Sjö reikistjörnur á stærð við jörðina finnast

Stjörnu­fræðingar finna sjö reiki­stjörnur á stærð við Jörðina, þar af þrjár sem gætu haft fljótandi vatn á yfirborði sínu, í kringum stjörnuna TRAPPIST-1. Frá þessu greindi NASA rétt í þessu.

Hópur stjörnu­fræðinga hefur fundið einstakt sólkerfi sjö reikistjarna á stærð við Jörðina, þar af þrjár sem gætu haft fljótandi vatn á yfirborði sínu, í kringum stjörnuna TRAPPIST-1. Greint er frá uppgötvuninni á þessu í nýjasta hefit tíma­ritsins Nature og sagt er frá á vefsíðu ESO . Geim­vísinda­stofnun Banda­ríkjanna, NASA, greindi frá uppgvötuninni á blaðamanna­fundi sem stendur nú yfir.

Á Stjörnu­fræði­vefnum, þar sem Sævar Helgi Bragason skrifar, segir að TRAPPIST-1 sé rauð dvergstjarna, aðeins 8 prósent af massa sólar eða „örlítið stærri en Júpíter, í 40 ljósára fjarlægð frá Jörðinni í stjörnu­merkinu Vatns­beranum. Stjarnan er aðeins tæplega 2600°C heit, helmingi kaldari en sólin okkar,“ segir í skrifum á Stjörnu­fræði­vefnum.

Reikistjörnurnar nefnast TRAPPIST-1b, c, d, e, f, g og h, í röð frá móður­stjörnunni. Þær eru allar álíka stórar og Jörðin og Venus, hugsanlega örlítið minni. „Brautir reikistjarnanna eru ekki mikið breiðari en brautir Galíleótungla Júpíters og mun minni en braut Merkúríusar í sólkerfinu. TRAPPIST-1 er hins vegar lítil og köld stjarna sem þýðir að orkan sem berst til reikistjarnanna er álíka mikil og innri reikistjörnurnar í sólkerfinu okkar fá frá sólinni. TRAPPIST-1c, d og f fá álíka mikið magn sólar­ljóss og Venus, Jörðin og Mars hver fyrir sig,“ segir Sævar Helgi á Stjörnu­fræði­vefnum. 


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár