Lego hætti við að gefa út legóþyrlu vegna mótmæla þýskra friðarsinna

Þýskir frið­ar­sinnar og hern­að­ar­and­stæð­ingar hafa knúið danska leik­fanga­fram­leið­and­ann Lego til þess að hætta við útgáfu á legóþyrlu. Bent var á að þyrlan, af gerð­inni Osprey, væri fyrst og fremst her­þyrla. Það sam­ræm­ist ekki stefnu Lego.

Frá mótmælum fyrir utan Lego-verslun í Hamborg síðasta mánudag.
Frá mót­mælum fyrir utan Lego-verslun í Hamborg síð­asta mánu­dag. Mynd: DFG-VK

Þýskir frið­ar­sinnar og hern­að­ar­and­stæð­ingar hafa knúið danska stór­fyr­ir­tækið Lego til þess að end­ur­skoða ákvörðun sína um að gefa út her­þyrlu­legó. Útgáfan hefði orðið fyrsta Lego-eft­ir­mynd raun­veru­legra her­gagna, en ekk­ert mun nú verða af þeim áætl­unum Lego að dreifa þyrlu­legóinu frá og með næsta mán­uði. Danska við­skipta­blaðið Finans segir frá þessu í dag.

Í upp­hafi vik­unnar mót­mæltu frið­ar­sinnar áætl­unum Lego fyrir utan versl­anir danska fyr­ir­tæk­is­ins í Þýska­landi, meðal ann­ars í Berlín og Hamborg. Lego lét snögg­lega undan, enda kom upp úr krafs­inu að útgáfa af tækni­legókubba­sett­inu Lego Technic Bell Boeing V-22 Osprey hefði strítt gegn siða­reglum fyr­ir­tæk­is­ins sjálfs, sem hefur svarið þess heit að gefa ekki út eft­ir­myndir raun­veru­legra stríðstækja.

„Elskaðu kubba - hataðu stríð“

Mót­mæl­endur frá þýsku friðar- og hern­að­ar­and­stæð­inga­sam­tök­unum DFG-VK stóðu fyrir utan versl­anir Lego og mót­mæltu því að danski kubbafram­leið­and­inn væri í sam­starfi við her­gagna­fram­leið­end­urna, banda­rísku fyr­ir­tækin Boeing og Bell, um útgáfu Osprey-legóþyrl­unnar.

Slagorð mót­mæl­anna var „Elskaðu kubba – hat­aðu stríð“ og bentu mót­mæl­endur á að þrátt fyrir að útgáfan sem Lego hafði fram­leitt og hugð­ist setja í hillur versl­ana á næst­unni væri björg­un­ar­þyrla en ekki stríðstól væri raunin sú að þessi gerð þyrlna væri ein­ungis notuð í hern­aði nú um mundir, aðal­lega af Banda­ríkja­her en einnig af jap­anska hernum.

„Við höfum ára­langa stefnu um að gefa ekki út kubba með hern­að­ar­far­ar­tækjum, og því höfum við ákveðið að ganga ekki lengra með útgáfu þess­arar vöru,“ segir Lego í svari sínu við fyr­ir­spurn Finans.

Danski mið­il­inn segir að Lego hafi ekki svarað öllum spurn­ingum sínum um málið, meðal ann­ars varð­andi það hvað ætti að gera við allar Osprey-legóþyrlurnar sem þegar hafa verið fram­leiddar. „Við höfum því miður ekki meira um málið að segja, annað en það að við getum stað­fest að varan mun ekki koma út,“ sagði í svari Lego.

Framúrskarandi, segja þýskir friðarsinnar

For­svars­menn sam­tak­anna DFG-VK segj­ast him­in­lif­andi með að aðgerðir þeirra hafi skilað árangri og segir fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna, Michael Schulze von Glaßer, að við­brögð Lego við mót­mæl­unum hafi verið umfram vænt­ingar.

„Við höfum reynt að hafa sam­band við Lego nokkrum sinnum frá því í febr­úar og óskað eftir yfir­lýs­ingu um áætlun þeirra um hern­að­arkubbana. Við buð­umst líka til þess að funda með þeim en fengum engin svör,“ er haft eftir von Glaßer í til­kynn­ingu.

Hann bætir við að and­staða sam­tak­anna við vör­una sem slíka hafi ein­ungis stafað af and­stöðu við sam­starf Lego við Boeing og Bell, en banda­rísku fyr­ir­tækin hefðu hlotið greiðslu fyrir sam­starfið, ef það hefði gengið alla leið. Ef Lego hefði gefið út þyrlu sem hefði líkst Osprey-þyrlum en ekki verið merkt vöru­merkjum her­gagna­fram­leið­and­anna hefði það verið í góðu lagi.

Þýsku sam­tökin segj­ast, umhverf­is­ins vegna, von­ast til þess að allir þeir kubbar sem fóru í fram­leiðslu þyrlu­legós­ins fái nýjan til­gang. „Það er það góða við legókubba, það má alltaf skapa eitt­hvað nýtt með þeim,“ segir von Glaßer.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár