Slæmt ár á Wall Street virðist ætla að enda illa

Ávöxtun hluta­bréfa hefur verið að meðaltali verið neikvæð í Banda­ríkjunum á þessu ári. Vaxta­hækkanir leggjast illa í fjárfesta, en búast má við frekari skrefum í þá átt á nýju ári.

Undan­farnar vikur hafa verið skelfilegar á Wall Street en hlutabréf hafa fallið í verði, og nú virðist ljóst, að hlutabréfa­vísi­tölurnar enda flestar lægri í lok þessa árs, en þær voru í byrjun ársins.

Í umfjöllun Wall Street Journal segir að fjár­festar hafi tekið fjórum vaxta­hækkunum Seðla­banka Banda­ríkjanna illa, en nú síðast í gær voru vextir hækkaðir úr 2,25 prósent í 2,5 prósent.

Í dag hefur S&P 500 vísitalan lækkað um 1,5 prósent og olíuverð hefur haldið áfram að lækka. Lækkunin á tunnunni af hráolíu hefur verið mikil, 4,5 prósent. Tunnan kostar nú um 46 Bandaríkja­dali en fyrir aðeins um 7 vikum, kostaði hún tæplega 85 Bandaríkja­dali. Þetta eru góðar fréttir fyrir Ísland og sparar þjóðar­búinu gjaldeyri, og dregur úr verðbólgu­þrýstingi.

Tími ódýrra peninga á markaði virðist liðinn, en frá 2008 og fram í desember 2016 hélst vaxtastig nálægt núlli. Þetta leiddi til mikilla fjár­festinga í verð­bréfum, með tilheyrandi hækkun á hluta­bréfum.

Annað sem hefur valdið fjár­festum miklum áhyggjum á þessu ári, er viðskipta­stríð Banda­ríkjanna og Kína. Þó það hafi ekki varað lengi, þá virðast fjár­festar hræddir um afleiðingar þess til lengri tíma. Mestu munar um háa tolla á innflutning á stáli og áli, frá 10 til 25 prósent, frá Kína til Banda­ríkjanna.

Þetta hefur leitt til kostnaðar­hækkana hjá mörgum fram­leiðendum, meðal annars í bíla­iðnaði í Banda­ríkjunum. Undan­farna mánuði hafa þeir gripið til uppsagna til að rétta af reksturinn, á mörgum stöðum í Banda­ríkjunum. 

Staða efnahags­mála í Banda­ríkjunum þykir þrátt fyrir lækkanir á hlutabréfa­markaði, nokkuð góð. Atvinnu­leysi mælist nú um 4 prósent, og Seðla­banki Banda­ríkjanna gerir ráð fyrir að hagvöxtur verið á bilinu 2 til 3 prósent á næsta ári. Þó þykja blikur á lofti, meðal annars vegna þess að verðbólgu­þrýstingur hefur verið að aukast, og fasteigna­verð víða gefið eftir, samhliða því að vextir hafa farið hækkandi á fasteigna­lánum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár