Aflaukning núverandi virkjana þurfi ekki að fara í gegnum rammaáætlun

Umhverfis- og auðlinda­ráðuneytið hefur uppi áform um að breyta lögum þannig að tæknileg aflaukning virkjana, sem ekki feli í sér eiginlega stækkun virkjana, muni ekki lengur þurfa að fara í gegnum ferli ramma­áætlunar.

Guðlaugur Þór Þórðarsson er ráðherra orku- og umhverfismála.
Guð­laugur Þór Þórð­ars­son er ráð­herra orku- og umhverf­is­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Umhverfis- og auðlinda­ráðuneytið hefur sett fram til samráðs í samráðs­gátt stjórn­valda áform um laga­setningu, þess efnis að lögum um ramma­áætlun verði breytt með þeim hætti að „tæknileg aflaukning“ virkjana sem eru í rekstri þurfi ekki lengur að fara í gegnum ferli ramma­áætlunar. Umsagnar­frestur um málið er til 18. febrúar.

Breytingarnar sem eru fyrir­hugaðar myndu fela í sér að tæknileg aflaukning starfandi virkjana þyrfti ekki lengur að fara til umfjöllunar hjá ramma­áætlun sem sérstakur virkjana­kostur. Tekið er fram að slíkar framkvæmdir þyrftu þó eftir sem áður ef til vill að fara í gegnum umhverfis­mats­ferli.

Í umfjöllun ráðuneytisins um fyrir­hugaðar laga­breytingar í samráðs­gáttinni segir að samkvæmt núverandi lögum um ramma­áætlun frá 2011 geti umfjöllun um einstaka virkjunar­kosti í verndar- og orku­nýtingar­áætlun tekið allt að fjögur ár, frá því að virkjunar­aðili sendir inn umsókn um mat á virkjunar­kostinum og þar til virkjunar­kosturinn er afgreiddur inn í orku­nýtingar-, bið- eða verndar­flokk af Alþingi.

„Með frum­varpinu er ætlunin að undan­skilja tæknilegar aflaukningar á virkjunum sem nú þegar eru í rekstri umfjöllun ramma­áætlunar. Slíkar framkvæmdir munu eftir sem áður þurfa að fara í gegnum umhverfismat samkvæmt lögum þar að lútandi,“ segir í umfjöllun umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins.

Umframrennsli

Í skjali þar sem áformin um laga­setninguna eru nánar útskýrð segir að almennt sé „tæknileg aflaukning í vatnsafls­virkjunum sem þegar eru í rekstri til þess hugsuð að nýta umfram­rennsli sem þegar er til staðar í hinu virkjaða vatns­falli, t.d. vegna aukinnar bráðnunar jökla. Um er að ræða að auka afkasta­getu véla í stöðvar­húsi þannig að umfram­rennslið, sem áður var veitt fram hjá stöðvar­húsi, nýtist til raforku­framleiðslu.“

Segir í þessu sama skjali að þessar aflaukningar feli ekki í sér „stór­felldar breytingar á þeim atriðum sem mestu skipta við mat á umhverfis­áhrifum virkjanna, t.d. yfirborðshæð og yfirborðs­flatarmáli lóna, lengd og umfang skurða og stíflna í vatna­sviði ofan virkjunar o.s.frv.“

Ennfremur segir í skjalinu að þar sem máls­meðferð ramma­áætlunar miði að því að að vega og meta áhrif virkjunar­framkvæmda á umhverfi, samfélag og efnahag sé ekki talið rétt að skylda tæknilegar aflaukningar inn í ferli ramma­áætlunar, þar sem geri megi ráð fyrir því að umhverfis­áhrif tæknilegra aflaukninga séu takmörkuð.

Rammaáætlun á leið fyrir þingið enn einu sinni

Ríkis­stjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja tillögu Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar ráðherra til þings­ályktunar um 3. áfanga ramma­áætlunar til þing­flokka stjórnar­flokkanna þriggja til afgreiðslu.

Í tilkynningu um þetta á vef stjórnar­ráðsins segir að þings­ályktunar­tillagan hafi verið lögð fram í sömu mynd og á 151., 146. og 145. löggjafar­þingi, en á þeim þingum náðist ekki að afgreiða málið.

Í tilkynningunni segir að svæði sem Alþingi hafi þegar samþykkt í verndar­flokk og hafi verið friðlýst í samræmi við lög um verndar- og orku­nýtingar­áætlun hafi verið felld úr tillög­unni. Þetta eru Hólmsár­virkjun við Einhyrning, Tungna­árlón, Gýgjar­fossvirkjun, Bláfells­virkjun, Gjástykki, Brennisteins­fjöll, Hverabotn, Neðri-Hverdalir, Kisu­botnar og Þverfell.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár