Trump sagður vilja ráðast á skotmörk í Sýrlandi

Ráðgjafar forsetans - með varnarmála­ráðherrann Jim Mattis í broddi fylkingar - vilja stíga varlega til jarðar. Það er forsetinn ósáttur með.

Donald Trump Bandaríkja­forseti er sagður hafa beðið Jim Mattis varnarmála­ráðherra, og ráðgjafa sína á sviði alþjóða- og hermála, að ráðast af hörku á valin skotmörk í Sýrlandi, til að hefna fyrir efna­vopnaárás í landinu á dögunum.

Hann hefur einnig talað fyrir því að ekki verði aðeins ráðist á skotmörk sem beinast að stjórnarher Sýrlands, heldur einnig helstu bandalags­þjóðunum, Rússlandi og Íran.

Frá þessu greinir Wall Street Journal í kvöld.

Rússar hafa þvertekið fyrir það að hafa staðið að baki efna­vopna­árásinni í Sýrlandi, sem banaði í það minnsta 40 manns, en Sergei Lavrov utan­ríkis­ráðherra Rússlands fullyrðir að árásin hafi verið sviðsett af erlendum leyni­þjónustum, og nefndi Breta sérstak­lega í því sambandi, samkvæmt umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC.

Í umfjöllun Wall Street Journal kemur fram að Mattis varnarmála­ráðherra vilji ekki grípa til frekari hernaðar í Sýrlandi, nema að yfirlögðu ráði og að upplýsingar stöðu mála séu skýrar. Hann hefur einnig lagt áherslu á samvinnu við aðrar þjóðir, en Trump vill að Banda­ríkin stýri ferðinni, en upplýsi aðrar þjóðir, eins og Breta og Frakka, um hvað þau ætli sér að gera.

Ástandið í Sýrlandi er skelfilegt, en talið er að yfir 10 milljónir manna, af um 20 milljóna heildar­íbúafjölda, séu á flótta vegna borgar­styrjaldarinnar í landinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár