Kadeco verður lagt niður í núverandi mynd

Ný stjórn var kos­inn á aðal­fundi Kadeco, þró­un­ar­fé­lags Kefla­vík­ur­flug­vallar, á aðal­fundi á þriðju­dag. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að félagið standi á tíma­mótum og að starf­semi þess í núver­andi mynd verði aflögð.

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála og efna­hags­ráð­herra, segir að til standi að leggja starf­semi Kadeco, þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vallar, niður í núver­andi mynd. Skipt var um stjórn í félag­inu í vik­unni og upp­runa­legu hlut­verki þess, að selja fast­eignir á Ásbrú, sé nú lokið. Benedikt telur hins vegar vera þekk­ingu hjá starfs­fólki félags­ins sem sé þess eðlis að hún gæti nýst áfram. Ráðu­neytið vilji taka upp við­ræður við heima­menn um hvernig sé hægt end­ur­skoða starf­sem­ina með það í huga.

Benedikt segir að hann hafi lýst þess­ari skoðun sinni á fundum með starfs­fólki Kadeco, enda sé komið að tíma­mótum hjá félag­inu. Það hafi selt nán­ast allar eignir sem það átti að selja og ljóst að end­ur­skoða þurfi starf­sem­ina. Á þriðju­dag var hald­inn aðal­fundur og þar var kosin ný þriggja manna stjórn. Sigurður Kári Krist­jáns­son, lög­maður og fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hafði verið for­maður stjórn­ar­innar en vék ásamt tveimur öðrum stjórn­ar­mönnum. Í stað Sigurðar Kára var Georg Brynjars­son, hag­fræð­ingur og stjórn­ar­maður í Viðreisn, kjör­inn stjórn­ar­for­maður. Auk hans komu tveir starfs­menn fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins inn í stjórn Kadeco. Benedikt stað­festir að þessar breyt­ingar séu liður í því að leggja starf­semi Kadeco niður í núver­andi mynd.

Söluverðmæti áætlað um 26 milljarðar

Þegar hafa verið seldir um 264 þús­und fer­metrar af hús­næði á Ásbrú til 40 mis­mun­andi aðila í gegnum Kadeco. Um er að ræða iðn­að­ar­hús­næði, þjón­ustu­hús­næði og íbúð­ar­hús­næði. ÍBúð­ar­hús­næðið skipt­ist í 934 fjöl­skyldu­í­búðir og 1.053 ein­stak­lings­í­búðir. Á þeim rúmu tíu árum sem liðin eru frá því að Kadeco tók við eign­unum, en það var gert í kjöl­far þess að banda­ríski her­inn yfir­gaf her­stöð­ina á Mið­nes­heiði, hafa nær allar eignir sem Kadeco fékk verið seldar. Áætlað heild­ar­sölu­verð­mæti eign­anna er um 18,6 millj­arðar króna að nafn­virði eða um 26 millj­arðar króna miðað við upp­reikn­aða vísi­tölu neyslu­verðs.

Kjarninn mun áfram fjalla ítar­lega um Kadeco á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár