Nýr Laugardalsvöllur kosti á bilinu 7 til 18 milljarða

Reykja­víkurborg, ríkið og KSÍ hafa samþykkt að stofna undir­búnings­félag um mögulega uppbyggingu nýs Laugar­dalsvallar.

Reykja­víkurborg, ríkið og KSÍ hafa samþykkt að stofna undir­búnings­félag um mögulega uppbyggingu nýs Laugar­dalsvallar. Félagið verður 50 prósent í eigu Reykja­víkurborgar, 42,5 prósent í eigu ríkisins og 7,5 prósent í eigu KSÍ.

Starfs­hópur sem ríkið og Reykja­víkurborg skipaði í janúar um uppbyggingu Laugar­dalsvallar hefur skilað af sér niðustöðum. Hópurinn fór yfir hugmyndir um þjóðar­leikvang fyrir knatt­spyrnu, lagði mat á þær og gerði tillögur um mögulega uppbyggingu.

Helstu niður­stöður starfs­hópsins eru:

  1. Margt mælir með því að núverandi þjóðar­leikvangur í Laugardal verði endurnýjaður.
  2. Ríkið, Reykja­víkurborg og KSÍ stofni undir­búnings­félag um mögulega framkvæmd og taki upp viðræður um eignar­hald á þjóðar­leikvangnum.
  3. Undir­búnings­félagið bjóði út samning um endanlega þarfa­greiningu, skipulagningu verk­efnisins, kostnaðar­áætlun og gerð útboðs­gagna.
  4. Þjóðar­leikvangur getur hvort heldur sem er verið opinn knattspyrnu­völlur eða fjölnota­leikvangur með opnanlegu þaki.
  5. Kostnaður og áhætta við fjölnota­leikvang er vel umfram kostnað og áhættu við opinn knattspyrnu­völl.
  6. Ákvörðun um byggingu og eignar­hald þjóðar­leikvangs verði tekin með hliðsjón af niður­stöðu vinnu undir­búnings­félags og stöðu opinberra fjármála.
  7. Áætlað er að undir­búningi fyrir ákvörðun verði lokið í lok árs 2018.
  8. Verði tekin ákvörðun um byggingu þjóðar­leikvangs getur útboðs­ferli framkvæmda tekið frá nokkrum mánuðum og upp undir eitt ár og framkvæmda­tími verið að minnsta kosti tvö ár.
  9. Huga verður að mögulegu fordæmi ákvörðunar um byggingu þjóðar­leikvangs fyrir aðrar íþrótta­greinar með hliðsjón af væntanlegri reglugerð um þjóðar­leikvanga.
  10. Hvetja ætti til opinnar umræðu um byggingu þjóðar­leikvangs á grund­velli þeirra ítarlegu gagna sem tekin hafa verið saman á undan­förnum misserum.

Tveir valkostir til stækkunar - kostar 7 til 18 milljarða

Hópurinn skoðaði tvo valkosti annars vegar völl fyrir um 17.500 áhorf­endur með yfir­byggðum áhorf­endastæðum en opnu þaki yfir leik­vellinum. Hins vegar kostur B sem er fjölnota mannvirki fyrir um 20.000 áhorf­endur með þaki yfir leik­vellinum sem hægt er að opna og loka eftir þörfum.

Verulegur munur er á þessum mann­virkjum til viðbótar við þakið sjálft og felst munurinn þá ekki aðeins í mismun­andi útfærslum heldur einnig notkunar­möguleikum. Að baki hvorum valkosti um sig liggja þess vegna mismun­andi viðskipta- og rekstrar­áætlanir.

Hugmyndir um útfærslu A gera ráð fyrir nútíma­legum knattspyrnu­velli sem uppfyllir allar kröfur UEFA og FIFA til þjóðar­leikvangs. Leik­vangur A er fyrst og fremst hugsaður fyrir knatt­spyrnu en þó er gert ráð fyrir auka viðburðum í rekstrar­áætlun. Völlurinn mun rúma rúmlega 17.500 yfirbyggð sæti og 25.000 manns á tónleikum að sumri að til. Vesturstúkan (aðalstúkan) mun halda sér en rými innandyra endur­skiplagt fyrir veitinga­þjónustu. Rými fyrir fjölmiðla og keppnis­fólk verður endur­byggt og nútíma­vætt. Gras­völlurinn verður endurnýjaður, skipt verður um undirlag og dren ásamt því að leggja hita­lagnir. Hlaupa­brautin verður fjarlægð og völlurinn sjálfur færður nær vestur­stúku. Þrjár nýjar stúkur verða byggðar með nútímalegri aðstöðu fyrir áhorf­endur.

Starfs­hópurinn dregur þá ályktun að valkostur A kosti á bilinu 7 til 11 milljarða.

Megin­munur á valkostum A og B er opnanlegt þak, aukin aðstaða í viðbyggingu við austur­stúku og sæti fyrir fleiri áhorf­endur. Sæti verða á vellinum fyrir um 20.000 sæti og rými fyrir allt að 28.000 manns á tónleikum. Gert er ráð fyrir því að vesturstúkan (aðalstúkan) muni áfram halda sér en rými innandyra endur­skiplögð. Einnig er gert ráð fyrir nýrri byggingu í austur­stúku fyrir veitinga­þjónustu og sérstök áhorf­enda­herbergi. Mun meiri nýting hlýst af opnanlegu þaki vallarins og í rekstrar­áætlunum er gert er ráð fyrir fjölda viðburða á ári.

Starfshópurin áætlar að valkostur B kosti á bilinu 11 til 18 milljarða.

Völlurinn vígður vorið 2021

Samkvæmt tímalínu sem starfs­hópurinn hefur sett upp í kringum verkefnið er gert rað fyrir að í kjölfar stofnunar undir­búnings­félagsins verði útboðs­gögn undirbúin snemma nú í sumar, verkefnið auglýst og skipulagsmál undirbúin. Síðsumars verði samið við aðila um stýringu verk­efnisins. Í desember verði tekin ákvörðun um útfærslu og næsta vor verði gerðir samningar um uppbyggingu nýs vallar sem síðan er stefnt á að verði vígður vorið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár