Ráðuneyti braut gegn persónuverndarlögum með framkvæmd Ferðagjafar og fékk sekt

Smáforritið sem notað var til að dreifa ferðagjöf stjórn­valda sótti um tíma, án vitneskju eigenda símtækja, aðgang að „myndavél til þess að taka ljós­myndir og myndbönd, svo og að hljóðnema til að taka upp hljóð og breyta hátalara­stillingum símtækis.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er sá ráðherra sem bar ábyrgð á framkvæmd Ferðagjafarinnar.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er sá ráð­herra sem bar ábyrgð á fram­kvæmd Ferða­gjaf­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytinu hefur verið gert að greiða 7,5 milljónir króna í stjórnvalds­sekt vegna vinnslu persónu­upplýsinga í tengslum við ferðagjöf stjórn­valda. Fyrir­tækinu YAY ehf., sem bjó til smáforrit sem notast var við í útdeilingu ferða­gjafarinnar, hefur verið gert að greiða 4,5 milljónir króna í stjórnvalds­sekt af sömu sökum.

Þetta kemur fram í ákvörðun Persónu­verndar í málinu sem birt var í morgun. Þar segir að ráðuneytið og fyrir­tækið sem það réð til að útdeila ferða­gjöfinni stafrænt hafi brotið gegn grundvallar­reglum persónu­verndar­löggjafarinnar, til dæmis um fræðslu­skyldu, gagnsæi og öryggi persónu­upplýsinga í smáforritinu Ferðagjöf.

„Dagana 18.-23. júní 2020 sótti smáforritið, í einhverjum tilvikum án vitneskju eigenda þeirra, mjög víðtækar aðgangs­heimildir í símtækjum notenda. Þar á meðal var sóttur aðgangur að myndavél til þess að taka ljós­myndir og myndbönd, svo og að hljóðnema til að taka upp hljóð og breyta hátalara­stillingum símtækis,“ segir meðal annars í ákvörðun Persónu­verndar.

Ráðuneytið ákvað að semja við YAY ehf. í júní í fyrra og fékk fyrir­tækið greiddar fjórar millj­ónir króna fyrir að hanna smáforrit utan um ferða­gjöf stjórn­valda. Sam­kvæmt svari atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­isins við fyrir­spurn Kjarnans um málið á þeim tíma var lausn fyr­ir­tæk­is­ins metin hæfust af fjölda lausna sem upp­haf­lega voru skoð­að­ar.

Auk þeirra fjögurra millj­óna króna sem fyr­ir­tækið fékk fyrir að hanna Ferða­gjaf­ar-­for­ritið reiknaði ráðu­neytið með að greiða YAY ehf. á bil­inu átta til ellefu millj­ónir króna til við­bótar fyrir rekstr­ar­þjón­ustu for­rits­ins þar til fyrsta áfanga verk­efn­isins lyki, en ferða­gjaf­irn­ar, sem námu 5.000 krónum á hvern íbúa á Íslandi 18 ára og eldri, voru upphaf­lega inn­leys­an­legar til loka árs í fyrra. Sá frestur var síðan fram­lengdur og ráðist var í útgáfu nýrrar ferða­gjafar á þessu ári sem einnig var ráðstafað í gegnum smáforrit YAY ehf.

YAY viðurkenndi mistök

Persónu­vernd segir að sér hafi borist fjöldi ábendinga um að við notkun ferða­gjafarinnar hefði verið krafist umfangs­mikilla persónu­upplýsinga og víðtæks aðgangs að símtækjum notenda. Því frumkvæðis­rannsókn sett af stað.

Niður­staða Persónu­verndar var sú að atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið, sem ábyrgðar­aðili vinnslunnar, braut gegn mörgum grundvallar­reglum persónu­verndar­löggjafarinnar auk þess sem vinnslan var umfangs­mikil. Þá hafi hvorki atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið né YAY ehf. gert „viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi við vinnslu persónu­upplýsinga, svo sem með aðlögun og mótun stillinga smáforritsins, auk þess sem ekki var gerður vinnslu­samningur milli aðila svo sem lög kveða á um, en gerð slíks samnings telst til mikil­vægra skipulagslegra ráðstafana vegna vinnslu persónu­upplýsinga.“

Í ákvörðuninni kemur fram að þrátt fyrir ábendingar Persónu­verndar um ófullnægjandi fræðslu hafi seint verið gripið til úrbóta og allt þar til verk­efninu lauk nú í sumar var notendum gert að samþykkja ranga notenda­skilmála við innskráningu í smáforritið.

Þar segir enn fremur að það hafi verið fyrir mistök YAY ehf. að aflað hafi verið víðtækra og ónauðsynlegra aðgangs­heimilda í símtækjum notenda smáforritsins, meðal annars að viðkvæmum persónu­upplýsingum, svo sem trúnaðar­upplýsingum í dagatali. „Hins vegar kom í ljós við rannsókn málsins að persónu­upplýsingar notenda hefðu ekki verið sóttar á grund­velli fyrr­greindra aðgangs­heimilda.“

YAY ehf. viðurkenndi að vinnslan hefði farið fram fyrir mistök og verið ónauðsynleg. „Auk þess komst Persónu­vernd að þeirri niður­stöðu að fyrir­tækið hefði ekki uppfyllt kröfur persónu­verndar­laga um innbyggða og sjálf­gefna persónu­vernd við uppsetningu smáforritsins. Þá lágu ekki fyrir gögn sem sýndu að gerðar hefðu verið úttektir eða prófanir til að meta skilvirkni og stillingar forritsins, meðal annars með tilliti til þess hvaða persónu­upplýsinga væri í reynd óskað við innskráningu í smáforritið og þeirra aðgangs­heimilda sem aflað væri sjálf­krafa. Var háttsemi YAY ehf. því ekki talin samræmast persónu­verndar­löggjöfinni hvað þessi atriði varðaði.“

Kostaði rúmlega tvo milljarða

Í tölum Ferða­mála­stofu kemur fram að alls hafi verið sóttar 231.331 ferða­gjafir í seinni úthlutun þeirra fyrir 1.157 millj­arð króna. Not­aðar voru 218.934 ferða­gjafir og voru 194.171 full­nýttar (5.000 krón­ur) Ónot­aðar ferða­gjafir voru 12.397 og nam ónotuð upp­hæð um 80 millj­ónum króna. Heild­ar­upp­hæð sem nýtt var í ferða­gjöf var því 1.076.841.713 krón­ur.

Sam­­kvæmt mæla­­borði ferða­­þjón­ust­unnar var rétt rúm­­lega millj­­arður greiddur út í formi ferða­gjafar í fyrri atrennu hennar. Ferða­­gjöf 2020 átti að gilda frá júní í fyrra og út árið 2020 en var fram­­lengd til loka maí á þessu ári. Af þeim 280 þús­undum sem gátu nýtt sér síð­­­ustu ferða­­gjöf sóttu 240 þús­und gjöf­ina en heild­­ar­­fjöldi not­aðra gjafa nam 207 þús­und­­um. Því er heild­ar­kostn­aður skatt­greið­enda vegna ferða­gjaf­ar­innar rúm­lega tveir millj­arðar króna.

Mörg þeirra fyr­ir­tækja sem fengu mest út úr seinni ferða­gjöf­inni mynd­uðu þann hóp sem fékk mest út úr þeirri fyrri. Þar ber helst að nefna elds­neyt­is­sal­ana N1 og Olís og skyndi­bita­keðj­urnar Domino´s og KFC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár