Samþykkja samruna Vísis og Síldarvinnslunnar en funduðu með Fiskistofu

Samkeppnis­eftirlitið segir að enn séu talsverð stjórnunar-, eigna- og viðskipta­tengsl á milli Samherja, Síldar­vinnslunnar og Gjögurs/Kjálkaness. Innkoma Vísis í þennan hóp muni þó ekki hafa áhrif á samkeppni.

Áfram gakk
Áfram gakk Sam­run­inn er sam­þykktur af hálfu yfir­valda og ljóst að Gunnþór Ingv­ars­son mun leiða sam­einað fyr­ir­tæki Vísis og Síld­ar­vinnsl­unnar. Mynd: Skjáskot af Youtube

Samkeppnis­eftirlitið hefur samþykkt samruna útgerð­anna Vísis og Síldar­vinnslunnar. Í rannsókn eftirlitsins á samrunanum komu fram upplýsingar sem áfram gefa til kynna eigna-, stjórnunar- og viðskipta­tengsl á milli Síldar­vinnslunnar, Samherja og Gjögurs/Kjálkaness, sem áður hafa verið til rann­sóknar eftirlitsins. Samruninn var rann­sakaður með tilliti til þessara tengsla; með öðrum orðum var samruninn skoðaður miðað við að um eina blokk væri að ræða. 

„Hafa rann­sóknir leitt í ljós talsverð stjórnunar-, eigna- og viðskipta­tengsl milli framan­greindra aðila sem fela í sér vísbendingar um að stofnast hafi til yfirráða í Síldar­vinnslunni umfram það sem áður hefur verið greint frá í tilkynningum um samruna,“ segir eftir­litið. 

Það þýðir þó ekki að fyrir­tækin séu saman komin í markaðs­ráðandi stöðu né að samkeppni raskist við sameininguna. 

TengdirSam­keppn­is­eft­ir­litið telur fjöl­skyldu­út­gerð Björg­ólfs, Gjögur, tengda útgerðum undir stjórn Þor­steins, sem er for­stjóri Samherja og Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga, og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar.
…
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    SAMKEPNISEFTIRLITIÐ ER KOMIÐ Í HENDUR GLÆPAMANNA OG SPILAR EFTIR ÞVÍ .Það sjá allir sem ekki eru meðvirkir og hafa eitthvð milli eyrna sér að samsteipa samherjavaldins er að ná öllum helstu fiskvinslum og laxeldi undir síg með blessun ráðamanna sem ekkert gera .Bara loka eyrum og augum fyrir staðreindum . Lögin þverbrotin og á endanum verður hér á íslandi fasistaríki í höndum siðblyndra manna sem svifast einskis á ná hér öllum völdum .Hafa til damis öll völd yfir alþingi og dómsvaldi . Svo vakna menn og konur upp við það að hafa tapað völdum yfir eigin líf og er komir í eitt versta einræðisríki með fasisma aqð leiðarljósi . Þá miga til damis þeir sem hafa verið jaðarsettir eins og mongólítar homar ,kinseigin og hinseigin fara að vara sig ,og glema allir þeiri baráttu fyrir frjalsu lífi sér til handa og lenda í sömu sporum og fyrir 50 árum ,og lenda aftur á jaðrinum í sitt fyrra ömurlega líf . Eigum við að hætta að vera MEÐVIRK GLÆPAHYSKINU og opna augun og eyrun fyrir staðreindum og verja líðræðið frm í rauðann dauðann meðann er er möguleiki ,eða eigum við vara að fljota hagt að feigðarósi ?

    Athugum að meðvirkni haskólagengissins er ein sú hætulegasta spiling sem þekkist .ekki gleima nótt hinna lögu hnífa þar sem yfirstéttin mentaða ver bara drepin af því hún var fyrir fasitunum ,þó svo hún hjalpaði fasistunum að ná völdum .Þá voru ekki leingur vinir heldur bsara slátturfé í augum fasista og bara fyrir fasistunum .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár