Sameiningaralda yfirvofandi í evrópskum flugfélögum

Hlutabréfa­verð á norska lággjalda­flug­félaginu Norwegian hefur hækkað töluvert það sem af er degi eftir að fréttir bárust um að Lufthansa hefði áhuga að kaupa í það. Forstjóri Lufthansa segir sameiningar­öldu yfir­vofandi í evrópskum flug­félögum.

Norwegian hefur staðið í nokkrum rekstrarörðugleikum undanfarin misseri.
Norwegian hefur staðið í nokkrum rekstr­ar­örð­ug­leikum und­an­farin miss­eri. Mynd: EPA

Þýska samsteypan Lufthansa hefur sýnt áhuga á að kaupa hlut í lággjalda­flug­félaginu Norwegian, samkvæmt frétt Süddeutsche Zeitung sem birtist í morgun. Carsten Spohr, forstjóri Lufthansa, segir samruna­öldu yfir­vofandi í evrópskum flug­félögum. Norski hlutabréfa­markaðurinn tók fréttunum vel, en þegar þetta er skrifað hafa hlutabréf Norwegian hækkað um rúm 10% frá opnun markaða.

Samkvæmt fréttinni sagði Carsten Spohr, forstjóri Lufthansa, flug­félagið vera í sambandi við Norwegian vegna yfir­vofandi samruna í evrópskum flug­félögum á næstunni. „Flug­félögin eru samrýmd í spá sinni um að farþega­fjöldi muni tvöfaldast aftur á næstu 20 árum,” segir Spohr, þrátt fyrir flöktandi verð á olíu. „Hins vegar muni það (flöktandi olíuverð) halda áfram að knýja fram samruna í geiranum, þar sem á tímum þar sem stein­olíuverð er hátt muni hinir sterku verða sterkari og hin veiku verða veikari.”

Norwegian hefur staðið í rekstrar­vandræðum undan­farin misseri, en virði fyrir­tækisins tók að aukast á ný fyrir tveimur mánuðum síðan eftir að flug­samsteypan IAG lýsti yfir áhuga sínum á að kaupa flug­félagið. IAG gerði tvö kaup­tilboð í félagið, en báðum tilboðum var hins vegar hafnað.

Aðrar yfirtökur mögulegar

Í samtali við frétta­stofu Reuters segir Spohr Lufthansa munu grípa önnur tækifæri til yfirtöku á öðrum flug­félögum ef þau berast, öll fyrirtæki í geiranum séu í samtali við hvern annan. Önnur heimild frétta­stofunnar sagði lággjalda­flugfélagið einnig vera heppilega viðbót við Lufthansa , megin­kostur Norwegian væri sá að það sé í virkum rekstri með lágan kostnað.

Lufthansa hefur staðið í nokkrum yfirtökum á síðustu misserum, en tók yfir hluta af Air Berlin í fyrra og keypti útistandandi hluti í Brussels Airlines nýverið. Einnig hefur samsteypan haft auga á ítalska ríkis­flug­félaginu Alitalia, þótt sölu­ferlið sé tafið vegna stjórnmála­ólgu þar í landi.

Kaupstríð ólíklegt

Einnig er fjallað um málið í norska viðskipta­blaðinu Dagens Næringsliv, en þar segir að ólíklegt sé að kaupstríð milli IAG og Lufthansa sé í vændum. Forstjóri IAG, Jimmy Walsh, þvertók fyrir það einnig á ársfundi samsteypunnar í Madríd í síðustu viku, þrátt fyrir að þeir nálgist fyrir­huguð kaup á Norwegian með opnum hug.

Hlutabréfa­verð Norwegian hefur rokið upp í kjölfar fréttanna í morgun, en virði fyrir­tækisins á norska hlutabréfa­markaðnum hefur aukist um rúm 10% það sem af er degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár