Tveir fjarvinnudagar í viku gætu skilað 15 milljarða króna sparnaði á ári

Samkvæmt svokölluðu samgöngu­mati sem unnið hefur verið af Bandalag háskóla­manna í samstarfi við Mannvit gæti tveggja daga fjarvinnu­heimild fyrir helming starfandi á höfuð­borgar­svæðinu skilað 15 milljarða sparnaði fyrir heimili á höfuð­borgar­svæðinu.

Fjarvinna færðist mjög í aukana vegna faraldursins.
Fjar­vinna færð­ist mjög í auk­ana vegna far­ald­urs­ins. Mynd: Pexels

Árlegur sparnaður heimila á höfuð­borgar­svæðinu, ef helmingur starfandi fólks gæti unnið að heiman tvo daga í viku, væri um 15 milljarðar króna. Með þessu fyrir­komulagi sparast 83 milljónir ekinna kílómetra og 3 milljónir klukku­stunda.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í svokölluðu samgöngu­mati, sem Bandalag háskóla­manna (BHM) hefur unnið í samstarfi við verkfræði­stofuna Mannvit.

Sagt er frá þessu í tilkynningu frá BHM í dag, en banda­lagið hefur boðað til streymis­fundar kl. 11:30 þar sem þessar niður­stöður verða kynntar í frekari smáatriðum, auk þess sem rætt er um kosti og galla við fjarvinnu og breytingar í samgöngu­málum á höfuð­borgar­svæðinu.

Í tilkynningu BHM er haft eftir Friðriki Jónssyni formanni BHM að fyrirtæki og stofnanir á höfuð­borgar­svæðinu ættu að leitast við að starfs­mönnum sínum heimild til að vinna fjarvinnu tvo daga í viku, þar sem því verði við komið, enda sé það allra hagur.

„Við höfum áður talað um aukna fram­leiðni, minni yfir­byggingu, aukinn sveigjanleika og bætt lífsgæði launa­fólks sem helstu sölu­punktana en nú sjáum við líka svart á hvítu hvað fjar­vinnan þýðir fyrir þjóð­félagið. Við hikum ekki við að fullyrða að fjar­vinnan er verð­mætasta samgöngu­bótin í sögu höfuð­borgar­svæðisins,“ er haft eftir Friðrik í tilkynningu BHM.

Arðsamari aðgerð en Borgarlína og Sundabraut

Í tilkynningu BHM er settur fram saman­burður við hagfræðilegar greiningar sem gerðar hafa verið á arðsemi Borgar­línu og Sunda­brautar, tveimur stór­verkefnum í samgöngu­málum höfuð­borgar­svæðisins, á undan­förnum árum.

Núvirtur þrjátíu ára ábati af þessu þrennu er borinn saman og þá fæst sú niður­staða að tveggja daga fjarvinnu­heimild muni skila 370 milljarða ábata á næstu 30 árum, en það er fimmfalt meiri ábati en áætlað er að Borgar­lína muni skila og um 50 prósent meiri ábati en gert er ráð fyrir að bygging Sunda­brautar hafi í för með sér fyrir samfélagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár