sem áður voru í eigu Eign­ar­halds­fé­lags­ins AV ehf. (fyrr­ver­andi eig­anda Íslenskra aðal­verk­taka), hafi fyrst komið til umræðu á stjórn­ar­fundi fyrripart maí­mán­aðar.

Við­skipti Kjartans í gegnum Airport City voru svo tekin aftur fyrir á stjórn­ar­fundi í gær og þar gerði hann munn­lega grein fyrir þeim. Nið­ur­staða fund­ar­ins var sú að að óskað var eftir því að Kjartan geri stjórn­inni skrif­lega grein fyrir við­skiptum sínum á svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár