Segja mikilvæg símagögn hafa borist lögreglu seinna en öðrum

Gögn sem sýndu nákvæma stað­setningu síma eins farþegans í flug­vélinni sem fórst í Þingvalla­vatni gengu manna á milli áður en lögreglan fékk þau í hendur. Þetta kemur fram í Frétta­blaðinu í dag.

Vélin fórst í Þingvallavatni á tólfta tímanum á fimmtudag.
Vélin fórst í Þing­valla­vatni á tólfta tím­anum á fimmtu­dag. Mynd: Bára Huld Beck

Þegar lögreglan fékk gögn sem sýndu nákvæma stað­setningu síma eins farþega flug­vélarinnar TF-ABB aðfara­nótt föstudags höfðu þau gengið manna á milli á fimmtudeginum, daginn sem vélin hvarf.

Þetta kemur fram í Frétta­blaðinu í dag.

Fjórir voru í vélinni, íslenskur flugmaður og þrír erlendir ferðamenn. Þeir fórust allir í slysinu.

Frétta­blaðið segir að svo virðist sem mikilvæg grundvallar­gögn, þ.e. upplýsingar um stað­setningu farsíma eins farþegans, hafi ekki borist stjórn­endum leitarinnar, þ.e. lögreglu, fyrr en mörgum klukku­stundum eftir að þau höfðu komið fyrir sjónir björgunar­sveitar­manna. Þá hafi þau ennfremur gengið manna á milli í flug­heiminum á Íslandi. Gögnin bárust m.a. ritstjórn Frétta­blaðsins að kvöldi fimmtudags en það var þó ekki fyrr en morguninn eftir að stjórn­endur leitarinnar kváðust hafa fengið gögn frá erlendu síma­fyrirtæki sem beindi allri leitinni að Ölfusvatnsvík í Þingvalla­vatni. Þó hafði leit við vatnið verið hafin daginn áður en einnig á mun stærra svæði, m.a. við Kleifar­vatn.

Oddur Árnason yfir­lögreglu­þjónn segist í samtali við Frétta­blaðið ekki vita hvernig standi á því að gögnin hefðu borist lögreglu svo miklu síðar.

Uppfært kl. 12.00: Lögreglan á Suður­landi segir þessar fréttir, þ.e. að stað­setning úr farsíma hafi ekki borist stjórn­endum aðgerða í tíma, rangar. Í sameiginlegum aðgerða­grunni björgunar­sveita og almanna­varna þ.m.t. LHG, lögreglu, sjúkra­flutninga, Isavia ofl. sé fyrsta vísbending úr farsíma skráð þegar á fimmtudeginum 3. febrúar kl. 17:51 . Kl. 15:40 þennan sama dag hafi legið fyrir í sama grunni eftir gögnum Isavia að flug­leiðin hafi verið um Grímsnesið. Leit með sérstakri vél frá danska hernum hafi fyrst verið beint að Grímsnesi og suður­hluta Þingvalla­vatns. Kl. 17:40 var þyrla Gæslunnar með menn úr séraðgerða­sveit í sérstakri leit yfir og í Ölfusvatnsvík.

Formleg stað­festing á síma­gögnum, sem þegar höfðu verið notuð við skipulagningu leitar­aðgerða, fékkst hins vegar ekki fyrr en síðar frá þar til bærum yfir­völdum erlendis, segir í tilkynningunni.

Vélin sést á öryggismyndavélum við vatnið

Mbl.is greindi frá því í gærkvöldi að á upptökum öryggis­myndavéla sem eru við Þingvalla­vatn megi sjá það er vélin fórst í vatninu. Upptökur sýna einnig vélina á flugi á svæðinu.

Samkvæmt heimildum mbl.is virðist sem svo, á einni upptökunni, að flug­vélinni sé stýrt niður að vatninu með vinstri beygju. Í kjölfarið líti út fyrir að vélinni hafi verið ætlað að hafa snertingu við vatnið, þ.e. annað hvort svokallaða snertilendingu eða að lenda á vatninu.

Vatnið var að því er fram kemur í frétt mbl.is ísilagt en ísinn hafi þó verið þunnur.

Lík hinna látnu fundust á sunnudag en vegna veðurs hefur ekki enn verið unnt að kafa eftir þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár