Skúli um prófkjörið: Heiða átti betra skilið

Borg­ar­full­trú­inn Skúli Helgason seg­ist ætla að taka fjórða sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Hann og Heiða Björg Hilm­is­dóttir voru einu borg­ar­full­trúar flokks­ins frá síð­ustu kosn­ingum sem gáfu kost á sér og hvor­ugt náði mark­miði sínu.

Skúli Helgason borg­ar­full­trúi segir að Heiða Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri hafi átt betra skilið í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar, sem fram fór í gær. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu Skúla í kjöl­far nið­ur­stöðu próf­kjörs­ins, þar sem Pétur Mart­eins­son var kjör­inn nýr odd­viti flokks­ins.

Heiða hafn­aði í öðru sæti í próf­kjör­inu, aðeins fimmtán atkvæðum frá því að tapa því sæti fyrir Stein­unni Gyðu Guð­jóns­dóttur, sem lenti í þriðja sæti. Skúli Helgason sjálfur hafn­aði í fjórða sæti en hafði stefnt að öðru sæt­inu.

Í yfir­lýs­ingu sinni segir Skúli að nið­ur­staðan end­ur­spegli mikla end­ur­nýjun innan flokks­ins, en leggur jafn­framt sér­staka áherslu á stöðu borg­ar­stjór­ans. „Heiða átti betra skilið eftir þau miklu og góðu störf sem hún hefur unnið fyrir okkur jafn­að­ar­menn und­an­farin ár en póli­tíkin getur verið mis­kunn­ar­laus,“ segir Skúli.

Hann lýsir próf­kjör­inu sem „lýð­ræð­is­veislu“ sem hafi skilað „miklum breyt­ingum og end­ur­nýjun eins og kallað var eftir“ og óskar nýjum fram­bjóð­endum til …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Prófkjör Samfylkingarinnar

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár